Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarnefnd - 198

Haldinn á Hvanneyri,
03.02.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Formaður,
Ingólfur Steinar Margeirsson Varaformaður,
Sigrún Guttormsdóttir Þormar Varamaður,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir Ritari.
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2601002 - Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033, til kynningar
Samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála skal gera bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar tveimur árum áður en vatnaáætlun tekur gildi. Fyrsta vatnaáætlun Íslands var staðfest í apríl 2022 og er hún í gildi í 6 ár. Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar fjallar um helstu atriði áætlunarinnar. Yfirlitinu er ætlað að gefa innsýn í helstu kafla vatnaáætlunar og hvernig hún verður í meginatriðum sett upp ásamt helstu efnistökum. Frestur til athugasemda er til og með 6. febrúar 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri.
Bradabirgdayfirlit_vatnaaaetlunar_2028-2033_DROG_TIL_KYNNINGAR.pdf
2. 2601003 - Vatnshlot, uppfærsla á 9. kafla vatnaáætlunar 2022-2027
Umhverfis- og orkustofnun ber að meta hvort vatnshlot teljist manngert eða mikið breytt samkvæmt 13. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Slík vatnshlot greina sig frá náttúrulegum vatnshlotum vegna þess umtalsverða álags sem þau hafa orðið fyrir vegna mannlegra vatnsformfræðilegra breytinga. Dæmi um slíkt álag eru vatnsaflsvirkjanir, vegagerð, hafnargerð og þverun fjarða. Þar sem slíkt álag er til staðar getur vistfræðilegt ástand vatnshlota verið frábrugðið því sem viðgengst við náttúrulegar aðstæður.

Á árunum 2021-2024 voru unnar skýrslur á grundvelli verksamninga við fagstofnanir sem Umhverfis- og orkustofnun gerir. Markmið verkefnanna var að afla gagna og þróa aðferðir og kerfi sem nýtast við skilgreiningu manngerðra og mikið breyttra vatnshlota sem og við mat á vistmegni þeirra. Í meðfylgjandi greinagerð er gert grein fyrir þeirri vinnu og eru alls 16 vatnshlot skilgreind sem manngerð vatnshlot og 35 vatnshlot eru skilgreind sem mikið breytt. Jafnframt hefur 9. kafli vatnaáætlunar 2022-2027 verið leiðréttur og uppfærður sbr. 5. mgr. 19. gr. laga um stjórn vatnamála.

Á grundvelli þeirra sjónarmiða sem liggja að baki lögum um stjórn vatnamála hefur stofnunin ákveðið að setja framangreinda skilgreiningu á mikið breyttum og manngerðum vatnshlotum í opinbera kynningu. Markmiðið er að gefa hagsmunaaðilum og almenningi kost á að koma á framfæri athugasemdum. Frestur til að skila athugasemdum við matið er til og með 20.02.2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar Skilgreining á manngerðum og mikið breyttum vatnshlotum.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri.
Uppfærður9.kaflivatnaáætlunar2022-2027.pdf
Fylgiskjal2b_TilnefningaprófávatnshlotumOV.pdf
Fylgiskjal2a_TilnefningarpróffyrirvatnshlotOV.pdf
Fylgiskjal1b_TilnefningaprófvatnshlotávirkjanasvæðumLV (2).pdf
Fylgiskjal 1a.pdf
Greinargerðumskilgreiningarámanngerðumogmikiðbreyttumvatnshlotum2025.pdf
Skipulagsmál
3. 2404022 - Raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála tók fyrir mál nr. UUA2512002 þann 21.1.2026 þar sem ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá 13. nóvember 2025 um skipun raflínunefndar vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 er kærð af hálfu sveitarfélagsins. Úrskurðarnefnd vísar kærumálinu frá.
Úrskurður lagður fram og kynntur. Málinu frestað.
UUA2512002 Skipun raflínunefndar vegna Holtavörðuheiðarlínu.pdf
Framkvæmdarleyfi
4. 2601004 - Syðstu-Fossar, umsögn vegna framkvæmdaleyfis í Borgarbyggð
Sótt er um framkvæmdaleyfi til Borgarbyggðar vegna vegagerðar og undirbúning tippsvæða vegna fyrirhugaðra endurbóta á mannvirkjum við inntakslón Andakílsárvirkjunar, uppmokstur á seti sem og viðhaldi á lóninu sjálfu. Framkvæmdin fer fram í sveitarfélaginu Borgarbyggð. Borgarbyggð grenndarkynnti í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 18.07.25 til og með 24.08.25. Sjö athugasemdir bárust á kynningartíma. Á fundi skipulags- og byggingarnefndar nr. 81 þann 5. desember 2025 var málið tekið fyrir og nefndin óskaði eftir uppfærðum gögnum og að málið yrði grenndarkynnt aftur.

Með hliðsjón af ákvörðun skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar og í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er þér hér með kynnt málið að nýju og boðið að gera skriflegar athugasemdir við fyrirhugaðar framkvæmdir áður en erindið verður endanlega afgreitt. Grenndarkynningargögn eru aðgengileg inni á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar https://skipulagsgatt.is mál nr. 46/2026.

Skriflegum athugasemdum, ef einhverjar eru, skal komið á framfæri inni á Skipulagsgáttinni eða senda í þjónustuver Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is eigi síðar en 13. febrúar 2026.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að koma athugasemdum á framfæri.
Grenndarkynningar bréf.pdf
Syðstu-Fossar-framkvæmdaleyfisumsókn.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta