Til bakaPrenta
Hreppsnefnd - 220

Haldinn á Hvanneyri,
18.02.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Hreppsnefndarmaður,
Jón E. Einarsson Hreppsnefndarmaður,
Guðný Elíasdóttir Hreppsnefndarmaður,
Óli Rúnar Ástþórsson Hreppsnefndarmaður,
Kristín Jónsdóttir Hreppsnefndarmaður,
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður
JEE óskaði eftir að mál nr. 6, 7 og 10 verði tekin á dagskrá, þó það þau væru ekki í boðaðri dagskrá.
Samþykkt.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2301004 - Ljóspunktur ehf.
Erindi frá ÓRÁ
Farið yfir málið. Samþykkt að fela JEE og ÓRÁ að vinna að málinu fram að næsta fundi.
2. 2602012 - Erindi frá oddvita
Farið stöðu mála í aðdraganda sameiningar.
Oddvita falið að vinna málið áfram.
3. 2602013 - Samningur við KPMG hf. vegna sameiningarmála
Lagður fram til kynningar viðauki við samning við KPMG hf.
Viðauki við samning um ráðgjöf_KPMG.pdf
4. 2602014 - Skipun fulltrúa í Raflínunefnd
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið óskar eftir tilnefningu fulltrúa Skorradalshrepps í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1, sbr. ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðherra 14. nóvember sl. að verða við beiðni Landsnets um skipun nefndarinnar.
Farið yfir málið. Ákveðið að fresta afgreiðslu og beðið álits lögfræðings sveitarfélagsins.
Ósk um tilnefningu í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1.pdf
5. 2209014 - Erindi frá oddvita
Lagður fram undirritaður samningur við byggingarfulltrúa til kynningar.
undirritaður samningur.pdf
6. 2602017 - Erindi til Innviðarráðuneytis
Lagt fram erindi til Innviðaráðuneytisins vegna sameiningar Borgarbyggðar og Skorrdalshrepps þar sem listuð eru upp helstu verkefni stjórnar til undirbúnings sameiningar sveitarfélaganna.
Bref til raduneytis staðfesting sameiningar_drög_02.02.2026.pdf
7. 2602016 - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum
Kynnt eru til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.
Sveitarstjórn Skorradalshrepps lýsir áhyggjum af þeim neikvæðu áhrifum sem fyrirhugaðar breytingar geta haft á sveitarfélög, íbúa og þjónustu við samfélagið í heild. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga býr yfir staðbundinni sérþekkingu og reynslu af aðstæðum, atvinnulífi, áhættumati og samfélögum. Með tilfærslu verkefna í miðlægt kerfi ríkisstofnana er veruleg hætta á að þessi þekking glatist, með neikvæðum afleiðingum fyrir íbúa og rekstraraðila. Að auki er hætta á að þjónustustig verði lakara, t.a.m. með aukinni fjarlægð milli þjónustuveitanda og þjónustuþega sem gæti tafið afgreiðslu mála, framkvæmdir og leyfisveitingar.
Með frumvarpinu er lagt til að núverandi heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lagt niður og að um 70% af starfsemi þeirra, þar á meðal tekjuberandi verkefni, flytjist frá sveitarstjórnarstigi til ríkis. Breyting sem gæti leitt til neikvæðra áhrifa á rekstrargrundvöll heilbrigðiseftirlita og skilið sveitarfélög eftir með verkefni sem eru þjónustuháð, tekjulítil og í einhverjum tilvikum ófjármögnuð. Skýrleika vantar um verkefnaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga auk fullnægjandi kostnaðarmats verkefna. Breytingar sem þessar, ættu að byggja á yfirvegun, útfærslum og raunhæfu kostnaðarmati auk fullnægjandi rökstuðnings fyrir uppbroti núverandi kerfis.
Sveitarstjórn Skorradalshrepps kallar eftir því, að áður en ráðist verði í róttæka tilfærslu verkefna og valds frá sveitarfélögum til ríkisstofnana, fari fram heildstætt og gagnsætt mat, í samvinnu við sveitarfélögin, á því hvort markmiðum um aukið samræmi og skilvirkni verði ekki betur náð með því að styrkja núverandi kerfi.

Oddvita falið að senda inn umsögnina.
Fundargerðir til staðfestingar
8. 2601003F - Skipulags- og byggingarnefnd - 198
Lögð fram fundargerð frá 3. febrúar s.l.
Fundargerðin samþykkt í öllum 4 liðum.
8.1. 2601002 - Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033, til kynningar
Samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála skal gera bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar tveimur árum áður en vatnaáætlun tekur gildi. Fyrsta vatnaáætlun Íslands var staðfest í apríl 2022 og er hún í gildi í 6 ár. Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar fjallar um helstu atriði áætlunarinnar. Yfirlitinu er ætlað að gefa innsýn í helstu kafla vatnaáætlunar og hvernig hún verður í meginatriðum sett upp ásamt helstu efnistökum. Frestur til athugasemda er til og með 6. febrúar 2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri.
8.2. 2601003 - Vatnshlot, uppfærsla á 9. kafla vatnaáætlunar 2022-2027
Umhverfis- og orkustofnun ber að meta hvort vatnshlot teljist manngert eða mikið breytt samkvæmt 13. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Slík vatnshlot greina sig frá náttúrulegum vatnshlotum vegna þess umtalsverða álags sem þau hafa orðið fyrir vegna mannlegra vatnsformfræðilegra breytinga. Dæmi um slíkt álag eru vatnsaflsvirkjanir, vegagerð, hafnargerð og þverun fjarða. Þar sem slíkt álag er til staðar getur vistfræðilegt ástand vatnshlota verið frábrugðið því sem viðgengst við náttúrulegar aðstæður.

Á árunum 2021-2024 voru unnar skýrslur á grundvelli verksamninga við fagstofnanir sem Umhverfis- og orkustofnun gerir. Markmið verkefnanna var að afla gagna og þróa aðferðir og kerfi sem nýtast við skilgreiningu manngerðra og mikið breyttra vatnshlota sem og við mat á vistmegni þeirra. Í meðfylgjandi greinagerð er gert grein fyrir þeirri vinnu og eru alls 16 vatnshlot skilgreind sem manngerð vatnshlot og 35 vatnshlot eru skilgreind sem mikið breytt. Jafnframt hefur 9. kafli vatnaáætlunar 2022-2027 verið leiðréttur og uppfærður sbr. 5. mgr. 19. gr. laga um stjórn vatnamála.

Á grundvelli þeirra sjónarmiða sem liggja að baki lögum um stjórn vatnamála hefur stofnunin ákveðið að setja framangreinda skilgreiningu á mikið breyttum og manngerðum vatnshlotum í opinbera kynningu. Markmiðið er að gefa hagsmunaaðilum og almenningi kost á að koma á framfæri athugasemdum. Frestur til að skila athugasemdum við matið er til og með 20.02.2026. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast stofnuninni á netfangið uos@uos.is merktar Skilgreining á manngerðum og mikið breyttum vatnshlotum.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri.
8.3. 2404022 - Raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála tók fyrir mál nr. UUA2512002 þann 21.1.2026 þar sem ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá 13. nóvember 2025 um skipun raflínunefndar vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 er kærð af hálfu sveitarfélagsins. Úrskurðarnefnd vísar kærumálinu frá.
Úrskurður lagður fram og kynntur. Málinu frestað.
8.4. 2601004 - Syðstu-Fossar, umsögn vegna framkvæmdaleyfis í Borgarbyggð
Sótt er um framkvæmdaleyfi til Borgarbyggðar vegna vegagerðar og undirbúning tippsvæða vegna fyrirhugaðra endurbóta á mannvirkjum við inntakslón Andakílsárvirkjunar, uppmokstur á seti sem og viðhaldi á lóninu sjálfu. Framkvæmdin fer fram í sveitarfélaginu Borgarbyggð. Borgarbyggð grenndarkynnti í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar frá 18.07.25 til og með 24.08.25. Sjö athugasemdir bárust á kynningartíma. Á fundi skipulags- og byggingarnefndar nr. 81 þann 5. desember 2025 var málið tekið fyrir og nefndin óskaði eftir uppfærðum gögnum og að málið yrði grenndarkynnt aftur.

Með hliðsjón af ákvörðun skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar og í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er þér hér með kynnt málið að nýju og boðið að gera skriflegar athugasemdir við fyrirhugaðar framkvæmdir áður en erindið verður endanlega afgreitt. Grenndarkynningargögn eru aðgengileg inni á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar https://skipulagsgatt.is mál nr. 46/2026.

Skriflegum athugasemdum, ef einhverjar eru, skal komið á framfæri inni á Skipulagsgáttinni eða senda í þjónustuver Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is eigi síðar en 13. febrúar 2026.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að koma athugasemdum á framfæri.
Fundargerðir til kynningar
9. 2601008 - Fundargerðir að stofnun sameinaðs sveitarfélags Skorradalshrepps og Borgarbyggðar
Lögð fram fundargerð nr. 3
3. fundur undirbúningsstjórnar 21.01.2026.pdf
Önnur mál
10. 2602020 - Trúnaðarmál
Trúnaðarmál fært í trúnaðarmálabók.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:15 

Til bakaPrenta