Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarnefnd - 189

Haldinn á Hvanneyri,
20.05.2025 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Formaður,
Ástríður Guðmundsdóttir Aðalmaður,
Ingólfur Steinar Margeirsson Varaformaður,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir Ritari.
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
2. 2504009 - Kerfisáætlun 2025-2034, umhverfismat áætlana
Skipulagsfulltrúi fór á kynningarfund á Hótel Hamri þann 6. maí sl.
Skipulagsfulltrúi gerði grein fyrir kynningarfundi Kerfisáætlunar 2025-2034 og falið að vinna að umsögn um áætlunina í samræmi við umræður á fundinum.
Kerfisáætlun 2025-2034_Framkvæmdaáætlun 2026-2028_Til kynningar.pdf
Kerfisáætlun 2025-2034_Umhverfismatsskýrsla_Til kynningar.pdf
Kerfisáætlun 2025-2034_Drög að langtímaáætlun_Til kynningar.pdf
Skipulagsmál
1. 2505005 - Fitjahlíð 13, undanþága hjá ráðherra
Landeigandi Fitja hefur óskað eftir undanþágu hjá Félags- og húsnæðismálaráðherra frá skipulagsreglugerð nr. 90/2013, sbr. 13. mgr. og 45 mgr. skipulagslaga nr. 123/2010. Óskað er eftir undanþágu frá ákvæði d-liðar gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 þar sem segir að frístundahús megi ekki standa nær stofn- og tengivegi en 100 m utan þéttbýlis. Óskað er eftir að fjarlægð frístundahúss frá Skorradalsvegi (508) megi vera 50 m.

Með vísan til 13. mgr. 45. gr. skipulagslaga fer ráðuneytið þess á leit að sveitarstjórn Skorradalshrepps veiti ráðuneytinu umsögn sína um beiðni þessa og sendi ráðuneytinu eigi síðar en 3. júní nk.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að í umsögn sveitarfélagsins komi fram að ekki eru gerðar athugasemdir við að fjarlægð frístundahúss, á lóð Fitjahlíðar 13 á Fitjum, frá Skorradalsvegi (508) verði 50 m. Fordæmi eru fyrir slíkum undanþágum innan sveitarfélagsins. Deiliskipulag er ekki í gildi fyrir Fitjahlíð 13 en innan skilgreinds frístundabyggðar skv. Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022.
F-13_afsto¨ðumynd_-undanþa´gubeiðni.pdf
Framkvæmdarleyfi
3. 2205001 - Holtavörðuheiðarlína 1
Í samræmi við 16. gr. reglugerðar nr. 1381/2021 hefur Skipulagsstofnun farið yfir umhverfismatsskýrslu Landsnets um Holtavörðuheiðarlínu 1 sem lögð var fram samkvæmt 23. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulagsstofnun telur að umhverfismatsskýrslan uppfylli skilyrði laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Álit Skipulagsstofnunar lagt fram.
Álit Skipulagsstofnunar.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta