Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa nr.72

Skorradalshreppur

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa  Skorradalshrepps
72. fundur

Mánudaginn 24. júlí 2023 kl. 16:00, hélt byggingarfulltrúi Skorradalshrepps afgreiðslufund. Þessir sátu fundinn: Pétur Davíðsson og Sæmundur Víglundsson.
Fundarritari var Sæmundur Víglundssson, byggingarfulltrúi.

Þetta gerðist:

Byggingarleyfismál

1. Skógarás 8, Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi – Mál nr. 2307003
Sótt er um heimild til að byggja 112,3 m2 frístundarhús á lóðinni. Áður árið 2006 hafði verið veitt leyfi fyrir byggingu á 65,7 m2 húsi.
Byggingaráformin eru samþykkt.

2. Fitjahlíð 100, Umsókn um byggingarleyfi OneLandRobot – Mál nr. 2307006
Sótt er um að byggja 185,0 m2 frístundarhús á lóðinni.
Erindinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar þar sem engir byggingarskilmálar eða deiliskipulag eru í gildi fyrir þetta svæði.

3. Dagverðarnes 72a – Umsókn um byggingarheimild – Mál nr. 2307007
Sótt er um að byggja við núverandi sumarhús, 39,9 m2. Alls verður því frístundarhúsið 103,9 m2
Byggingaráformin eru samþykkt