Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarnefnd - 199

Haldinn á Hvanneyri,
24.02.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Formaður,
Ingólfur Steinar Margeirsson Varaformaður,
Sigrún Guttormsdóttir Þormar Varamaður,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir Ritari.
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2602009 - Leiðbeiningar um gerð samgöngumats
Vegagerðin vekur athygli á nýútgefnum leiðbeiningum um gerð samgöngumats.
Samgöngumat er mikilvægt fyrir Vegagerðina svo mögulegt sé að kortleggja áform sveitarfélaga með tilliti til áhrifa þeirra á umferð og samgönguinnviði. Með samgöngumati fá sveitarfélög jafnframt betri mynd af áhrifum uppbyggingar á samgöngur innan viðkomandi sveitarfélags.
Æskilegt er að vinna samgöngumat eins snemma, í undirbúningi framkvæmda eða uppbyggingar, og kostur er á enda nýtist sú vinna á síðari stigum.

Leiðbeiningar lagðar fram og kynntar
Leiðbeiningar um gerð samgöngumats.pdf
2. 2601003 - Vatnshlot, uppfærsla á 9. kafla vatnaáætlunar 2022-2027
Á 198. fundi skipulags- og byggingarnefndar var skipulagsfulltrúa falið að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri.
Umsögn lögð fram og kynnt.
Umsögn Skorradalshrepps.pdf
Greinargerðumskilgreiningarámanngerðumogmikiðbreyttumvatnshlotum2025.pdf
Uppfærður9.kaflivatnaáætlunar2022-2027.pdf
Fylgiskjal 1a.pdf
Fylgiskjal1b_TilnefningaprófvatnshlotávirkjanasvæðumLV (2).pdf
Fylgiskjal2a_TilnefningarpróffyrirvatnshlotOV.pdf
Fylgiskjal2b_TilnefningaprófávatnshlotumOV.pdf
3. 2601002 - Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033, til kynningar
Á 198. fundi skipulags- og byggingarnefndar var skipulagsfulltrúa falið að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri.
Nefndin telur eftir frekari skoðun á framlögðum gögnum að ekki sé þörf á að gera athugasemdir við málið.
Bradabirgdayfirlit_vatnaaaetlunar_2028-2033_DROG_TIL_KYNNINGAR.pdf
4. 2206024 - Vatnshorn, friðlýsing
Embættið hefur átt fundi með Náttúruverndarstofnun sem fer með málið. Staða málsins er að stofnunin hefur sent erindi til Lands og skóga sem er umráðandi lands, þar sem óskað er eftir afstöðu til stækkun friðlýsingarsvæðis í landi Vatnshorns.
Farið yfir málið og staða þess kynnt.
Skipulagsmál
5. 2404022 - Raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
Málinu var frestað á 198. fundi skipulags- og byggingarnefndar. Minnisblað lögmannsins kynnt og einnig viðbrögð lögfræðings Sambands íslendskra sveitarfélaga á minnisblaðinu.
Minnisblað lögmanns sveitarfélagsins lagt fram og kynnt. Í ljósi álits lögmanns leggur skipulags- og byggingarnefnd til við hreppsnefnd að veita lögmanni sveitarfélagsins heimild til að nota öll tiltæk ráð og heimildir til að stjórnskipuleg staða sveitarfélagsins og þar með annarra sveitarfélaga gagnvart ríkinu verði skýrð.
6. 1402009 - Fitjahlíð, deiliskipulag Kiðhúsbala
Málið var tekið fyrir á 188. fundi skipulags- og byggingarnefndar. Lögð er fram uppfærð deiliskipulagstillaga og tillaga að viðbrögðum við umsögnum og athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma tillögunnar. Auglýst tillaga er á eftirfarandi slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/67.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði falið að senda hlutaðeigandi aðilum afstöðu sveitarfélagsins til athugasemda sem bárust á auglýsingartíma tillögunnar.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja auglýst deiliskipulag með áorðnum breytingum sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Enn fremur leggur skipulags- og byggingarnefnd til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði falið að óska eftir undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra á d. lið gr. 5.3.2.5. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 fyrir lóðir ofan vegar, þ.e. Fitjahlíð 47, 49, 51 og 53 þannig að heimilað verði að byggja allt að 25 m frá Skorradalsvegi (508) þar sem hár kantur er niður við hann og minni líkur á að umferðarhljóð berist upp að fyrirhuguðum byggingum. Lóðir eru einnig litlar og þröngar og áhugi er fyrir frekari uppbyggingu innan lóðanna. Sveitarfélagið bendir einnig á að skilgreind er gönguleið meðfram vegi í samræmi við verndarsvæði í byggð, sem kallar á hægari umferð. Minni hraði bætir hljóðvist innan byggðarinnar og gerir það að verkum að hægt er að byggja nær vegi en ella.
d970-Fitjahlíð_20260220.pdf
Viðbrögð við umsögnum_20260224.pdf
Framkvæmdarleyfi
7. 2601004 - Syðstu-Fossar, umsögn vegna framkvæmdaleyfis í Borgarbyggð
Málið var tekið fyrir á 198. fundi skipulags- og byggingarnefndar þar sem skipulagsfulltrúa var falið að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri.
Athugasemdum nefndarinnar var komið á framfæri á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar sjá á eftirfarandi slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/46 . Athugasemdir lagðar fram.
Athugasemdir Skorradalshrepps.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta