| |
| 1. 1202023 - Aðgangur að örnefnum af sveitarfélaginu. | |
| Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir samning við Sigurgeir og að vinnan fari af stað. Stefnt er að vinnu ljúki fyrir sumarlok 2026 og að Sigurgeir afhendi ofangreind gögn til Náttúrufræðistofnunar. | | |
|
|
| 3. 1802001 - Húsakönnun | |
| Seinni áfangi húsakönnun lög fram og kynnt. Samningur miðaði við úttekt á 37 húsum, en þegar endanlegur listi frá sveitarfélaginu lá fyrir reyndust húsin vera 62. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir viðbótarkostnað vegna umræddrar vinnu. | | Skýrsluform 26.05.2026.pdf | | |
|
| |
| 4. 2605006F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 86 | | Fundargerð lögð fram til kynningar | 4.1. 2603006 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vatnsendahlíð 103 - Flokkur 1 Farið var yfir stöðu mála, verkstöðvun er í gildi. Óskað eftir skýrari gögnum frá aðalhönnuði hússins áður en frekar verður aðhafst í málinu. | 4.2. 2201007 - Indriðastaðahlíð 166, stöðvun framkvæmda.
Staðan rædd og lauk fundi án niðurstöðu. Fulltrúar eiganda telja að ekki sé þörf á deiliskipulagsbreytingu, telja að í gildandi deiliskipulagi komi ekkert fram sem sé í andstöðu við það sem framkvæmt hefur verið. | | |
|
| |
| 5. 2605010 - Birkimói Grundarland, merkjalýsing | |
| Málinu frestað og lagt til að unnin verði deiliskipulagsbreyting. | | af1392- Birkimói_A4_2500_combined_20260527.pdf | | |
|
| 6. 2605014 - Indriðastaðir-Dyrholt, merkjalýsing | |
| Drög að merkjalýsingu, sem sveitarfélagið hefur kostað fyrir deiliskipulagssvæði Dyrholts í landi Indriðastaða, lögð fram og kynnt. Skipulags- og byggingarnefnd felur merkjalýsanda að ljúka við framlögð drög merkjalýsingar. Þar sem fórst fyrir að ljúka þessari vinnu fyrir gildistöku laga um merkjalýsingu við stofnun lóða árið 2022 leggur skipulags- og byggingarnefnd til að skráningargjöld nýrra landeigna verði greidd af sveitarfélaginu. | | af1449-Indriðastaðir_20260528_opt.pdf | | |
|
| 7. 2605015 - Dagverðarnes-svæði 9, merkjalýsing | |
| Drög að merkjalýsingu, sem sveitarfélagið hefur kostað fyrir deiliskipulagssvæði frístundabyggðar í Dagverðarnesi á svæði 9, lögð fram og kynnt. Skipulags- og byggingarnefnd felur merkjalýsanda að ljúka við framlögð drög merkjalýsingar. | | af1550-Dagverðarnes-svæði 9_20260528.pdf | | |
|
| |
| 8. 2605011 - Byggðakjarni í landi Grundar, breyting deiliskipulags | |
| Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við nýtt sameinað sveitarfélag að unnin verði breyting deiliskipulags byggðakjarna í landi Grundar þannig að hægt verði að ljúka merkjalýsingu landeigna innan Birkimóa Grundarlands og að skipulagsfulltrúa Skorradalshrepps verði falið að vinna málið áfram. | | 2001-158 Gildandi DSK Byggðakjarni í landi Grundar.pdf | | 2001-158 Gildandi DSK greinarg. og skilmálar.pdf | | 2001-158.pdf | | |
|
| 9. 1402009 - Fitjahlíð, deiliskipulag Kiðhúsbala | |
| Skipulags- og byggingarnefnd getur fallist á að í deiliskipulagi frístundabyggðar Kiðhúsbala eru byggingarreitir rúmir og staðsetning þegar byggðra frístundahúsa ofarlega í lóð, en ósk sveitarfélagsins byggðist á því að undanþágan yrði mögulega fordæmisgefandi fyrir hlíðina ef eða þegar deiliskipulag yrði unnið af allri hlíðinni og sjá má á greiningu er varðar fjarlægð frá Skorradalsvegi. Skipulags- og byggingarnefnd leggur ríka áherslu á að skipulagið nái fram að ganga og er því tilbúin til að auka fjarlægðina í 30 metra, en það er sú fjarlægð sem brýn þörf er á að fá undanþágu fyrir vegna frístundahúss á lóð Fitjahlíðar 51 og allt málið í raun snýst um og bendir á í því samhengi umfjöllun í kafla 1.2 í samþykktu deiliskipulagi frístundabyggðar Kiðhúsbala. Skipulags- og byggingarnefnd óskar eftir undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra á d. lið gr. 5.3.2.5. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 um að fjarlægð byggingarreita frá Skorradalsvegi (508) í samþykktu deiliskipulagi frístundabyggðar Kiðhúsbala verði 30 m í stað 100 m, en til vara að undanþága verði 30 m í stað 100 m fyrir lóð Fitjahlíð 51 og 40 m í stað 100 m fyrir Fitjahlíð 47, 49 og 53. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. | | Umsögn HMS.pdf | | Fitjahlíð_fjarlægð frá Skorradalsvegi.pdf | | d970-Fitjahlíð_20260220.pdf | | |
|