| |
1. 2205001 - Holtavörðuheiðarlína 1, matsáætlun | |
Kristinn Magnússon frá Landsneti og Ragnhildur Gunnarsdóttir Efla/Landsnet mættu á fundinn, s.l. mánudag. | | |
|
2. 2206003 - Kjör oddvita | |
Kosning fór þannig: Jón Eiríkur Einarsson, 3 atkvæði Pétur Davíðsson, 2 atkvæði Jón er því réttkjörinn oddviti til eins árs. | | |
|
3. 2206004 - Kjör varaoddvita | |
Kosning varaoddvita til eins árs. Guðný Elíasdóttir fékk 3 atkvæði. Pétur Davíðsson fékk 1 atkvæði. 1 auður seðill. Guðný Elíasdóttir kjörinn því varaoddviti til eins árs. | | |
|
4. 2206006 - Samþykktir sveitarfélagsins. | |
Samþykktirnar samþykktar. Oddvita falið að senda þær til Innviðaráðuneytisins. | Skorradalshreppur.Samþykkt_sveitarfélagsins_2024.pdf | | |
|
5. 2309008 - Sameiningarmál | |
Oddviti leggur fram tillögu eftirfarandi bókun.
"Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkir fyrir sitt leiti að hefja formlegar sameiningarviðræður við sveitarstjórn Borgarbyggðar skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Síðan lagt fram til fyrri umræðu: Hreppsnefnd skipar eftirtalda tvo aðalfulltrúa: Jón E. Einarsson og Kristín Jónsdóttir og til vara Pétur Davíðsson og Sigrún G Þormar í samstarfsnefnd sem skal kanna möguleika á sameiningu sveitarfélaganna.
Hreppsnefnd beinir því til samstarfsnefndar að stefnt verði að kosningu um sameiningu vorið 2025. Samstarfsnefnd skal leita eftir sjónarmiðum og hugmyndum íbúa, starfsmanna og annarra hagsmunaaðila við undirbúning tillögu sem lögð verður fyrir íbúa í atkvæðagreiðslu. Samstarfsnefnd er falið að gera verk- og tímaáætlun fyrir verkefnið og sækja um framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að standa straum af kostnaði.
PD og SGÞ leggja fram eftirfarandi bókun! "Núna liggur fyrir tillaga frá verkefnisstjórn vegna óformlegrar sameiningarviðræðna á milli Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, dagsett 31. maí s.l. um að hefja formlegar viðræður á milli sveitarfélaganna um sameiningu þeirra. Skipun þessara verkefnastjórnar hefur þegar verið gerð athugasemd við, með erindi dagsettu 18. apríl s.l. til Innviðaráðuneytisins."
Áður en til afgreiðslu tillögunnar kemur teljum við að hreppsnefndarfulltrúinn Guðný Elíasdóttir sé ekki hæf um að greiða atkvæði um tillöguna með vísan til 2. m.gr. 20 gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og eins með vísan til 3. gr. Stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Við teljum þá staðreynd halla mjög á hæfi Guðnýjar í þessari atkvæðagreiðslu um að hefja formlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna að hún, sem starfsmaður og ein af sviðsstjórum Borgarbyggðar, að hún sé undir húsbóndavaldi sveitarstjórnar Borgarbyggðar og þannig ekki hæf að gæta hagsmuna Skorradalshrepps um þá ákvörðun að hefja formlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna. Það má því leiða líkum af því að þessi staða gæti haft þær afleiðingar að hún gæti ekki greitt atkvæði gegn því í sveitarstjórn Skorradalshrepps um að hefja formlega viðræður við Borgarbyggð, vinnuveitenda sinn. Ef hún segði nei, þá gæti það skapað forsendur fyrir hennar yfirmann eða kjörna fulltrúa í sveitarstjórn Borgarbyggðar að setja hana til hliðar í starfi sínu þar eða látið hana gjalda þess á annan hátt, og þannig gert henni ókleift að sinna sínu starfi hjá Borgarbyggð. Af þeim sökum geta fjárhagslegir hagsmunir hennar verið undir.
Pétur Davíðsson Sigrún G Þormar"
Oddviti leggur fram eftirfarandi tillögu: "GE er talin hæf, sbr. 7. mgr. 20 gr. sveitarstjórnarlaga til að greiða atkvæði um að hefja formlega viðræður um sameiningu við Borgarbyggð"
JEE, GE og KJ samþykkja tillöguna. SGÞ og PD greiða atkvæði gegn tillögunni.
PD og SGÞ leggja fram eftirfarandi bókun:
"Í ljósi samþykktar meirihluta hreppsnefndar um hæfi GE, þá áskilur minnihlutinn sér rétt til að óska eftir því, með kæru til Innviðaráðuneytisins, að ráðuneytið úrskurði um hæfi GE og eins allra hreppsnefndarmanna í ljósi 2. mgr. 20 gr. sveitarstjórnarlaga 138/2011 og eins 3. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1997, um að taka þátt í afgreiðslu á tillögu verkefnisstjórnar um að fara í formlegar sameiningarviðræður við Borgarbyggð. Jafnframt um hæfi allra sveitastjórnarmanna til að sitja í samstarfsnefnd um sameiningu, sbr. vísun í sömu lagagrein.
Ástæða efasemda vísast þá til fyrri bókunar um hæfi GE, hér fyrr á fundinum. Einnig áskilur minnihlutinn sér rétt til að óska eftir áliti Innviðaráðuneytisins á grundvelli 112 gr. sveitarstjórnarlaga 138/2011 á fyrrnefndri ákvörðun.
Pétur Davíðsson Sigrún G Þormar"
Oddviti leggur þá til afgreiðslu áður framlagða tillögu sína um að hefja formlegar viðræður.
JEE, GE og KJ samþykkja tillöguna. SGÞ og PD greiða atkvæði gegn tillögunni.
Tillagan samþykkt með 3 atkvæðum gegn 2 atkvæðum.
| Bréf verkefnisstjórnar til sveitarstjórnar Skorradalshrepps 31.5.2024.pdf | Borgarfjörður-18.06.24.pdf | FS: Uppfærð gögn.pdf | | |
|
6. 2007003 - Framlag til byggingar laugarhús Hreppslaugar. | |
| |
|
7. 2406003 - Erindi til sveitarstjórna á Vesturlandi og í Kjósahrepp | |
Lagt fram. Hreppsnefnd tekur ekki afstöðu til bókunar stjórnar Samtaka heilbrigðissvæða á Íslandi. | 20240527_Erindi til sveitarstjórna_undirritað.pdf | Bokun Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi.pdf | | |
|
8. 2406004 - Erindi frá Innviðarráðuneytinu vegna álits | |
PD og SGÞ
Undirritaðir vilja bóka eftirfarandi varðandi erindi Innviðaráðuneytisins frá 31. maí s.l.
"Hreppsnefnd hafði tvö valmöguleika sbr. erindi Innviðaráðuneytisins frá 10. maí 2023 s.l. Þar stóð m.a.
„Sveitarstjórnarlög kveða á um að sveitarstjórnum sveitarfélaga með undir 250 íbúa við sveitarstjórnarkosningar árið 2022 beri að hefja formlegar sameiningarviðræður við annað eða önnur sveitarfélög eða skila áliti til innviðaráðuneytisins um stöðu og getu sveitarfélagsins til þess að sinna lögbundnum verkefnum innan árs frá kosningunum.?
Ákveðið var að vinna álitið og var því skilað inn í maí 2023. Umsögn Innviðaráðuneytisins barst síðan í október s.l. og var álitið og umsögnin sett á heimssíðu sveitarfélagsins. Samkvæmt leiðbeiningu ráðuneytisins hefði það verið gott að boðað hefði verið til kynningarfundar meðal íbúanna til að kynna álitið og umsögnina. Ferilinn var því ekki kláraður, þar sem sveitarstjórn ákvað að fara í valkostagreiningu á fundi sínum 20. september s.l. . Framhald málsins vísast síðan til mála nr. 6 og 7 á fundi hreppsnefndar 18. október 2023, eins máls nr. 7 á fundi hreppsnefndar 14. desember 2023 og máls nr. 6 á fundi hreppsnefndar 17. janúar s.l.
Pétur Davíðsson Sigrún G Þormar"
GE vil bóka eftirfarandi til viðbótar: "Fyrr á þessum fundi var samþykkt að hefja formlegar sameiningarviðræður við Borgarbyggð."
Oddvita falið að svara Innviðaráðuneytinu. Samþykkt.
| Skorradalshreppur.pdf | Umsögn um álit Skorradalshrepps 2023.pdf | Álit um stöðu sveitarfélaga með undir 250 íbúa (1).pdf | Skorradalshreppur lykiltolur 2022.pdf | | |
|
9. 2306010 - Skólaakstur | |
Oddvita falið að vinna að framlengingu samnings frá s.l. ári.
Samþykkt
KJ vék af fundinum við afgreiðslu málssins. | | |
|
10. 2406005 - Hinseginhátíð Vesturlands | |
Lagt fram. Ekki hægt að verða við erindinu. | | |
|
11. 2402008 - Öruggara Vesturland | |
Sbizhubc25324062011340.pdf | | |
|
12. 2407001 - Gjald sveitarfélagsins vegna lögbundins húsmæðra orlofs kvenna | |
Framlagið samþykkt. | | |
|
13. 2406009 - Kvörtun vegna stjórnsýslu sveitarfélagsins | |
PD vill bóka eftirfarandi: "PD telur sig hæfan til að taka þátt í umræðu um erindið frá Innviðaráðuneytinu, þar sem enga stjórnsýsluákvörðun liggur fyrir að taka, við umræðu um erindi ráðuneytisins"
Hreppsnefnd kaus um vanhæfi PD vegna umfjöllunnar þessa máls og er hann vænhæfur með 3 greiddum atkvæðum. PD. víkur af fundi.
GE og KJ vilja bóka eftirfarandi. 3 hreppsnefndarfulltrúar á móti 2 töldu í upphafi máls að PD væri vanhæfur að sitja undir eða fjalla um þetta mál, þar sem kvörtun til Innviðaráðuneytisins kemur frá PD og ÓRÁ. Því telja GE og KJ það ekki góða stjórnsýslu að heimila PD að leggja fram bókun fyrir atkvæðagreiðslu um vanhæfi samkv. 3.gr. lið 1 stjórnsýslulaga.
Hreppsnefnd samþykkir að fela oddvita að svara fyrirspurn Innviðaráðuneytisins.
Samþykkt. | IRN24040132.pdf | Kvörtun vegna stjórnsýslu sveitarfélags.pdf | | |
|
14. 2406008 - Tilkynning um undirskriftarsöfnun skv. sveitarstjórnarlögum | |
Hreppsnefnd telur að tilkynningin uppfylli ekki skilyrði 2.gr reglugerðar nr. 155/2013 um undirskriftarsafnanir vegna almennra atkvæðgreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
Tilkynninguna skulu undirrita a.m.k þrír einstaklingar. Einnig má geta þess tilkynningarfrestur er liðinn samkvæmt 2.mgr. 2.gr reglugerðar nr. 155/2013 er tilgreint að undirskriftarsöfnun sem lýtur að ósk um atkvæðagreiðslu um tiltekna ákvörðun sem sveitarstjórn hefur þegar tekið skal frestur til þess, að tilkynna um fyrirhugaða undirskriftarsöfnun vera fjórar vikur frá því að ákvörðun er birt. Ákvörðunin var tekin fyrir 21.febrúar s.l. og birt á heimasíðu Skorradalshrepps í kjölfarið. Sá frestur er því liðinn.
Í ljósi þess að tímafresturinn er útrunninn, er erindinu um að undirskriftarsöfnun um kosningar vegna ákvörðunar um að hefja óformlegar viðræður við Borgarbyggð hafnað.
Samþykkt.
| 20240625_182308.pdf | | |
|
| |
15. 2406002F - Skipulags- og byggingarnefnd - 181 | |
Fundargerðin samþykkt í öllum 3 liðum.
| 15.1. 2201007 - Indriðastaðahlíð 166, umsókn um byggingarleyfi Samkvæmt gildandi deiliskipulagi skal mænishæð frá gólfi fyrir frístundahús vera að hámarki 5.5 m og 3.8 m fyrir aukahús. Haft skal sem viðmið að gólfhæð og hæð verandar yfir landi yfirstígi ekki 1.5 m. Skipulags- og byggingarnefnd hafnar umsókn um að kjallari og sökkulveggir verði sjáanlegar þar sem að umsókn samræmist ekki gildandi deiliskipulagi og byggingarskilmálum þess. Byggingarfulltrúa falið að upplýsa um niðurstöðu nefndarinnar. | 15.2. 2404014 - Dagverðarnes 123, svæði 3, breyting deiliskipulags Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda. | 15.3. 2404013 - Dagverðarnes, svæði 4, ný vegtenging, umsókn um framkvæmdaleyfi Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja framkomna tillögu um legu aðkomuvegar sbr. yfirlitsuppdrætti, dags. 20. júní 2024, og uppfærða grunnmynd, dags. 3.maí 2024 og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar lokið er að þinglýsa kvöðum um aðkomu inn á svæði 4 í Dagverðarnesi á lóðir L192317 og L192318. | | |
|
| |
16. 2406002 - Fundargerð Faxaflóahafna sf. nr. 237, 238, 239, 240, 241, 242, 243 og 244 | |
| |
|
17. 2406007 - Fundargerðir nr. 948, 949 og 950 stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga | |
| |
|
| |
18. 2404014 - Dagverðarnes 123, svæði 3, breyting deiliskipulags | |
Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda. | 20240409_Breyt_deilisk Dagverðarness 123 í Skorradalshr.pdf | Dagverðarnes 123 - ósk um deiliskipulagsbreytingu.pdf | | |
|
| |
19. 2404013 - Dagverðarnes, svæði 4, ný vegtenging, umsókn um framkvæmdaleyfi | |
Hreppsnefnd samþykkir framkomna tillögu um legu aðkomuvegar sbr. yfirlitsuppdrætti, dags. 20. júní 2024, og uppfærðri grunnmynd, dags. 3.maí 2024 og að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar lokið er að þinglýsa kvöðum um aðkomu inn á svæði 4 í Dagverðarnesi á lóðir L192317 og L192318. | | |
|