Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarnefnd - 175

Haldinn á Hvanneyri,
12.10.2023 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Formaður,
Ástríður Guðmundsdóttir Aðalmaður,
Ingólfur Steinar Margeirsson Varaformaður,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir Ritari.
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Byggingarleyfismál
1. 2309005 - Hnitsetning lóðar, Dagverðarnes 44
Málinu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar. Samkvæmt leiðbeiningum Skipulagsstofnunar þarf ekki að gera breytingu á deiliskipulagi ef að lóðablað er í fullu samræmi við afmörkun lóðar í deiliskipulagi. Að mati nefndarinnar er framlagt lóðablað í fullu samræmi við afmörkun lóðar í deiliskipulagi.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir framlagt lóðablað að því gefnu að samþykki aðliggjandi lóðarhafa og landeiganda liggi fyrir og uppdráttur uppfærður í samræmi við athugasemdir nefndarinnar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Skipulagsmál
2. 2306003 - Endurskoðun stefnumörkunar skógræktar, breyting aðalskipulags
Nefndin hélt vinnufund um stefnumörkun varðandi skógrækt í aðalskipulagi.

Minnisblað vinnufundar skipulags- og byggingarnefndar lagt fram.
3. 2204006 - Stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn, breyting aðalskipulags
Lýsing breytingar aðalskipulags var kynnt almenningi og öðrum hagsmunaaðilum sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í Morgunblaðinu þann 8.júlí 2022. Lýsingin lá frammi á skrifstofu og á heimasíðu sveitarfélagsins frá 11. júlí til 5. ágúst 2022. Einnig var opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 2. ágúst 2022 þar sem aðilar gátu kynnt sér efni lýsingarinnar. Ein ábending barst um efni lýsingarinnar og hefur verið brugðist við henni. Óskað var umsagnar hjá Skipulagsstofnun, Vegagerðinni, Minjastofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Skógræktinni og Veiðifélags Skorradalsvatns. Tekið hefur verið tillit til umsagna við framlagða tillögu breytingar aðalskipulags. Tillaga breytingar aðalskipulags framlögð til afgreiðslu.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að tillaga breytingar aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar stefnumörkun um bátaskýli og bátaaðstöðu við Skorradalsvatn verði kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br. með opnum degi á skrifstofu sveitarfélagsins og enn fremur verði tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur enn fremur til við hreppsnefnd að tillagan verði auglýst í Morgunblaðinu og á heimasíðu sveitarfélagsins sbr. 1. mgr. 31. sömu laga, að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30.gr. sömu laga.
4. 2310001 - Fundur Skipulagsstofnunar með skipulagsfulltrúum
Skipulagsstofnun mun halda fund með skipulagsfulltrúum þann 20. október 2023.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að sækja fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
5. 2310004 - Hvítbók um skipulagsmál
Hvítbók um skipulagsmál ásamt umhverfisskýrslu er nú í kynningu í samráðsgátt stjórnvalda.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
Framkvæmdarleyfi
6. 2206012 - Stóra Drageyri, óleyfisframkvæmd
Erindi barst frá lögreglustjóranum á Vesturlandi þar sem gerð var grein fyrir því að rannsókn á hluta málsins hefur verið hætt er varðar meint brot á skipulagslögum við flekkjun/plægingu og gróðursetningu skógarplantna í landi Stóru-Drageyrar og Bakkakots í Skorradal með vísan til 4. mgr. 52. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, þar sem ekki þykir grundvöllur til að halda henni áfram. Lögð hefur verið fram kæra til embættis ríkissaksóknara sbr. 6. mgr. 52. gr. sakamálalaga.
Erindi lögreglustjóra á Vesturlandi, rökstuðningur hans og kæra til embættis ríkissaksóknara lögð fram og kynnt.
7. 2206020 - Bakkakot, óleyfisframkvæmd
Erindi barst frá lögreglustjóranum á Vesturlandi þar sem gerð var grein fyrir því að rannsókn á hluta málsins hefur verið hætt er varðar meint brot á skipulagslögum við flekkjun/plægingu og gróðursetningu skógarplantna í landi Stóru-Drageyrar og Bakkakots í Skorradal með vísan til 4. mgr. 52. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, þar sem ekki þykir grundvöllur til að halda henni áfram. Lögð hefur verið fram kæra til embættis ríkissaksóknara sbr. 6. mgr. 52. gr. sakamálalaga.
Erindi lögreglustjóra á Vesturlandi, rökstuðningur hans og kæra til embættis ríkissaksóknara lögð fram og kynnt.
8. 2205001 - Holtavörðuheiðarlína 1, matsáætlun
Landsnet hf. hefur sent Skipulagsstofnun matsáætlun um framkvæmd Holtavörðuheiðarlínu 1, sbr. 21. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og var til kynningar frá 11. maí til 8. júní 2022 og álit Skipulagsstofnunar um matsáætlunina lá fyrir þann 21. júlí 2022. Nú er í kynningu viðbót við fyrrnefnda matsáætlun er varðar nýjan valkost, svokallaða Hallarmúlaleið. Línuleið hins nýja valkostar liggur frá Vatnshömrum um Stafholtstungur að Hallarmúla og þaðan upp á Grjótháls og er um 25 km löng. Óskað er eftir að hreppurinn gefi umsögn um þennan nýja valkost. Umsagnarfrestur rennur út þann 18.10.2023.
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30 

Til bakaPrenta