Til bakaPrenta
Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 87

Haldinn á Hvanneyri,
30.05.2026 og hófst hann kl. 08.00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Aðalmaður,
Sæmundur Víglundsson Embættismaður,
Fundargerð ritaði: Sæmundur Víglundssson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Byggingarleyfismál
1. 2605002 - Indriðastaðir 36 - Umsókn um byggingarh
Sótt er um að byggja geymslu, 24,8 m2 á lóðinni. Fyrir eru á lóðinni, frístundarhús, 73,8m2 og gestahús, 24,8 m2. Alls er því byggingamagn 98,6 m2. Lóðin er skráð 2500 m2 og því er nýtingarhlutfall nú, 0,039. Eftir stækkun verður nýtingarhlutfallið 0,049.
Vísað til Skipulags- og bygginganefndar þar sem ekkert deiliskipulag eða aðrar heimildir eru í gildi fyrir umrædda lóð.
2. 2605005 - Dagverðarnes 3 - umsókn um byggingarheimild Flokkur 1
Sótt er um að byggja frístundarhús 114,9 m2, aðalhæð og milliloft.
Byggingaráformin eru samþykkt, að teknu tilliti til athugasemda byggingafulltrúa
3. 2604009 - Fitjahlíð 46 umsókn um bygg.leyfi
Lagðir inn reyndaruppdrættir um viðbyggingu, 80.7 m2 við eldra hús,sem er nú 25,2 m2.
Alls verður því sumarhúsið 105,9 m2.
Auk þess er sótt um að endurnýja núverandi bátaskýli sem er 18,8 m2

Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingafulltrúa.
4. 2506007 - Vatnsendahlíð 200 , umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Lagðir hafa verið inn uppfærðir og breyttir uppdrættir af húsinu og það stækkað um 4,0 m2, var í fyrri samþykkt 20,0 m2. Alls verður frístundarhúsið 24 m2.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingafulltrúa
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10.30 

Til bakaPrenta