Til bakaPrenta
Hreppsnefnd - 208

Haldinn á Hvanneyri,
18.06.2025 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Hreppsnefndarmaður,
Jón E. Einarsson Hreppsnefndarmaður,
Guðný Elíasdóttir Hreppsnefndarmaður,
Óli Rúnar Ástþórsson Hreppsnefndarmaður,
Kristín Jónsdóttir Hreppsnefndarmaður,
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2505009 - Beiðni um fjárhagsstuðning vegna húsnæðiskaupa
Áframhaldandi umræður frá síðasta fundi.
Vigfús Ægir Vigfússon, formaður Björgunarsveitarinnar Oks mætti á fundinn og kynnti hugmyndir Björgunarsveitarinnar um húsnæðiskaup.

Eftir kynninguna vék Vigfús af fundi. Einnig vék KJ af fundinum en hún situr einnig í stjórn Björgunarsveitarinnar.
Nokkrar umræður urðu um styrk eða framlag til húsnæðiskaupanna. Tekið jákvætt í erindið en afgreiðslu frestað.
 
Gestir
Vigfús Ægir Vigfússon -
2. 2206003 - Kjör oddvita
Samkvæmt samþykktum Skorradalshrepps í júní ár hvert skal kjósa oddvita til eins árs.
Kosning fór þannig:
Jón Eiríkur Einarsson, 3 atkvæði
Pétur Davíðsson, 1 atkvæði
Einn seðill ógildur.
Jón er því réttkjörinn oddviti til eins árs.
3. 2206004 - Kjör varaoddvita
Samkvæmt samþykktum Skorradalshrepps skal í júní ár hvert kjósa varaoddvita til eins árs.
Kosning varaoddvita til eins árs.
Guðný Elíasdóttir fékk 3 atkvæði.
Kristín Jónsdóttir fékk 2 atkvæði.
Guðný Elíasdóttir kjörin því varaoddviti til eins árs.
4. 2506008 - Skilabréf og álit samstarfsnefndar - sameining við Borgarbyggð
Lagt fram skilabréf Samstarfsnefndar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar dags. 10. júní ásamt fylgiskjölum. Skv. 2. mg. 119. gr. sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn taka málið á dagskrá án atkvæðagreiðslu. Í skilabréfinu kemur fram að samstarfsnefndin kom saman á 10 bókuðum fundum. Samstarfsnefnd skipaði starfshópa sem fjölluðu um málaflokka sveitarfélaganna og lögðu fram efni og upplýsingar í greiningu og tillögugerð. Verkefnið hefur einnig verið kynnt á íbúafundum með virku samtali við íbúa. Álit samstarfsnefndar er svohljóðandi: "Sveitarfélögin tvö hafa átt í farsælu samstarfi til áratuga og getur sameining þeirra skapað tækifæri til skilvirkari og markvissari stjórnsýslu og þjónustu, auk þess sem aðgengi íbúa að þjónustu verði jafnara. Þá eru jafnframt tækifæri til frekari atvinnuþróunar og nýsköpunar. Vísbendingar eru um að fjárhagur sameinaðs sveitarfélags verði sterkur og fjárfestingargeta þess betri en hjá sveitarfélögunum hvoru um sig. Sérstök sameiningarframlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á næstu árum myndu auka svigrúm til fjárfestinga í sameinuðu sveitarfélagi en nokkur óvissa er um áhrif sameiningar á tekju- og útgjaldajöfnunarframlög vegna fyrirhugaðra breytinga á úthlutunarreglum. Ef sameining leiðir til lækkunar munu sveitarfélögin þó halda óskertum framlögum í fjögur ár. Að mati samstarfsnefndar lúta áskoranir sameinaðs sveitarfélags fyrst og fremst að mismunandi skatthlutföllum sveitarfélaganna og áhyggjum hluta íbúa Skorradalshrepps af því að missa áhrif á ákvarðanir í nærumhverfi sínu. Tækifæri liggja helst í að bæta þjónustu við íbúa beggja sveitarfélaga, auka fjárfestingagetu og auka slagkraft í hagsmunagæslu fyrir svæðið, s.s. í samskiptum við ríkið um innviðauppbyggingu og þjónustu hins opinbera. Það er samdóma álit samstarfsnefndar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar að fram skuli fara atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélaganna um sameiningu þeirra. Samstarfsnefnd telur að sameining muni hafa fleiri kosti í för með sér en ókosti fyrir íbúa og að henni fylgi tækifæri sem annars stæðu sveitarfélögunum ekki til boða".
Lagt fram.
Borgfirðingar_Skilabréf og álit_10.6.2025 Skorradalshreppur.pdf
Viðauki III - Könnun á möguleikum á sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.pdf
Viðauki IV - _Aðgerðir til að stuðla að jákvæðri byggðarþróun.pdf
Viðauki V - Áherslur í tengslum við þjónustu við íbúa.pdf
5. 2506009 - Kynning á tillögu samstarfnefndar - Sameining við Borgarbyggð
Í skilabréfi dagsettu 10. júní 2025 leggur samstarfsnefnd um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar til að henni verði falið að kynna tillögu um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar og helstu forsendur hennar fyrir íbúum sveitarfélaganna, sbr. 4. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Oddviti leggur fram eftirfarandi tillögu. "Hreppsnefnd samþykkir tillögu samstarfsnefndar fyrir sitt leyti og felur samstarfsnefnd að kynna tillöguna og helstu forsendur fyrir íbúum."


PD leggur fram eftirfarandi tillögu: "Leggur til að sveitarstjórn haldi kynningu fyrir íbúanna."

3 sveitarstjórnarmenn samþykkja tillögu oddvita, 2 samþykkja tillögu PD.
Tillaga oddvita telst því samþykkt með 3 atkvæðum.
6. 2506010 - Skipun kjörstjórnar - sameining við Borgarbyggð
Í skilabréfi dagsettu 10. júní 2025 bendir samstarfsnefnd um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar á að sveitarstjórnir sveitarfélaganna skulu kjósa sameiginlega kjörstjórn fyrir væntanlegar íbúakosningar um sameiningu eftir nánara samkomulagi þeirra skv. 5. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga. Miða skal við að hvert sveitarfélag hafi a.m.k. einn fulltrúa í kjörstjórn og að fjöldi nefndarmanna sé oddatala. Samstarfsnefnd leggur til að að kjörstjórn verði skipuð fimm fulltrúum, þremur frá Borgarbyggð og tveimur frá Skorradalshreppi og jafn mörgum til vara.
Hreppsnefnd samþykkir að S. Fjóla Benediktsdóttir og Óli Rúnar Ástþórsson verði aðalmenn og Sigrún G. Þormar og Jökull Helgason verði varamenn í sameiginlegri kjörstjórn fyrir væntanlegar íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaga sbr. 5. gr. reglugerðar um íbúakosningar sveitarfélaga.
7. 2506011 - Tímasetning íbúakosninga - sameining við Borgarbyggð
Í skilabréfi dagsettu 10. júní 2025 leggur samstarfsnefnd um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar til að atkvæðagreiðsla um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna hefjist þann 5. september 2025 og verði lokið þann 20. september 2025.
Oddviti lagði fram tillögu: "Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkir að atkvæðagreiðsla um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hefjist þann 5. september 2025 og verði lokið 20. september 2025."

PD lagði fram eftirfarandi tillögu: Legg til að kosningar verði frá 19. september 2025 til 4. október 2025."

Tillaga oddvita fékk þrjú atkvæði og því samþykkt með meirihluta atkvæða.
8. 2506012 - Kosningaaldur - sameining við Borgarbyggð
Í skilabréfi samstarfsnefndar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar er lagt til að heimild í 3. mgr. 133. gr. sveitarstjórnalaga til lækkunar kosningaaldurs í íbúakosningu um tillögu um sameiningu í 16 ár verði nýtt.
Oddviti leggur til eftirfarandi: "Sveitarstjórn samþykkir tillögu samstarfsnefndar um að nýta heimild í 3. m.gr. 133. gr. sveitarstjórnarlaga til lækkunar kosningaaldurs í 16 ár í komandi atkvæðagreiðslu um sameiningu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps."

PD lagði til að nýta ekki þessa heimild og hafa 18 ára kosningaraldur.

Tillaga oddvita samþykkt með meirihluta atkvæða.

9. 2007003 - Framlag til byggingar laugarhús Hreppslaugar.
Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi nr. 206, 30.apríl sl.
Farið yfir stöðu mála.

Frestað til næsta fundar.
10. 2506013 - Skipulag skógræktar - leiðbeiningar um val á landi til skógræktar
Lagt fram bréf frá Sveini Runólfssyni um skipulag skógræktar í landinu.
Lagt fram. Vísað til Skipulagsnefndar.
Skipulag_skograektar_Skorradalshreppur.pdf
11. 2506015 - Erindi frá Innviðráðuneytinu - mál í samráðsgátt - breyting á sveitarstjórnarlögum.
Innviðaráðuneytið vekur athygli á því að áform um lagabreytingar sem innviðaráðherra hyggst leggja fram á næsta haustþingi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Um að ræða frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).
Oddvita falið að senda inn umsögn.
12. 2506014 - Erindi frá Innviðráðuneytinu - mál í samráðsgátt - breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga.
Innviðaráðuneytið vekur athygli á því að áform um lagabreytingar sem innviðaráðherra hyggst leggja fram á næsta haustþingi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja).
Oddvita falið að senda inn umsögn.
Fundargerðir til kynningar
13. 2404011 - Fundur verkefnahóps um formlegar sameiningarviðræður Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
10.fundur samstarfsnefndar lagður fram til kynningar.
10. fundur samstarfsnefnd Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.pdf
14. 2502011 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Lögð fram fundargerð nr. 980.
15. 2502014 - Fundargerðir stjórnar Faxaflóahafnar sf. 2025
Lögð fram til kynningar fundargerð nr. 256
16. 2503010 - Fundargerðir heilbrigðsnefndar 2025
Lögð fram til kynningar
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:45 

Til bakaPrenta