Til bakaPrenta
Hreppsnefnd - 184

Haldinn á Hvanneyri,
21.06.2023 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Hreppsnefndarmaður,
Jón E. Einarsson Hreppsnefndarmaður,
Guðný Elíasdóttir Hreppsnefndarmaður,
Óli Rúnar Ástþórsson Hreppsnefndarmaður,
Kristín Jónsdóttir Hreppsnefndarmaður,
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2206003 - Kjör oddvita
Samkvæmt samþykktum Skorradalshrepps í júní ár hvert skal kjósa oddvita til eins árs.
Kosning oddvita til eins árs.
Kosning fór þannig:
Jón Eiríkur Einarssonar, 3 atkvæði
Pétur Davíðsson, 1 atkvæði
1 auður seðill.
Jón er því réttkjörinn oddviti til eins árs.
2. 2206004 - Kjör varaoddvita
Samkvæmt samþykktum Skorradalshrepps í júní ár hvert skal kjósa varaoddvita til eins árs.
Kosning varaoddvita til eins árs.
Guðný Elíasdóttir fékk 3 atkvæði.
Kristín Jónsdóttir fékk 1 atkvæði.
1 auður seðill.
Guðný Elíasdóttir kjörinn því varaoddviti til eins árs.
3. 2306009 - Siðareglur sveitarstjórnar
Lagðar fram til fyrri umræðu. Farið yfir siðareglur og þær endurskoðaðar. Samþykkt að vísa þeim til seinni umræðu.
4. 2208002 - Fjárhagsstaða sveitarfélagsins
Farið yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Lagt fram.
5. 2305001 - Ársreikningur Skorradalshrepps 2022
Þann 15.maí sl. var ársreikningur Skorradalshrepps 2022 samþykktur.
Gleymdist að bóka niðurstöðuna. Niðurstaða A-hluta er neikvæð um 24,6 milljónir og niðurstaða samstæðunar er neikvæð um 21,2 milljónir.
6. 2306010 - Skólaakstur
Oddviti fer yfir stöðu mála varðandi skólaakstur.
Samþykkt að fara yfir skólakstursmálin fyrir næsta fund.
7. 2306006 - Jafnréttisáætlun
Tekið fyrir erindi frá Jafnréttisstofu um gerð jafnréttisáætlun sveitarfélagsins fyrir 2022-2026.
Oddvita falið að svara Jafnréttisstofu.
8. 2306004 - Stjórnsýsluendurskoðun 2022
Farið yfir stjórnsýsluendurskoðun 2022.
Lagt fram.
9. 2206014 - Tilkynning um aðalfund Faxaflóahafna sf.
Boð um aðalfund Faxaflóahafna sf. þann 30. júní n.k.
Samþykkt að Jón Eiríkur Einarsson fari á fundinn. Til vara Óli Rúnar
Ástþórsson.
Fundargerðir til staðfestingar
10. 2306001F - Skipulags- og byggingarnefnd - 173
Lögð fram fundargerð frá 6. júní s.l.
Fundargerðin samþykkt í öllum 8 liðum.
10.1. 2306002 - Umhverfismatsdagurinn 2023 - Loftslag og umhverfismat
Umhverfismatsdagurinn, árlegt málþing Skipulagsstofnunar um umhverfismat, fer fram þann 8. júní nk. Málþingið verður helgað þætti loftslagsbreytinga þegar kemur að umhverfismati. Nánari upplýsingar um viðburðinn má nálgast á vef stofnunarinnar.
Málið lagt fram til kynningar
10.2. 2306001 - Kerfisáætlun 2023-2032
Kerfisáætlun Landsnets, ásamt framkvæmdaáætlun og umhverfisskýrslu, er nú í opnu umsagnarferli sem stendur til 30. júní 2023. Opinn fundur var haldinn á Hótel Hamri þann 16. maí sl. Skipulagsfulltrúi mætti á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins. Hægt er að nálgast tillöguna á eftirfarandi slóð: https://landsnet.is/page/777a9be4-c458-4f10-b5ac-c37a4e7b168e
Skipulagsfulltrúi gerði grein fyrir fundinum sem haldinn var á Hótel Hamri. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að vinna umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
10.3. 2305004F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 71
Fundargerð lögð fram til kynningar
10.4. 2206011 - Aðalskipulag Skorradalshrepps
Hreppsnefnd afgreiddi á 183. fundi sínum að ekki væri þörf á heildar endurskoðun Aðalskipulags Skorradalshrepps.
Skipulags- og byggingarnefnd ætlar að hefja vinnu við endurskoðun á stefnumörkun um skógrækt og tengd mál.
10.5. 2306003 - Endurskoðun stefnumörkunar skógræktar, breyting aðalskipulags
Nefndin telur það aðkallandi að endurskoða stefnumörkun um skógrækt og tengd mál.
Skipulags- og byggingarnefnd mun vinna málið áfram.
10.6. 1704004 - Hreinsun á inntakslóni, framkvæmdaleyfi
Lögmaður sveitarfélagsins var falið að upplýsa dómsmálaráðuneytið um skort á refsiheimildum í lögum vegna brota fyrirtækja á lagaákvæðum varðandi umhverfisvernd. Erindið var sent inn til dómsmálaráðuneytisins þann 8. mars 2023.
Erindi lagt fram og kynnt.
Fundargerðir til kynningar
11. 2306005 - Fundargerðir nr. 926,927,928 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagðar fram.
12. 2306007 - Fundargerð Faxaflóahafna sf. nr.231
Lögð fram
13. 2306008 - Fundargerð nr. 181, 182 og 183 í stjórn Heilbrigðsnefndar Vesturlands
Lagðar fram
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:15 

Til bakaPrenta