1. 2312007 - Varnarstífla og uppmokstur á seti í inntakslóni Andakílsárvirkjunar, umsókn um framkvæmdaleyfi
Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundina styrkingu á jarðvegsstíflu við inntakslón Andakílsárvirkjunar. Um er að ræða 2500 m3 af stórgrýti sem verður hlaðið loft megin við núverandi stíflu. Efninu verði hlaðið í sömu hæð og núverandi stífla, um 59 m y.s. Búið er að sækja um þennan hlut framkvæmdarinnar áður og verið fjallað um það á 174. og 176. fundi nefndarinnar. Í þessar framkvæmdaleyfisumsókn er enn fremur sótt um að fjarlægja setefni úr botni nyrðri hluta lónsins. Setefnið verður flutt til haugsvæða í nágrenni inntakslónsins í Borgarbyggð, magn efnis sem um ræðir er 70.000 m3 (plús/mínus 15.000 m3). Framkvæmdartími er áætlaður á árinu 2024. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir framkvæmdasvæðið. Leyfi landeiganda liggur ekki fyrir. Virkjanaleyfi liggur ekki fyrir. Gögn eru ekki í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Fyrir fundinum liggur samantekt skipulagsfulltrúa á gögnum sem vantar og atriðum sem talin eru þess eðlis að umsókn fullnægi ekki 7. gr. reglugerðar 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að gefa umsækjanda kost á að afla þeirra gagna sem þar er rætt um, eða leggja fram rökstuðning fyrir þeirri skoðun að ekki sé þörf á að afla þeirra, sé það skoðun umsækjanda. Að því gerðu verði málið tekið fyrir að nýju af nefndinni og ákvörðun tekin.