Til bakaPrenta
Hreppsnefnd - 199

Haldinn á Hvanneyri,
19.09.2024 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Hreppsnefndarmaður,
Jón E. Einarsson Hreppsnefndarmaður,
Guðný Elíasdóttir Hreppsnefndarmaður,
Óli Rúnar Ástþórsson Hreppsnefndarmaður,
Kristín Jónsdóttir Hreppsnefndarmaður,
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2212002 - Þróunarfélag Grundartanga ehf.
Formaður stjórnar og framkvæmdarstjóri fara yfir og kynna málefni Þróunarfélagsins Grundartanga ehf.
 
Gestir
Guðjón Steindórsson -
Ólafur Adolfsson -
2. 2310007 - Styrkvegurinn Bakkakot-Stóra Drageyri
Lagður fram samningur við Hálstak Tryggva ehf. vegna viðhalds á styrkveg frá Felli að Fitjaá.
Farið yfir samninginn og oddvita heimilað að undirrita hann.

Samþykkt.


KJ vék af fundi við afgreiðslu málsins.
3. 2409003 - Samningar um skólaakstur
Lagðir fram samningar um skólaakstur.
Lögð fram drög af samningum um skólaakstur.

Oddvita heimilað að ganga frá þeim og undirrita þá.

Samþykkt

GE vék af fundi við afgreiðslu málsins.
4. 2208002 - Fjárhagsstaða sveitarfélagsins
Farið yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Lagt fram sex mánaðauppgjör og stöðu við fjárhagsáætlun ársins. PD fór yfir stöðuna.
5. 1202023 - Aðgangur að örnefnum af sveitarfélaginu.
Farið yfir stöðu máls.
6. 2007003 - Framlag til byggingar laugarhús Hreppslaugar.
Farið yfir stöðu máls.
7. 2409004 - Fjárhagsáætlun 2025
Undirbúningsvinna rædd.
PD falið að vinna að fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2025.
8. 2409006 - Íbúaskrá 20.ágúst 2024
Farið yfir stöðuna.
Oddvita falið að yfirfara íbúaskrána.
9. 2409013 - Slökkvilið á Vesturlandi - stöðugreining og sviðsmyndir
Undanfarið hefur verið unnið að stöðugreiningu og samstarfmöguleikum slökkviliða á Vesturlandi. Skýrsla um stöðugreiningu lögð fram til kynningar.
10. 2409014 - Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2024
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica 10.-11. október 2024
Samþykkt að 1-2 fulltrúar fari á ráðstefnuna.
11. 2409011 - Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 2024
Ef sveitarfélög hafa áhuga á að ganga í Samtök orkusveitarfélaga þarf að senda erindi þess efnis til stjórnar samtakanna þannig að hægt sé að taka erindið fyrir á aðalfundi sbr. samþykktum samtaka orkusveitarfélaga.
Sveitarstjórn samþykkir að óska eftir inngöngu í Samtök Orkusveitarfélaga.

12. 2409015 - Endurskoðun fjallskilasamþykktar fjallskilaumdæmis stjórnar ABHS
Erindi frá stjórn Fjallaskilaumdæmis ABHS.
Óskað eftir ábendingum og athugasemdum við tillögur að breyttum dagsetningum leita og rétta í endurskoðun fjallskilasamþykkt fyrir 31. ágúst 2024

Ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna.
Fundargerðir til staðfestingar
13. 2409001F - Skipulags- og byggingarnefnd - 182
Lögð fram fundargerð frá daginum í dag 19. september
Fundargerðin samþykkt í öllum 7 liðum.
13.1. 2407001F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 75
Fundargerð lögð fram til kynningar
13.2. 2404022 - Raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
Á 180. fundi nefndarinnar var formanni og lögmanni nefndarinnar falið að svara ráðuneytinu. Athugasemdum sveitarfélagsins var komið á framfæri við Innviðaráðuneytið með erindi dagsett þann 6. maí 2024. Niðurstaða ráðuneytisins er á þá leið að beiðni Landsnets er að svo stöddu synjað um skipan raflínunefndar vegna Holtavörðuheiðarlínu 1. Það er mat ráðuneytisins að ekki sé til staðar ágreiningur á milli framkvæmdaraðila og sveitarfélags eða milli hlutaðeigandi sveitarfélaga vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar.
Erindi sveitarfélagsins og ráðuneytisins lagt fram og kynnt.
13.3. 2407002 - Drög að reglugerð um breytingu á skipulagsreglugerð nr. 902013
Drög að reglugerð um breytingu á skipulagsreglugerð nr. 90/2013, var í samráðsgátt stjórnvalda frá 3.-24. júní 2024. Samkvæmt samráðsgátt var engum boðið til þátttöku í samráði vegna þessa máls sem er nr. S-122/2024 í samráðsgáttinni. Sveitarfélagið sendi inn umsögn vegna þess og andmælir fyrirhugaðri reglugerð.
Umsögn hreppsnefndar lögð fram og kynnt.
13.4. 2204006 - Stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn, breyting aðalskipulags
Tillaga breytingar aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn var auglýst í Morgunblaðinu þann 5. júlí 2024, Lögbirtingablaðinu þann 8. júlí 2024 og á heimasíðu sveitarfélagsins sbr. 1. mgr. 31. skipulagslaga, að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30.gr. sömu laga. Skipulagsstofnun yfirfór framlögð gögn og gerði ekki athugasemdir við að skipulagstillagan yrði auglýst skv. 31. gr. sömu laga. Auglýsingartími tillögunnar var frá 8. júlí- 19. ágúst 2024. Hverjum þeim sem töldu sig eiga hagsmuna að gæta var gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til og með 19. ágúst 2024. Umsagnir bárust frá 12 aðilum, sem sjá má á eftirfarandi slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/130/process.
Skipulagsfulltrúi kynnti innsendar umsagnir. Verið er að vinna í svörum til umsagnaraðila og afgreiðslu málsins frestað.
13.5. 2206020 - Bakkakot, óleyfisframkvæmd
Forsvarsmenn Lands og skógs heimsóttu sveitarfélagið þann 8.7.2024. Markmið heimsóknarinnar var að fara yfir og kynna fyrir Landi og skógi framkvæmdir Skógræktarinnar í landi Stóru Drageyrar, Bakkakots og Stálpastaða sem átti sér stað 2022 og ekki voru í samræmi við gildandi aðalskipulag Skorradalshrepps.
Minnisblað lagt fram og kynnt.
13.6. 2206012 - Stóra Drageyri, óleyfisframkvæmd
Forsvarsmenn Land og skógs heimsóttu sveitarfélagið þann 8.7.2024. Markmið heimsóknarinnar var að fara yfir og kynna fyrir Landi og skógi framkvæmdir Skógræktarinnar í landi Stóru Drageyrar, Bakkakots og Stálpastaða sem átti sér stað 2022 og ekki voru í samræmi við gildandi aðalskipulag Skorradalshrepps.
Minnisblað lagt fram og kynnt
13.7. 2409012 - Stóra-Drageyri, Bakkakot, og Stálpastaðir, úrbætur vegna óleyfisframkvæmda
Land og skógur hefur unnið með málið áfram frá því að fundur var haldinn með sveitarfélaginu og stofnuninni, þ.e. frá 8.7.2024. Farnar hafa verið vettvangsferðir, teknar myndir af stöðunni og asparplöntur hafa verið fjarlægðar í mýri við Dragháls.
Skipulags og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr.13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir áframhaldandi lagfæringum vegna óleyfisframkvæmda í landi Stóru-Drageyrar, Bakkakots og Stálpastaða í samræmi við greinargerð Landgræðslunnar, dags. 8.11.2023 og Aðalskipulag Skorradalshrepps.
Fundargerðir til kynningar
14. 2409005 - Fundargerðir nr. 17 - 21. fundar stjórnar fjallskilaumdæmis Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps
Lagðar fram.
Fjallskilaumdæmi ABHS - 21.pdf
Fjallskilaumdæmi ABHS - 18. (3).pdf
Fjallskilaumdæmi ABHS - 19.pdf
Fjallskilaumdæmi ABHS - 20..pdf
Fjallskilaumdæmi ABHS - 17. fundur.pdf
15. 2409008 - Fundargerð Faxaflóahafna sf. nr.245
Lögð fram
16. 2409009 - Fundargerðir nr. 951 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram.
17. 2409010 - Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, fundir nr. 181 og 182
Lagðar fram.
Skipulagsmál
18. 2409012 - Stóra-Drageyri, Bakkakot og Stálpastaðir, úrbætur vegna óleyfisframkvæmda
Skipulags og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita Land og skógi framkvæmdaleyfi sbr.13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir áframhaldandi lagfæringum vegna óleyfisframkvæmda í landi Stóru-Drageyrar, Bakkakots og Stálpastaða í samræmi við greinargerð Landgræðslunnar, dags. 8.11.2023 og Aðalskipulag Skorradalshrepps.
Hreppsnefnd samþykkir að skipulagsfulltrúi veiti Land og skógi framkvæmdaleyfi sbr.13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir áframhaldandi lagfæringum vegna óleyfisframkvæmda í landi Stóru-Drageyrar, Bakkakots og Stálpastaða í samræmi við greinargerð Landgræðslunnar, dags. 8.11.2023 og aðalskipulag Skorradalshrepps.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:45 

Til bakaPrenta