Til bakaPrenta
Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 86

Haldinn á Hvanneyri,
20.05.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Aðalmaður,
Sæmundur Víglundsson Embættismaður,
Fundargerð ritaði: Sæmundur Víglundssson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Byggingarleyfismál
1. 2603006 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vatnsendahlíð 103 - Flokkur 1
Fundur vegna stöðvunar framkvæmda á lóðinni. Mættir voru auk byggingafulltrúa, Pétur Davíðsson, formaður Skipulags- og bygginganefndar Skorradals og Ólafur Magnússon fulltrúi eiganda.
Farið var yfir stöðu mála, verkstöðvun er í gildi. Óskað eftir skýrari gögnum frá aðalhönnuði hússins áður en frekar verður aðhafst í málinu.
 
Gestir
Ólafur Magnússon -
2. 2201007 - Indriðastaðahlíð 166, stöðvun framkvæmda.
Fulltrúar Indriðastaðahlíðar 166, höfðu óskað eftir fundi vegna stöðvunar framkvæmda og óskað leibeininga um framhaldið.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi skal mænishæð frá gólfi fyrir frístundahús vera að hámarki 5.5 m og 3.8 m fyrir aukahús. Haft skal sem viðmið að gólfhæð og hæð verandar yfir landi yfirstígi ekki 1.5 m. Skipulags- og byggingarnefnd hafnar umsókn um að kjallari og sökkulveggir verði sjáanlegar þar sem að umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi og byggingarskilmálum þess. Byggingarfulltrúa falið að upplýsa um niðurstöðu nefndarinnar.
Mættir auk byggingafulltrúa, Pétur Davíðsson, Tómas Arnarson og Ingi Gunnar Þórðarson.

Staðan rædd og lauk fundi án niðurstöðu. Fulltrúar eiganda telja að ekki sé þörf á deiliskipulagsbreytingu, telja að í gildandi deiliskipulagi komi ekkert fram sem sé í andstöðu við það sem framkvæmt hefur verið.
 
Gestir
Tómas Arnarsson -
Ingi Gunnar Þórðarson -
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:30 

Til bakaPrenta