| |
1. 2309014 - Þinglýst jarðamerki og sveitarfélagamörk | |
Í ljósi stutts andmælafrests svaraði byggingarfulltrúi beiðni héraðsdóms sbr. eftirfarandi: Skorradalshreppur hefur móttekið boðunarbréf í þinghald í máli nr. T 305/2023 hjá Héraðsdómi Vesturlands. Skorradalshreppur hefur þegar með formlegum hætti samþykkt þá landamerkjalýsingu sem fram kemur í skjali því sem deilt er um hvort þinglýsa eigi á jarðirnar Syðstu Fossa og Efri Hrepps, en síðarnefnda jörðin tilheyrir Skorradalshreppi. Sjá má í fundargerðum skipulags- og byggingarnefndar, annars vegar frá 19. september s.l. en það var í framhaldi af gögnum sem bárust byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa í bæði Skorradalshreppi og Borgarbyggð. Einnig er með fundargerð frá 7. desember s.l. en þar er bókun eftir fund með settum sýslumanni er varðar fyrrnefnd mál. Skorradalshreppur telur æskilegt að landamerkjunum sé þinglýst, en þau fela í sér staðfestingu á þegar mörkuðum landamerkjum með nútímatækni. Engu var verið að breyta. Af þessari ástæðu hlutaðist Skorradalshreppur um að skjalið yrði sent í þinglýsingu og greiddi þinglýsingargjald. Er því rangt í ákvörðun sýslumanns að Skorradalshreppur hafi ekki samþykkt landamerkin. Skorradalshreppur sér ekki ástæðu til að gerast aðili að dómsmálinu fyrir sitt leyti. Svar byggingarfulltrúa staðfest. | | |
|
| |
2. 1402009 - Fitjahlíð, deiliskipulag Kiðhúsbala | |
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að kynna deiliskipulag frístundabyggðar í Kiðhúsbala í landi Fitja, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m. s. br. Ekki er þörf á lýsingu skipulagsverkefnis þar sem allar megin forsendur deiliskipulags liggja fyrir í Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 og um er að ræða gamla gróna frístundabyggð sem byggðist upp á árunum 1970 til 1983. Lagt er til að skipulagstillaga verði send til umsagnar Minjastofnunar Íslands, Umhverfisstofnunar, Vegagerðarinnar, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, Veðurstofu Íslands og Slökkviliðs Borgarbyggðar. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. | Fitjahlíð_drög 2_20240117.pdf | | |
|
| |
3. 2401001 - Óskað úrskurðar 145/2023 hjá ÚUA vegna framkvæmdaleyfis á Indriðastöðum | |
Erindi sveitarfélagsins til Úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála lagt fram og kynnt. Skipulagsfulltrúi falið að vinna málið áfram. | | |
|