Til bakaPrenta
Hreppsnefnd - 217

Haldinn á Hvanneyri,
09.12.2025 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Hreppsnefndarmaður,
Jón E. Einarsson Hreppsnefndarmaður,
Guðný Elíasdóttir Hreppsnefndarmaður,
Óli Rúnar Ástþórsson Hreppsnefndarmaður,
Kristín Jónsdóttir Hreppsnefndarmaður,
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður
Áður en fundur hófst mættu kl. 10 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þau Arnar Þór Sævarsson framkvæmdarstjóri og Sigríður Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur. Fundað var með þeim til kl. 12. Gert var síðan matarhlé.
Oddviti leitaði athugasemda um boðun fundarins, sem átti að byrja kl. 11, en frestaðist vegna ofangreinds fundar.
Ekki gerðar athugasemdir um lögmæti fundarins.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2510011 - Fjárhagsáætlun 2026
Lögð fram til seinni umræðu.

Lögð fram til seinni umræðu.
Fjárhagsáætlun samþykkt með breytingum.
Áætlunin samþykkt af hreppsnefnd með afgangi.

Lagt til að álagningarhlutfall fasteignagjalda fyrir árið 2026 verði fyrir A-stofn 0,30% og fyrir C-stofn 1,03%.

Samþykkt samhljóða.
aaetlun 26 9-12-25.pdf
2. 2510014 - 3ja ára fjárhagsáætlun 2027 - 2029
Lögð fram til seinni umræðu.
Áætlunin samþykkt.
2027-2029 B .pdf
3. 2512009 - Rekstur sveitarfélagsins - bráðabirgða 11 mánaða uppgjör.
Lagt fram bráðabirgða 11 mánaða uppgjör ársins 2025.
Farið yfir stöðuna.
4. 2511003 - Kosning endurskoðanda sveitarfélagsins til eins árs
Lagt fram svarpóstur frá KPMG varðandi kostnað við endurskoðun fyrir árið 2025, en þar er gert ráð fyrir sambærilegum kostnaði og vegna ársreiknings 2024 að viðbættum verðbótum.
Samþykkt að KPMG sjái um endurskoðun fyrir árið 2025.

Samþykkt samhljóða.
5. 2512002 - Umsókn um styrk frá ADHD samtökunum
ADHD samtökin óska eftir stuðningi sveitarfélagsins að upphæð 100.000-500.000 krónur til að vera með ýmis konar fræðslu.
Ekki hægt að verða við erindinu.
Umsókn um styrk vegna fræðslu 2025.pdf
Almenn greinargerð um starfsemi adhd samtakanna -nóv 2025.pdf
6. 2512004 - Umsókn um styrk fyrir Skólahreysti 2026
Stofnendur Skólahreysti óska eftir 250.000 kr. styrk fyrir Skólahreysti 2026 til að endurnýja búnað.
Ekki hægt að verða við erindinu.
Ósk um styrk Skólahreysti .pdf
7. 2512001 - Samningur vegna afhendingar 40% eignarhlutar í Laugarbúð
Á fundi hreppsnefndar nr.212 þann 4.september sl. var samþykktur viðauki við fjárhagsáætlun 2025 vegna afhendingar 40% eignarhluts Skorradalshrepps í Laugarbúð við Hreppslaug. Á sama fundi var samþykkt að fela oddvita að vinna að samningi á milli Ungmennafélagsins Íslendings og Skorradalshrepps.

Oddviti lagði fram drög að samningi. Umræður urðu um málið. Ákveðið er að fresta málinu til næsta fundar. JEE og ÓRÁ er falið að vinna að málinu til næsta fundar.
8. 2512003 - Kauptilboð í eignarhlut Skorradalshrepps í Hótel Borgarnes hf.
Nýir eigendur Hótel Borgarnes hf. óska eftir að kaupa eignarhlut Skorradalshrepps sem á 0,07% hlut í félaginu á 100.000 kr.-
Oddvita falið að vinna að málinu og leggja fyrir næsta fund.
9. 2510013 - Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlit Vesturlands 2026
Lögð fram fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlit Vesturlands fyrir árið 2026 þar sem breyting var á fyrri fjárhagsáætlun og er áætlun lækkuð um 15 milljónir.
Breytt áætlun lögð fram og hún samþykkt.
Óli Rúnar Ástþórsson og Pétur Davíðsson viku af fundi undir þessum dagskrálið.
10. 2511002 - Stjórnsýslukæra vegna málsnúmer IRN25090119
Hreppsnefnd staðfestir svör sveitarfélagsins vegna framkominnar kæru ásamt viðaukum og staðfestir umboð oddvita/framkvæmdarstjóra til að svara fyrir hönd sveitarfélagsins og leita aðstoðar lögfræðinga eftir þörfum. Hreppsnefnd samþykkir að oddviti/framkvæmdarstjóri gæti hagsmuna sveitarfélagsins í þessu máli, sérstaklega í ljósi þess að um flýtimeðferð er að ræða og því eru kærufrestir og svarfrestir afar skammir eða alveg niður í 3 sólarhringa.
Beðið er niðurstöðu Innviðarráðuneytisins vegna málsins.

Bent er á vanhæfi hreppsnefndarmannana Péturs Davíðssonar og Óla Rúnars Ástþórssonar til að taka þátt í afgreiðslu málsins er varðar stjórnsýslukæru nr. IRN25090119 skv. 2.mgr. 20.gr. stjórnsýslulaga nr.138/2011 og 2.mgr. 17.gr. samþykktar Skorradalshrepps nr.250/2025, þar sem þeir hafa sjálfir undirbúið kæruna og lagt inn til Innviðaráðuneytisins.
Hreppsnefnd tekur þá ákvörðun um að kjósa um vanhæfi skv. 7.mgr. 20.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Kosið er um vanhæfi Péturs Davíðssonar og Óla Rúnars Ástþórssonar:
JEE, KJ og GE kjósa með vanhæfi.
PD og ÓRÁ sitja hjá.
Samþykkt er að PD og ÓRÁ víki af fundi undir þessum dagskrálið.

Hreppsnefnd staðfestir umboð oddvita Skorradalshrepps sem starfar sem framkvæmdastjóri sveitarfélagsins, að svara stjórnsýslukæru nr. IRN25090119 með aðkeyptri lögfræðiráðgjöf.

Samþykkt samhljóða.
Óli Rúnar Ástþórsson kom inn á fund eftir afgreiðslu þessa máls
Pétur Davíðsson sat ekki á fundi undir þessum dagskrálið.
11. 2512005 - Stjórnsýslukæra vegna IRN25090129
Hreppsnefnd staðfestir svör sveitarfélagsins vegna framkominnar kæru ásamt viðaukum og staðfestir umboð oddvita/framkvæmdarstjóra til að svara fyrir hönd sveitarfélagsins og leita aðstoðar lögfræðinga eftir þörfum. Hreppsnefnd samþykkir að oddviti/framkvæmdarstjóri gæti hagsmuna sveitarfélagsins í þessu máli, sérstaklega í ljósi þess að um flýtimeðferð er að ræða og því eru kærufrestir og svarfrestir afar skammir eða alveg niður í 3 sólarhringa.
Beðið er niðurstöðu Innviðarráðuneytisins vegna málsins.

Bent er á vanhæfi hreppsnefndarmannsins Péturs Davíðssonar til að taka þátt í afgreiðslu málsins er varðar stjórnsýslukæru nr. IRN25090129 skv. 2.mgr. 20.gr. stjórnsýslulaga nr.138/2011 og 2.mgr. 17.gr. samþykktar Skorradalshrepps nr.250/2025, þar sem hann hefur sjálfur undirbúið kæruna og lagt inn til Innviðaráðuneytisins.
Hreppsnefnd tekur þá ákvörðun um að kjósa um vanhæfi skv. 7.mgr. 20.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Kosið er um vanhæfi Péturs Davíðssonar:
JEE, KJ og GE kjósa með vanhæfi.
PD og ÓRÁ sitja hjá.
Samþykkt er að PD víki af fundi undir þessum dagskrálið.

ÓRÁ lagði fram eftirfarandi bókun.
Í ljósi þess að ekki hafi borist svör frá Innviðaráðuneytinu um hverjir séu málsaðilar í stjórnsýslukærum PD vil ég bend á að eftirfarandi bókun gæti talist ógild eftir úrskurð ráðuneytisins.

Hreppsnefnd staðfestir umboð oddvita Skorradalshrepps sem starfar sem framkvæmdastjóri sveitarfélagsins, að svara stjórnsýslukæru nr. IRN25090129 með aðkeyptri lögfræðiráðgjöf.

Samþykkt samhljóða.
Pétur Davíðsson kom inn á fund eftir afgreiðslu þessa máls.
12. 2409004 - Fjárhagsáætlun 2025, viðauki 3
Lagður fram viðauki nr. 3 við Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025.

Viðaukinn felur í sér eftirfarandi:
Í málaflokknum Brunamál og almannavarnir lækkar kostnaður um kr. 2.000.000 sem áætlaður var í styrkveitingu til Björgunarsveitarinnar OK vegna fjárfestingar.
Í málaflokknum Sameiginlegur kostnaður eykst kostnaður um kr. 2.500.000 sem áætlaður er í lögfræðikostnað vegna andsvara við stjórnsýslukæru nr. IRN25090119 og IRN25090129.
Í málaflokknum Vatnsveita, er lækkaður kostnaður um kr. 4.500.000 þar sem ekki verður farið í framkvæmdir við vatnsveitu í Birkimóa á þessu ári. Gert er ráð fyrir þeim framkvæmdum í fjárhagsáætlun 2026


Hreppsnefnd samþykkir framlagðann viðauka nr. 3 með fyrir einnig samþykki sveitarstjórnar Borgarbyggðar.
Sbizhubc25325120916460.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
13. 2511002F - Skipulags- og byggingarnefnd - 195
Lögð fram fundargerð frá 18. nóvember s.l.
Fundargerðin samþykkt í öllum liðum.
13.1. 2404022 - Raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1
Á 191. fundi nefndarinnar var formanni og lögmanni nefndarinnar falið að upplýsa ráðuneytið um afstöðu sveitarfélagsins til hinnar framkomnu beiðni Landsnets um skipan sérstakrar raflínunefndar á grundvelli 9. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna Holtavörðuheiðarlínu 1. Afstaða sveitarfélagsins var send ráðherra þann 30.júlí sl. Erindi barst frá ráðherra þann 14. nóvember sl. þar sem hann fellst á beðni Landsnets um skipan í raflínunefnd.
Erindi sveitarfélagsins til ráðherra lagt fram og kynnt ásamt niðurstöðu ráðherra. Nefndin furðar sig á röksemdafærslu ráðherra um ástæðu þess að hann skipi raflínunefnd. Megin ástæðan er, að hans mati, að landeigendur í Borgarbyggð hafi stofnað með sér hagsmunasamtök og að afstaða Skorradalshrepps kalli á skipun slíkrar nefndar. Nefndin felur lögmanni sveitarfélagsins að óska útskýringa hjá ráðuneytinu á því í hverju mótmæli Skorradalshrepps eru fólgin í umsögn sveitarfélagsins um málið, en í niðurstöðu ráðuneytisins kemur fram að mótmæli Skorradalshrepps séu skýr. Nefndin frestar málinu og leggur til að leitað verði álits Sambands íslenskra sveitarfélaga um næstu skref.
13.2. 2510007 - ON óskar álits ÚUA um leyfisskyldu vegna jarðvegsstíflu, Andakílsárvirkjun, mál nr. 157-2025
Lögmaður Sóknar lögmannsstofu kom athugasemdum sveitarfélagsins á framfæri við ÚUA. Úrskurður liggur fyrir í málinu.
Athugasemdir sveitarfélagsins og úrskurður lagður fram og kynntur.
Fundargerðir til kynningar
14. 2502011 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Lögð fram fundargerð nr. 989
15. 2503010 - Fundargerðir heilbrigðsnefndar 2025
Lögð fram fundargerð nr. 199
16. 2502014 - Fundargerðir stjórnar Faxaflóahafnar sf. 2025
Lagðar fram fundargerðir nr. 259, 260,261 og 262.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40 

Til bakaPrenta