Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarnefnd - 204

Haldinn í gegnum fjarfundarbúnað,
30.05.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Formaður,
Ingólfur Steinar Margeirsson Varaformaður,
Sigrún Guttormsdóttir Þormar Varamaður,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir Ritari.
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Fundargerð
1. 2605010F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 87
Fundargerð lögð fram til kynningar
1.1. 2605002 - Indriðastaðir 36 - Umsókn um byggingarh
Sótt er um að byggja geymslu, 24,8 m2 á lóðinni. Fyrir eru á lóðinni, frístundarhús, 73,8m2 og gestahús, 24,8 m2. Alls er því byggingamagn 98,6 m2. Lóðin er skráð 2500 m2 og því er nýtingarhlutfall nú, 0,039. Eftir stækkun verður nýtingarhlutfallið 0,049.
Vísað til Skipulags- og bygginganefndar þar sem ekkert deiliskipulag eða aðrar heimildir eru í gildi fyrir umrædda lóð.
1.2. 2605005 - Dagverðarnes 3 - umsókn um byggingarheimild Flokkur 1
Sótt er um að byggja frístundarhús 114,9 m2, aðalhæð og milliloft.
Byggingaráformin eru samþykkt, að teknu tilliti til athugasemda byggingafulltrúa
1.3. 2604009 - Fitjahlíð 46 umsókn um bygg.leyfi
Lagðir inn reyndaruppdrættir um viðbyggingu, 80.7 m2 við eldra hús,sem er nú 25,2 m2.
Alls verður því sumarhúsið 105,9 m2.
Auk þess er sótt um að endurnýja núverandi bátaskýli sem er 18,8 m2
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingafulltrúa.
1.4. 2506007 - Vatnsendahlíð 200 , umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Lagðir hafa verið inn uppfærðir og breyttir uppdrættir af húsinu og það stækkað um 4,0 m2, var í fyrri samþykkt 20,0 m2. Alls verður frístundarhúsið 24 m2.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingafulltrúa
Byggingarleyfismál
2. 2605002 - Indriðastaðir 36 - Umsókn um byggingarh
Málinu var vísað frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekkert deiliskipulag eða aðrar heimildir eru í gildi fyrir umræddri lóð. Sótt er um að byggja geymslu, 24,8 m2 á lóðinni. Fyrir eru á lóðinni, frístundarhús, 73,8m2 og gestahús, 24,8 m2. Alls er því byggingamagn 98,6 m2. Lóðin er skráð 2500 m2. Nýtingarhlutfall er 0.05 skv. aðalskipulagi Skorradalshrepps og því heimilað byggingarmagn 125 fm á lóðinni. Eftir stækkun verður heildar byggingarmagn lóðar 123,4 fm.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir Indriðastöðum 28, 29, 30, 35, 37, 46, 47, 48 og landeigendum sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m. s.br.. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Indriðastaðir 36, Skorradalur.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30 

Til bakaPrenta