Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarnefnd - 190

Haldinn á Hvanneyri,
09.07.2025 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Formaður,
Ingólfur Steinar Margeirsson Varaformaður,
Sigrún Guttormsdóttir Þormar Varamaður,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir Ritari.
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2504009 - Kerfisáætlun 2025-2034, umhverfismat áætlana
Umsögn var sent til Skipulagsstofnunar er varðar umhverfismat áætlana fyrir vinnslu Kerfisáætlunar Landsnets 2025-2034.
Umsögn lögð fram og kynnt.
Verkefnis- og matslýsing fyrir vinnslu Kerfisáætlunar Landsnets 2025-2034.pdf
Fundargerð
2. 2506001F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 78
Fundargerð lög fram til kynningar
2.1. 2506007 - Vatnsendahlíð 200 , umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Sótt er um að hús, 20 m2, sem flutt var á lóðina og hefur stöðuleyfi verði skráð sem sumarhús.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingafulltrúa.
2.2. 2506006 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hrísás 16 - Flokkur 1
Sótt er um að byggja 104 m2 frístundarhús á lóðinni.
Byggingaráformin eru samþykkt
2.3. 2506003 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Fitjahlíð 67B - Flokkur 1
Sótt er um að byggja frístundarhús 58,5 m2 ásamt vinnustofu 16,6 m2.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa.
2.4. 2506002 - Refsholt 23 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Tilkynnt um framkvæmd sem er ekki tilkynningarskyld. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að reisa 15,0 m2 geymslu ásamt frístundarhúsi.
Samkv. byggingareglugerð nr. 112/2012, gr. 2.3.5. kemur m.a. fram "Eftirfarandi minniháttar mannvirki og framkvæmdir eru undanþegnar byggingarleyfi. Þær eru einnig undanþegnar byggingarheimild og tilkynningarskyldu skv. 2.3.6. gr. enda séu þær í samræmi við deiliskipulag og önnur ákvæði reglugerðar þessarar sem við eiga hverju sinni."

Samkv. f-lið sömu greinar kemur m.a. fram "f. Smáhýsi sem er að hámarki 15 m2 og mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs. Sé smáhýsið minna en 3,0 m frá aðliggjandi lóð þarf samþykki eigenda aðliggjandi lóðar. Slík smáhýsi eru ekki ætluð til gistingar eða búsetu."

Hinsvegar að í gildandi deiliskipulagi III. áfanga Refsholt kemur fram m.a. fram eftirfarandi í byggingarskilmálum um húsgerðir: "Leyfilegt verður að byggja eitt hús á hverri lóð allt að 150 m2 að grunnfleti. Því til viðbótar er leyfilegt að byggja allt að 15 m2 geymslu sem tengist húsi eða verönd."

Afgreiðslunefnd telur óljóst, hvort við á í þessu tilfelli byggingareglugerð eða gildandi deiliskipulag.

Vísað til Skipulags- og byggingarnefndar.
2.5. 2505008 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Horn 134053 - Flokkur 1
Sótt er um að byggja 432,5 m2 vélaskemmur.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa.
2.6. 2505001 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Fitjahlíð 3 - Flokkur 1
Sótt eru um leyfi til að byggja við, kjallara, 35,7 m2 undir núverandi byggingu sem er 64,5 m2. Framkvæmdin er nánast að öllu leyti undir núverandi byggingu.
Byggingaráformin eru samþykkt með athugasemdum byggingarfulltrúa.
Skipulagsmál
3. 2504007 - Vatnsendahlíð 189, 8. áfangi, breyting deiliskipulags
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 5. júní til 3. júlí 2025. Engin athugasemd barst á grenndarkynningartíma.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og óskað verði eftir undanþágu hjá ráðherra frá ákvæði gr. 5.3.2.5 d-lið skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 þar sem kveðið er á um að ekki skuli staðsetja íbúðir eða frístundahús nær stofn- og tengivegum en 100 m. Fjarlægð byggingarreits frá Skorradalsvegi (508) verður 90 m eftir breytingu. Þegar undanþága liggur fyrir verði skipulagsfulltrúa falið að senda inn samþykkta breytingu deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
28.03.2025. Grenndarkynning, Vatnsendahlíð 189, Skorradalshreppur.pdf
4. 2309002 - Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037
Endurskoðað Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 er í auglýsingu frá 24.6.2025 til 28.8.2025 á Skipulagsvefsjá, sjá slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2023/242.
Lagt fram og kynnt. Málinu frestað.
5. 2504001 - Dagverðarnes 12, svæði 1 - Breyting deiliskipulags
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 4. júní 2025 til 8. júlí 2025. Engar athugasemdir bárust á grenndarkynningartíma.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Dagverðarnes 12 deiliskipulagsbreyting 20250425.pdf
6. 2507001 - Vorfundur skipulagsfulltrúa og Skipulagsstofnunar
Fjarfundur var haldinn af Skipulagsstofnun þann 27. maí 2025 fyrir skipulagsfulltrúa. Farið var yfir innleiðingu stafræns deiliskipulags, tengingu málakerfa við Skipulagsgátt, rafrænt pósthólf, yfirferð leiðbeininga hjá stofnuninni og útgáfu Landsskipulagsstefnu.
Skipulagsfulltrúi gerði grein fyrir fundinum.
7. 2507002 - Skipulag skógræktar-leiðbeiningar um val á landi til skógræktar
Þeim sem fara með skipulagsmál er falin mikil ábyrgð og ákvarðanir þeirra ráða miklu um hvernig vistkerfi og ásýnd landsins mun mótast til framtíðar. Félagið Vinir íslenskrar náttúru, VÍN, hefur frá árinu 2023 unnið að því með aðstoð allmargra sérfræðinga að útbúa leiðbeiningar fyrir hagaðila um val á landi til skógræktar. Þeir hafa nú birt
leiðbeiningarnar á vefsjá félagsins undir heitinu Rétt tré á réttum stað.

Erindi frá Vinum íslenskrar náttúru lagt fram og kynnt.
Skipulag_skograektar_Skorradalshreppur.pdf
8. 2506002 - Refsholt 23 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Málinu var vísað til skipulagsnefndar af 78. fundi Afgreiðslufundar byggingarfulltrúa. Byggingarskilmálar deiliskipulags Frístundabyggðar í Hálsaskógi, Skorradal III. áfanga er heimilt að byggja eitt hús á hverri lóð allt að 150 fm að grunnfleti. Því til viðbótar er leyfilegt að byggja allt að 15 fm geymslu sem tengist húsi eða verönd. Tilkynning liggur fyrir um byggingu sem er undanþegin byggingarleyfi, en skv. byggingarreglugerð nr. 112/2012 gr. 2.3.5. segir að mannvirki og framkvæmdir sem eru undanþegnar byggingarheimild og tilkynningarskyldu skv. 2.3.6. gr. enda séu þær í samræmi við deiliskipulag og önnur ákvæði byggingarreglugerðar sem við eiga hverju sinni. Í leiðbeiningum HMS við ofangreinda gr. byggingarreglugerðar segir að smáhýsi er skýli sem almennt er ætlað til geymslu garðáhalda o.þ.h. og er ekki ætlað til gistingar eða búsetu. Smáhýsi er ekki upphitað en heimilt er að tengja rafmagns-, neysluvatns- og fráveitulagnir við það. Ekki kemur fram í umsókn hvort hús sé upphitað eða ekki. Ekki liggja fyrir upplýsingar hvernig það verði tengt frístundahúsi eða palli þess. Einnig skortir upplýsingar um hvort að umrædd bygging sé sannarlega geymsla.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að byggingarfulltrúi afli frekari upplýsinga þannig að hægt sé að afgreiða málið. Málinu frestað.
9. 2507004 - Leiðbeiningar um stjórn vatnamála
Umhverfis- og orkustofnun hefur útbúið leiðbeiningar til sveitarfélaga um samræmingu skipulagsáætlana og leyfisveitinga við lög um stjórn vatnamála. Þær eru nú aðgengilegar á heimasíðunni vatn.is undir flipanum Skýrslur.

Leiðbeiningarnar eru ætlaðar sveitarfélögum og fjalla sérstaklega um hvernig samræma skal skipulagsáætlanir og leyfisveitingar við lög nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Hvað skal koma fram í skipulagsáætlunum sveitarfélaga (svæðis,- aðal- og deiliskipulag) og hvaða kröfur þarf að gera til framkvæmdaraðila við leyfisveitingu til þess að tryggja samræmi við stefnu vatnaáætlunar 2022-2027 og lög um stjórn vatnamála.

Leiðbeiningar lagðar fram og kynntar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00 

Til bakaPrenta