| |
1. 2310007 - Styrkvegurinn Bakkakot-Stóra Drageyri | |
Samningurinn samþykktur og oddvita falið að undirrita hann. KJ vék af fundi við afgreiðslu málsins. | | |
|
2. 2310008 - Bréf frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaganna vegna ársreiknings 2022 | |
Erindið lagt fram. | | |
|
3. 2310010 - 6 mánaðauppgjör sveitarfélagsins 2023 | |
PD fór yfir 6 mánaðauppgjörið. | | |
|
4. 2310009 - Fjárhagsáætlun og gjaldskrá Heilbrigðiseftirlits Vesturlands | |
Fjárhagsáætlun samþykkt og gjaldskrá lögð fram. | | |
|
5. 2206017 - Kosning endurskoðanda sveitarfélagsins til eins árs. | |
Oddvita falið að skoða málið fyrir næsta fund. | | |
|
6. 2310011 - Umsögn innviðaráðuneytisins um álit sveitarstjórnar | |
Lagt fram, umsögnin verður birt á heimasíðu sveitarfélagsins. | | |
|
7. 2309008 - Sameiningarmál | |
Farið yfir niðurstöður vinnufundar, miklar umræður urðu um málið.
GE, JEE og KJ leggja fram eftirfarandi bókun "Samþykkt að fela oddvita og varaoddvita að óska eftir samtali við sveitarstjórn Borgarbyggðar um mögulega útfærslu á sameiningarmöguleikum"
PD lagði til að einnig yrði óskað eftir samtali við Akranesskaupsstað og Hvalfjarðasveit um sameingingarmál.
ÓRÁ vill bóka eftirfarandi. "Finnst ekki tímabært strax að hefja viðræður um sameiningarmál"
Einnig lagði PD til að bókun meirihluta hreppsnefndar væri breytt að annar en varaoddviti hæfi samtal við Borgarbyggð sökum hugsanlegs vanhæfis. Varaoddviti telur sig ekki vanhæfan.
JEE, GE og KJ samþykkja sína tillögu. PD og ÓRA hafna þeirri tillögu
Tillaga JEE, GE og KJ samþykkt með meirihluta hreppsnefndar.
| | |
|
8. 2310016 - Tæming rotþróa - verksamningur. | |
| |
|
| |
9. 2310001F - Skipulags- og byggingarnefnd - 175 | |
Fundargerðin samþykkt í öllum 8 liðum. | 9.1. 2309005 - Hnitsetning lóðar, Dagverðarnes 44 Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir framlagt lóðablað að því gefnu að samþykki aðliggjandi lóðarhafa og landeiganda liggi fyrir og uppdráttur uppfærður í samræmi við athugasemdir nefndarinnar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram. | 9.2. 2306003 - Endurskoðun stefnumörkunar skógræktar, breyting aðalskipulags Minnisblað vinnufundar skipulags- og byggingarnefndar lagt fram. | 9.3. 2204006 - Stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn, breyting aðalskipulags Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að tillaga breytingar aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn verði kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br. með opnum degi á skrifstofu sveitarfélagsins og enn fremur verði tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga. Skipulags- og byggingarnefnd leggur enn fremur til við hreppsnefnd að tillagan verði auglýst í Morgunblaðinu og á heimasíðu sveitarfélagsins sbr. 1. mgr. 31. sömu laga, að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30.gr. sömu laga. | 9.4. 2310001 - Fundur Skipulagsstofnunar með skipulagsfulltrúum Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að sækja fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins. | 9.5. 2310004 - Hvítbók um skipulagsmál Skipulagsfulltrúa falið að vinna umsögn í samræmi við umræður á fundinum. | 9.6. 2206012 - Stóra Drageyri, óleyfisframkvæmd Erindi lögreglustjóra á Vesturlandi, rökstuðningur hans og kæra til embættis ríkissaksóknara lögð fram og kynnt. | 9.7. 2206020 - Bakkakot, óleyfisframkvæmd Erindi lögreglustjóra á Vesturlandi, rökstuðningur hans og kæra til embættis ríkissaksóknara lögð fram og kynnt. | 9.8. 2205001 - Holtavörðuheiðarlína 1, matsáætlun Nefndin felur skipulagsfulltrúa að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum. | | |
|
| |
10. 2310014 - Fundargerð nr. 933-934 í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga | |
| |
|
11. 2310013 - Fundargerð 185. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands | |
| |
|
12. 2310012 - Fundargerð Faxaflóahafna sf. nr.234-235 | |
| |
|
| |
13. 2204006 - Stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn, breyting aðalskipulags | |
Hreppsnefnd samþykkir að tillaga breytingar aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn verði kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br. með opnum degi á skrifstofu sveitarfélagsins og enn fremur verði tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga. Hreppsnefnd samþykkir enn fremur að tillagan verði auglýst í Morgunblaðinu og á heimasíðu sveitarfélagsins sbr. 1. mgr. 31. sömu laga, að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30.gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. | | |
|