Til bakaPrenta
Hreppsnefnd - 207

Haldinn á Hvanneyri,
21.05.2025 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Hreppsnefndarmaður,
Jón E. Einarsson Hreppsnefndarmaður,
Guðný Elíasdóttir Hreppsnefndarmaður,
Óli Rúnar Ástþórsson Hreppsnefndarmaður,
Kristín Jónsdóttir Hreppsnefndarmaður,
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2504008 - Ársreikningur Skorradalshrepps 2024
Ársreikningur Skorradalshrepps fyrir 2024 lagður fram til seinni umræðu.
Ársreikningurinn lagður fram til seinni umræðu. Fulltrúi KPMG Haraldur Örn Reynisson fór yfir ársreikning.

Ársreikningurinn samþykktur.
Samstæða Skorradalshreppur 2024.pdf
Sundurliðun ársreiknings Skorradalshrepps 2024.pdf
 
Gestir
Haraldur Örn Reynisson -
2. 2505012 - Endurskoðunarskýrsla vegna 2024
Endurskoðunarskýrsla vegna 2024 lögð fram.
Fulltrúi KPMG Haraldur Örn Reynisson fór yfir endurskoðunarskýrsluna.
 
Gestir
Haraldur Örn Reynisson -
3. 2505011 - Álagning fasteignagjalda 2025
PD fór yfir álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2025.
Óbreytt skipting á gjalddögum. Skipt upp á 3 gjalddaga ef upphæð sé yfir 60.000 kr.

Í tengslum við endurnýjaðan samning við Hreinsitækni er samþykkt að leiðrétta innheimtu á rotþróargjaldi ársins 2025 vegna innheimtu áranna 2022-2025 vegna losunar rotþróa á árunum 2023-2025. Innheimt verður 30% af rotþróargjaldinu fyrir árið 2025.
4. 2505009 - Beiðni um fjárhagsstuðnings vegna húsnæðiskaupa
Lagt fram erindi frá Björgunarsveitinni OK vegna fjárhagsstuðning við húsnæðiskaup.
Óskað er eftir fundi með stjórn Björgunarsveitarinnar.
5. 2505010 - Húsnæðisáætlun sveitarfélagsins 2025
Lögð fram húsnæðisáætlun sveitarfélagsins fyrir 2025.
Áætlun rædd, afgreiðslu frestað.
6. 2505014 - Tilkynning um aðalfund Faxaflóahafna sf.
Boð um aðalfund Faxaflóahafna sf. þann 4. júní n.k.
Samþykkt að Jón Eiríkur Einarsson fari á fundinn. Til vara Óli Rúnar Ástþórsson.
Fundargerðir til staðfestingar
8. 2505001F - Skipulags- og byggingarnefnd - 189
Lögð fram fundargerð frá 19. maí
Fundargerðin samþykkt í öllum 3 liðum. Óskað er eftir að fá til yfirlestrar umsögn vegna 2. liðar fundargerðarinnar.
8.1. 2505005 - Fitjahlíð 13, undanþága hjá ráðherra
Landeigandi Fitja hefur óskað eftir undanþágu hjá Félags- og húsnæðismálaráðherra frá skipulagsreglugerð nr. 90/2013, sbr. 13. mgr. og 45 mgr. skipulagslaga nr. 123/2010. Óskað er eftir undanþágu frá ákvæði d-liðar gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 þar sem segir að frístundahús megi ekki standa nær stofn- og tengivegi en 100 m utan þéttbýlis. Óskað er eftir að fjarlægð frístundahúss frá Skorradalsvegi (508) megi vera 50 m.

Með vísan til 13. mgr. 45. gr. skipulagslaga fer ráðuneytið þess á leit að sveitarstjórn Skorradalshrepps veiti ráðuneytinu umsögn sína um beiðni þessa og sendi ráðuneytinu eigi síðar en 3. júní nk.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að í umsögn sveitarfélagsins komi fram að ekki eru gerðar athugasemdir við að fjarlægð frístundahúss, á lóð Fitjahlíðar 13 á Fitjum, frá Skorradalsvegi (508) verði 50 m. Fordæmi eru fyrir slíkum undanþágum innan sveitarfélagsins. Deiliskipulag er ekki í gildi fyrir Fitjahlíð 13 en innan skilgreinds frístundabyggðar skv. Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022.
8.2. 2504009 - Kerfisáætlun 2025-2034, umhverfismat áætlana
Skipulagsfulltrúi fór á kynningarfund á Hótel Hamri þann 6. maí sl.
Skipulagsfulltrúi gerði grein fyrir kynningarfundi Kerfisáætlunar 2025-2034 og falið að vinna að umsögn um áætlunina í samræmi við umræður á fundinum.
8.3. 2205001 - Holtavörðuheiðarlína 1
Í samræmi við 16. gr. reglugerðar nr. 1381/2021 hefur Skipulagsstofnun farið yfir umhverfismatsskýrslu Landsnets um Holtavörðuheiðarlínu 1 sem lögð var fram samkvæmt 23. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulagsstofnun telur að umhverfismatsskýrslan uppfylli skilyrði laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Álit Skipulagsstofnunar lagt fram.
Fundargerðir til kynningar
7. 2309008 - Sameiningarmál
Lagðar fram til kynningar fundargerðir nr. 6, 7, 8 og 9.
6. fundur samstarfsnefnd Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.pdf
7. fundur samstarfsnefnd Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.pdf
8. fundur samstarfsnefnd Borgarbyggð og Skorradalshrepps.pdf
9. fundur samstarfsnefnd Borgarbyggð og Skorradalshrepps.pdf
9. 2503007 - Fundargerðir stjórnar SSV 2025
Lagðar fram til kynningar fundargerðir nr. 187 og 188.
10. 2502011 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Lögð fram til kynningar fundargerðir nr 978 og 979.
11. 2502014 - Fundargerðir stjórnar Faxaflóahafnar sf. 2025
Lagðar fram til kynningar fundargerðir nr. 251-255.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00 

Til bakaPrenta