Til bakaPrenta
Hreppsnefnd - 211

Haldinn á Hvanneyri,
20.08.2025 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Hreppsnefndarmaður,
Jón E. Einarsson Hreppsnefndarmaður,
Guðný Elíasdóttir Hreppsnefndarmaður,
Óli Rúnar Ástþórsson Hreppsnefndarmaður,
Kristín Jónsdóttir Hreppsnefndarmaður,
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2301004 - Ljóspunktur ehf.
Karl Hálfdánarson kemur í heimsókn og fer yfir stöðuna.
Rætt um stöðuna. PD útvegar samþykktir félagsins fyrir hreppsnefndina.
 
Gestir
Karl Hálfdánarson, Radiover -
2. 2507010 - Skólaakstur veturinn 2025-26
JEE og ÓRÁ fara yfir stöðuna.
Hreppsnefnd samþykkir að fela JEE og ÓRÁ að ganga til samninga við foreldra um akstur.

KJ vék af fundi við afgreiðslu málsins.

3. 2508008 - Úrsögn úr skipulags- og byggingarnefnd
Þann 2.júlí 2025 sagði Ástríður Guðmundsdóttir sig frá setu í skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps.
Samþykkt er að Sigrún Þormar 1. varamaður verði aðalmaður í Skipulags- og bygginganefnd.

2 og 3 varamaður í Skipulags- og bygginganefnd færast þá upp og verða 1 og 2 varamaður.

Nýr 3. varamaður í skipulag- og bygginganefnd er kjörin Gísli Rúnar Magnússon.

Sveitarstjórn þakkar Ástríði fyrir framlag hennar og vinnu í Skipulag- og byggingarnefndar.
4. 2508001 - Framkvæmd íbúakosninga - sameining við Borgarbyggð
Oddviti fer yfir stöðuna um framkvæmd sameiningarkosninga og greiðslufyrirkomulag.
Oddviti leggur til að kjördaganna 5., 8., 10., 15. og 18. september verði kjörnefndarfólki greitt eftir tímagjaldi samkvæmt launatöflu Skorradalshrepps. Leggur einnig til að kjördaginn 20. september verði greitt eftir gjaldi vegna kjördags samkvæmt launatöflu Skorradalshrepps.

Kjörskrá mun liggja frammi á skrifstofu Skorradalshrepps og einnig hjá oddvita frá og með 22. ágúst fram að kjördegi.

PD óskar eftir, að á næsta fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps verði lögð fram bæði ýtarleg og vel sundurliðun kostnaðaráætlun vegna væntanlegrar sameiningarkosninga í sveitarfélögunum.
Fundargerðir til staðfestingar
5. 2508002F - Skipulags- og byggingarnefnd - 192
Lögð fram fundargerð frá 18. ágúst s.l.
Fundargerðin samþykkt í öllum 7 liðum.
5.1. 2508007 - Umhverfisþing XIV
Umhverfisþing verður haldið dagana 15. - 16. september 2025 í Silfurbergi í Hörpu. Megin þema þingsins verður hafið, líffræðileg fjölbreytni og loftslagsmál.
Lagt fram og kynnt.
5.2. 2508003 - Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar er að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir, https://island.is/samradsgatt/mal/4005 .
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
5.3. 2508003F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 80
Fundargerð lögð fram til kynningar
5.4. 2508005 - Fitjahlíð 13, merkjalýsing
Á 80. fundi afgreiðslufundar byggingarfulltrúa var málinu vísað til endanlegrar afgreiðslu skipulags- og byggingarnefndar. Sótt er um stækkun lóðarinnar Fitjahlíðar 13, skráð stærð er 2000 m2, verður 3241,6 m2 samkvæmt merkjalýsingu.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að merkjalýsing Fitjahlíðar 13 verði samþykkt. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
5.5. 2309002 - Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037
Málinu var frestað á 190. fundi nefndarinnar. Öll gögn málsins liggja á Skipulagsgátt https://skipulagsgatt.is/issues/2023/242 .
Skipulagsfulltrúa falið að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri við Borgarbyggð.
5.6. 2508006 - Syðstu-Fossar, 10342025-Grenndarkynning framkvæmdaleyfis
Borgarbyggð óskar eftir umsögn um umsókn um framkvæmdaleyfi vegna vegagerðar og undirbúnings tippsvæðis í landi Syðstu-Fossa vegna fyrirhugaðra endurbóta á mannvirkjum við inntakslón Andakílsárvirkjunar, uppmokstur á seti sem og viðhaldi á lóninu sjálfu. Markmið verkefnisins er að tryggja framtíð virkjunarinnar með rekstur, öryggi og umhverfi í huga. Gert er ráð fyrir að vinnuvegur að tippsvæðum ásamt tippsvæðum 1 og 2 verði tilbúin til notkunar eigi síðar en þann 1. júní 2026 þannig að hægt sé að hefja vinnu við uppmokstur og tippun úr Andakílsárlóni. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. nóvember það sama ár og aðalverktaki hefur lokið uppmokstri, tippun og landmótun.
Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að samkvæmt jarðamörkum á milli Syðstu-Fossa og Efri-Hrepps er hluti framkvæmdar innan Skorradalshrepps. Skipulagsfulltrúa falið að taka saman upplýsingar er það varðar og senda inn með umsögn.
5.7. 2508004 - Skógrækt í landi Varmalækjar-matsáætlun
Fyrirhuguð er skógrækt á jörðinni Varmalækur, sem staðsett er við minni Flókadals innan sveitarfélagsins Borgarbyggð. Jörðin er 847 ha að stærð og er gert ráð fyrir að 70-80 % þess lands verði nýtt til skógræktar. Markmið skógræktarinnar að rækta síþekjuskóg sem skapar timburnytjar, ásamt fleiri gæðum skógarvistkerfis. Þegar hefur fengist leyfi til skógræktar á um 82,5 ha svæði innan jarðarinnar sem verður plantað á þessu ári.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að upplýsa Borgarbyggð um afstöðu nefndarinnar og senda inn umsögn.
Fundargerðir til kynningar
6. 2404011 - Fundur verkefnahóps um formlegar sameiningarviðræður Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Lagðar fram fundargerðir nr.12 og 13.
PD óskaði eftir að bóka eftirfarandi:
"Ég legg fram hér bókun vegna framlagningu fundargerða samstarfsnefndarinnar. Minni á bókun mína er varðar gögn samstarfsnefndarinnar frá síðasta hreppsnefndarfundi. Sjö daga fresturinn er að renna út.
Óska ég einnig eftir að, á næsta fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps verði einnig lagt fram sitthvort kostnaðar- og tekjuyfirlitið vegna bæði óformlegu og formlegu viðræðnanna frá upphafi og til dagsins í dag á milli sveitarfélaganna.
Einnig afrit af öllum reikningum og fylgiskjölum þeirra. Vísa ég til 21. gr. samþykkta um stjórn sveitarfélagsins Skorradalshrepps um aðgang sveitarstjórnarmanna að gögnum er varðar sveitarfélagið. Gögnin mega afhentast rafrænt. Jafnframt verði lagt fram á næsta hreppsnefndarfundi sem sér dagskrármál.
Pétur Davíðsson"
12. fundur samstarfsnefnd Borgarbyggðar og Skorradalshrepps 30.06.2025.pdf
13. fundur samstarfsnefnd Borgarbyggðar og Skorradalshrepps 23.07.2025.pdf
7. 2508002 - Sameiginleg kjörstjórn Borgarbyggðar og Skorradalshrepps vegna sameiningarkosninga.
Lagðar fram fundargerðir nr. 3 og 5.
PD óskar eftir að bóka eftirfarandi:

"Ég geri athugasemd við lið 9 í fundargerð nr. 5.
Ekki er búið að leggja fyrir sveitarstjórn Skorradalshrepps tillögu að atkvæðaseðlinum, samþykkja hann og fá staðfestingu Innviðaráðuneytisins á honum sbr. b. lið í 17 gr. reglugerðar um íbúakosningar. Óska ég eftir að tillaga að atkvæðaseðlinum verði lögð fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.
Jafnframt óska ég eftir að kostnaðaráætlun vegna sameiningarkosninganna verði lögð fram á næsta fundi hreppsnefndar Skorradalshreppar. Verði þar á fundinum sem sér dagskrámál.
Minni síðan á bókun mína frá síðasta fundi varðandi sameiginlega kjörstjórn sveitarfélaganna og beiðni um gögn er varðar hana. Sjö daga fresturinn er að renna út og engin gögn hafa verið lögð fyrir þennan fund.
Pétur Davíðsson"
Sveinbjörn Eyjólfsson_202508181941.pdf
Sveinbjörn Eyjólfsson_202508190837.pdf
Skipulagsmál
8. 2508005 - Fitjahlíð 13, merkjalýsing
Á 192. fundi Skipulags- og byggingarnefndar var tekin fyrir stækkun lóðarinnar Fitjahlíðar 13, skráð stærð er 2000 m2, verður 3241,6 m2 samkvæmt merkjalýsingu.
Hreppsnefnd staðfestir afgreiðslu Skipulags- og byggingarnefndar frá fundi nr. 192.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:30 

Til bakaPrenta