18. janúar 2019
Lýsing breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 - nánar
Hreppsnefnd samþykkti á 127. fundi sínum þann 12. desember 2018 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Dagverðarness skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br..
Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að hluti frístundabyggðasvæði, sem er 3,9 ha að stærð, færist til og óbyggt svæði minnkar, en í þess stað verður skilgreint skógræktarsvæði.
Lýsingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 25. janúar til og með 19. febrúar 2019. Einnig verður opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 29. janúar 2019 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér efni lýsingarinnar.
Lýsing á breytingu á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010 - 2022 í landi Dagverðarnes
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingar um efni lýsingarinnar. Ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi þann 19. febrúar 2019. Skila skal ábendingum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is.