Til bakaPrenta
Hreppsnefnd - 227

Haldinn á Hvanneyri,
27.05.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Hreppsnefndarmaður,
Jón E. Einarsson Hreppsnefndarmaður,
Guðný Elíasdóttir Hreppsnefndarmaður,
Óli Rúnar Ástþórsson Hreppsnefndarmaður,
Kristín Jónsdóttir Hreppsnefndarmaður,
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2605001 - Ársreikningur Skorradalshrepps fyrir árið 2025
Ársreikningur Skorradalshrepps fyrir 2025 lagður fram til seinni umræðu.
Ársreikningurinn lagður fram til seinni umræðu. Fulltrúi KPMG Lilja Dögg Karlsdóttir fór yfir ársreikning.

Ársreikningurinn samþykktur.
 
Gestir
Lilja Dögg Karlsdóttir, KPMG -
2. 2605009 - Endurskoðunarskýrsla vegna 2025
Endurskoðunarskýrsla vegna 2025 lögð fram.

Fulltrúi KPMG Lilja Dögg Karlsdóttir fór yfir endurskoðunarskýrsluna.
 
Gestir
Lilja Dögg Karlsdóttir, KPMG -
Pétur Davíðsson og Kristín Jónsdóttir yfirgáfu fundinn undir þessum dagskrálið.
PD óskar eftir að varamaður komi að málinu fyrir sig.

3. 2509003 - Kaldavatnsmál í Birkimóa
JEE og ÓRÁ fara yfir stöðuna.
Hreppsnefnd samþykkir að gerð verði bráðabirgðatenging við vatnsveitu í Hálsaskógi og íbúðarhúsahverfi í Birkimóa sumarið 2026, ef þörf verður vegna vatnsskorts. Einnig samþykkir hreppsnefnd að byrjað verði á framkvæmdum við að finna nýtt varanlegt vatnsból fyrir Birkimóa þar sem ekki er nægilega tryggt vatn.
Oddvita er falið að ganga frá tímabundnum samning við landeiganda.

Samþykkt samhljóða
Pétur Davíðsson og Kristín Jónsdóttir komu inn á fund eftir afgreiðslu dagskrárliðs.
4. 2605012 - Birkimói 2, 4 og 6
Tilboð hefur borist í lóðirnar í Birkimóa 2, 4 og 6
Tilboðið samþykkt, oddvita falið að ganga frá lóðaleigusamningum.
KJ situr hjá við afgreiðsluna.
5. 2605006 - Samningar vegna öryggismyndavéla.
Lagðir fram samningar vegna öryggismyndavéla um aðgang að rafmagni.
Hreppsnefnd samþykkir að gerðir verða samningar við þá aðila sem greiða rafmagnskostnað á öryggismyndavélunum í sveitarfélaginu ásamt endurgreiðslu á rafmagnskostnaði frá tengingu myndavélanna.
6. 2404022 - Raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
Framhald á umræðum frá hreppsnefndarfundi nr. 222 og 223. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála tók fyrir mál nr. UUA2512002 þann 21.1.2026 þar sem ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá 13. nóvember 2025 um skipun raflínunefndar vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 er kærð af hálfu sveitarfélagsins. Úrskurðarnefnd vísaði kærumálinu frá. Á 222. fundi hreppsnefndar var lagt fram og kynnt minnisblað lögmanns sveitarfélagsins er varðar mögulega málshöfðun sveitarfélagsins vegna ákvörðunar um skipun raflínunefndar skv. 9.gr.a í skipulagslögum nr. 123/2010.
Oddviti leggur fram eftirfarandi tillögu: "Hreppsnefnd afléttir trúnaði á minnisblaði lögmanns sem lagt var fram á 222. fundi hreppsnefndar og felur lögmanni sveitarfélagsins að koma til félags- og húsnæðismálaráðherra mótmælum við skipun raflínunefndar og ósk um endurskoðun á þeim gjörningi. Einnig að koma til umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra mótmælum við að ákvörðuninn sé ekki kæranleg til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála."

PD leggur fram eftirfarandi bókun í stað tillögu oddvita. "Ítreka fyrri bókun Skipulagsnefndar á 199 fundi nefndarinnar. Í ljósi álits lögmanns leggur skipulags- og byggingarnefnd til við hreppsnefnd að veita lögmanni sveitarfélagsins heimild til að nota öll tiltæk ráð og heimildir til að stjórnskipuleg staða sveitarfélagsins og þar með annarra sveitarfélaga gagnvart ríkinu verði skýrð. En í ljósi þess að ný sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélaganna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps tekur við eftir 4 daga, þá legg ég til að vísa afgreiðslu þessa máls til nýrrar sveitarstjórnar. "

Bókun PD samþykkt samhljóða og afgreiðslunni vísað til nýrrar sveitarstjórnar.
7. 2601009 - Úttekt á slökkviliði
Lögð fram úttekt á Slökkviliði Borgarbyggðar sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) framkvæmdi s.l. haust.
HMS óskar eftir að niðurstöður úttektarinnar verði tekin til umfjöllunar í sveitarstjórn.

Lagt fram.
Úttekt - Slökkvilið Borgarbyggðar - Skorradalshreppur.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
13. 2605002F - Skipulags- og byggingarnefnd - 201
Lögð fram fundargerð frá 15. maí s.l.
Fundargerðin samþykkt í öllum 4 liðum.
13.1. 2605003F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 85
Fundargerð lögð fram til kynningar
13.2. 2604004 - Indriðastaðahlíð 134, breyting deiliskipulags
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 16. apríl 2026 til 14. maí 2026. Engin athugasemd eða umsögn barst á auglýsingartíma grenndarkynningar.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til HMS og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
13.3. 2604002 - Dagverðarnes 62-65, svæði 8, nýtt deiliskipulag
Málinu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar þar sem farið var fram á lagfæringar á deiliskipulagstillögu skv. ábendingum nefndarinnar. Tillaga er aftur lögð fram til afgreiðslu, að beiðni landeiganda Dagverðarness. Um er að ræða 6,4 ha svæði fyrir neðan Skorradalsveg (508). Ekki er þörf á lýsingu skipulagsverkefnis þar sem allar megin forsendur deiliskipulags liggja fyrir í Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 og er í samræmist stefnu aðalskipulagsins.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja deiliskipulag frístundalóða Dagverðarness 62, 63, 64 og 65 á svæði 8 til auglýsingar sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
13.4. 2605003 - Skógrækt í landi Stóru Drageyrar, framkvæmdaleyfisumsókn
Land og skógur hefur lagt fram umsókn um framkvæmdaleyfi um skógrækt í landi Stóru Drageyrar í samræmi við Aðalskipulag Skorradalshrepps 2010-2022. Um er að ræða gróðursetningu 30.000 skógarplantna vor/sumar 2026. Stærð svæðis eru tæpir 19 ha. Tekið hefur verið tillit til svæða til þyrlulendinga Þ2 og Þ3.
Skipulags- og byggingarnefnd boðar Skógarvörð á Vesturlandi á fund nefndarinnar þar sem stefna aðalskipulags sveitarfélagsins varðandi skógrækt verður kynnt og Landi og skógi gefið tækifæri á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, málinu frestað.
14. 2605004F - Skipulags- og byggingarnefnd - 202
Lögð fram fundargerð frá 18. maí s.l.
Liður fundargerðarinar samþykktur.
14.1. 2605003 - Skógrækt í landi Stóru Drageyrar, framkvæmdaleyfisumsókn
Málinu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar. Fundur haldinn með Narfa Hjartarsyni og Páli Sigurðssyni frá Landi og skógi.
Skipulags- og byggingarnefnd gerði grein fyrir stefnu aðalskipulags sveitarfélagsins og gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum Land og skóga varðandi skógrækt. Land og skógur vinna að málinu áfram og mun senda inn uppfærð gögn í samræmi við umræður á fundinum.
Fundargerðir til kynningar
8. 2605007 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar 2026
Lögð fram fundargerð nr 202
202_2026 0518_Samþykkt fundargerð.pdf
9. 2602003 - Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga árið 2026
Lagðar fram fundargerðir nr. 997 og 998
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 997.pdf
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 998.pdf
10. 2605008 - Fundargerðir Faxaflóahafna 2026
Lögð fram fundargerð Faxaflóahafna nr, 264 - 267
Fundargerð 264. fundar Faxaflóahafna 23012026.pdf
Fundargerð 265. fundar Faxaflóahafna 2702026.pdf
Fundargerð 266. fundar Faxaflóahafna 20032026 - Teamsfundur (1).pdf
Fundargerð 267. fundar Faxaflóahafna 2204026 (1).pdf
11. 2601008 - Fundargerðir undirbúningsstjórnar sameiningar sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Lagðar fram til kynningar fundargerðir nr. 8 og 9
8. fundur undirbúningsstjórnar 22.04.2026.pdf
9. fundur undirbúningsstjórnar 20.05.2026.pdf
12. 2605013 - Fundargerðir húsnefndar Brúnar
Lagðar fram tvær fundargerðir Húsnefndar Brúnar.
Stjórnarfundur 200918.pdf
20241002-Fundargerð.pdf
Skipulagsmál
15. 2604002 - Dagverðarnes 62-65, svæði 8, nýtt deiliskipulag
Um er að ræða deiliskipulagstillögu á 6,4 ha svæði fyrir neðan Skorradalsveg (508). Ekki er þörf á lýsingu eða kynningu skipulagsverkefnis þar sem allar megin forsendur deiliskipulags liggja fyrir í Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 og samræmist stefnu þess. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja deiliskipulag frístundalóða Dagverðarness 62, 63, 64 og 65 á svæði 8 til auglýsingar sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hreppsnefnd samþykkir deiliskipulag frístundalóða Dagverðarness 62, 63, 64 og 65 á svæði 8 til auglýsingar sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að fallið verði frá lýsingu skipulagsverkefnis og kynningu tillögu þar sem forsendum hennar og umhverfismat samræmist stefnu aðalskipulagsins sbr. 3. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Óska skal umsagnar lögbundinna umsagnaraðila um tillögu deiliskipulagsins sem eru Heilbrigðiseftirlits Vesturlands (HeV), Land og skógur, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun, Náttúruverndarstofnun, Slökkviliðs Borgarbyggðar og Vegagerðin. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
d132-Dagverðarnes_A2_2000_20260417.pdf
16. 2604004 - Indriðastaðahlíð 134, breyting deiliskipulags
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 16. apríl 2026 til 14. maí 2026. Engin athugasemd eða umsögn barst á auglýsingartíma grenndarkynningar. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til HMS og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til HMS og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
JEE oddviti bókar eftirfarandi: "Þetta er síðasti fundur hreppsnefndar Skorradalshrepps. Ég vil þakka kærlega fyrir samstarfið og óska íbúum Skorradals til hamingu með sameininguna. Einnig vil ég óska nýrri sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps velfarnaðar."

PD bókar eftirfarandi: "Þakkar kærlega fyrir 28 ára setu í hreppsnefnd Skorradalshrepps og hér með lýkur yfir 1000 ára sögu Skorradalshrepps."


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:30 

Til bakaPrenta