Hreppsnefnd Skorradalshrepps
Fundur nr. 159
Miðvikudaginn 8. september 2021 kl.20:30, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn: Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Árni Hjörleifsson, Sigrún Guttormsdóttir Þormar og Ástríður Guðmundsdóttir.
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður.
Þetta gerðist:
Almenn mál
1. Verkefni Þróunarfélagsins á Grundartanga – Mál nr. 2109004
Kynning á Þróunarfélaginu á Grundartanga.
Fóru yfir framtíðar- og þróunarverkefni félagsins.
Gestir
Sævar Kristinsson, Þróununarfélag Grundartanga ehf./KPMG hf. –
Ólafur Adolfsson, Þróununarfélag Grundartanga ehf. –
Guðjón Steindórsson, Þróununarfélag Grundartanga ehf. –
2. Erindi til Vegagerðar – Mál nr. 2104011
Oddviti fór yfir samskipti við Vegagerðina.
3. Styrkvegurinn Hagi – Bakkakot – Mál nr. 2102007
Vegagerðin hefur veitt 1,5 milljón kr. í styrkveginn.
Oddvita samþykkt að leita samninga við Tryggva Val Sæmundsson.
4. Kjörskrá til alþingiskosninga 25. september n.k. – Mál nr. 2109005
Lögð fram kjörskrá til staðfestingar. Einnig er lagt til að kjörstaður verði í Hvammi. Til vara að vera í Skátaskálanum á Stóru-Drageyri.
Á kjörskrá í Skorradalshreppi eru 53 íbúar. Kjörskráin samþykkt og oddvita falið að undirrita hana.
5. Erindi frá Borgarbyggð – Mál nr. 1811003
Oddviti fór yfir málið.
6. Framlag til byggingar laugarhús Hreppslaugar. – Mál nr. 2007003
Lögð fram fundargerð byggingarnefndar frá því í gær.
Drög að viðauka vegna framkvæmdanna áfram frestað.
Fundargerðir til staðfestingar
7. Fundargerðir stjórnar fjallskilaumdæmisins – Mál nr. 2109006
Lögð fram fundargerð nr. 10 og 11 hjá stjórn Fjallskilaumdæmisins
Báðar fundargerðinar staðfestar.
8. Skipulags- og byggingarnefnd – 151 – Mál nr. 2108001F
Lögð fram fundargerð frá í gær, 7. september s.l.
Fundargerðin samþykkt í öllum 11. líðum.
8.1 2108004 – Umhverfismatsdagurinn 2021
8.2 2106003F – Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa – 62
8.3 2101004 – Vatnsendi, skilmálar 1-4.áfanga, breyting deiliskipulags
8.4 2107001 – Refsholt 30, breyting deiliskipulags
8.5 2104002 – Dagverðarnes 111, svæði 3, breyting deiliskipulags
8.6 2103003 – Dagverðarnes 101, svæði 3, breyting deiliskipulags
8.7 2106002 – Vatnsendahlíð 183, 8.áfangi, breyting deiliskipulags
8.8 1705002 – Dagverðarnes 51, byggingarmál
8.9 2101007 – Furuhvammur 4, breyting deiliskipulags
8.10 2108005 – Umsögn um breytingu Aðalskipulags Borgarbyggðar 2010-2022-Húsafell
8.11 2101001 – Refsholt 22, umsókn um byggingarleyfi
Fundargerðir til kynningar
9. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, stjórnarfundir nr. 161-162 – Mál nr. 2109008
Lagðar fram.
10. Fundargerðir nr. 900 stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga. – Mál nr. 2109009
Lögð fram
11. Fundir stjórnar Faxaflóahafna nr. 207 til 208 – aðalfundargerð 2021 – Mál nr. 2109007
Lagðar fram.
Skipulagsmál
12. Vatnsendi, skilmálar 1-4.áfanga, breyting deiliskipulags – Mál nr. 2101004
Skipulags- og byggingarskilmálar eru ekki í gildi fyrir 1.-4. áfanga frístundabyggðar í landi Vatnsenda þar sem samþykkt hreppsnefndar um mitt árið 1997 á þeim var ekki auglýst í B-deild Stjórnartíðinda. Niðurstaða um þetta liggur fyrir eftir skoðun embættisins, Skipulagsstofnunar og Stjórnartíðinda. Lögð er fram tillaga að skipulags- og byggingarskilmálum fyrir 1.-4. áfanga frístundabyggðar í landi Vatnsenda sem unnir hafa verið í samráði við landeigendur. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja breytingu deiliskipulags 1.-4. áfanga frístundabyggðar í landi Vatnsenda er varðar skipulags- og byggingarskilmála fyrir umrædda áfanga sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingin kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum með opnum degi sbr. 3. mgr. 40. gr. sömu laga og að því loknu verði breytingin auglýst sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Hreppsnefnd samþykkir breytingu deiliskipulags 1.-4. áfanga frístundabyggðar í landi Vatnsenda er varðar skipulags- og byggingarskilmála fyrir umrædda áfanga sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingin kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum með opnum degi sbr. 3. mgr. 40. gr. sömu laga og að því loknu verði breytingin auglýst sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
13. Refsholt 30, breyting deiliskipulags – Mál nr. 2107001
Sótt er um breytingu á mænishæð og vegghæð langhliðar. Samkvæmt deiliskipulagi frístundabyggðar Hálsaskógar, IV. áfanga, Refsholt 30-66 er heimiluð hámarks mænishæð 480 cm og hámarks vegghæð langveggja 250 cm. Óskað er eftir að hámarks mænishæð verði 515 cm og hámarks vegghæð langhliðar verði 296 cm. Breyting deiliskipulags er í samræmi við gildandi Aðalskipulag Skorradalshrepps 2010-2022. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að heimila óverulega breytingu deiliskipulags og hún grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. fyrir lóðarhöfum Refsholt 31, 32, 33, 49, 59, 60, 61, 62 og landeigendum. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Hreppsnefnd samþykkir að heimila óverulega breytingu deiliskipulags og hún grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. fyrir lóðarhöfum Refsholt 31, 32, 33, 49, 59, 60, 61, 62 og landeigendum. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
14. Dagverðarnes 111, svæði 3, breyting deiliskipulags – Mál nr. 2104002
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 22. júlí til 22. ágúst 2021. Engin athugasemd barst á grenndarkynningartíma. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
15. Dagverðarnes 101, svæði 3, breyting deiliskipulags – Mál nr. 2103003
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 22. júlí til 22. ágúst 2021. Engin athugasemd barst á grenndarkynningartíma. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
16. Vatnsendahlíð 183, 8.áfangi, breyting deiliskipulags – Mál nr. 2106002
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 29. júlí til 29. ágúst 2021. Engin athugasemd barst á grenndarkynningartíma. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
17. Dagverðarnes 51, byggingarmál – Mál nr. 1705002
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 4. júní til 4. júlí 2021. Engin athugasemd barst á grenndarkynningartíma. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
18. Furuhvammur 4, breyting deiliskipulags – Mál nr. 2101007
Óskað er eftir breytingu á Deiliskipulagi Hvammsskógi neðri er varðar lóð Furuhvamms 4. Breytingin varðar stækkun á byggingarreit til norðurs, aukið byggingarmagn lóðar úr 185 fm í 300 fm og heimilt verði að vera með tvær auka stakstæðar/sjálfstæðar byggingar á lóð, þ.e. geymsla og bátaskýli. Breytingin samræmist Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að heimila óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt sbr. 44. gr. sömu laga fyrir lóðarhöfum Furuhvamms 1, 2, 3, 5, 6 og landeigendum.
Hreppsnefnd samþykkir að heimila óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt sbr. 44. gr. sömu laga fyrir lóðarhöfum Furuhvamms 1, 2, 3, 5, 6 og landeigendum. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 00:10.