Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarnefnd - 174

Haldinn á Hvanneyri,
19.09.2023 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Formaður,
Ástríður Guðmundsdóttir Aðalmaður,
Ingólfur Steinar Margeirsson Varaformaður,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir Ritari.
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2309014 - Þinglýst jarðamerki og sveitarfélagamörk
Fyrir liggur þinglýst jarðamerki á milli Syðstu-Fossa og Horns. Einnig liggur fyrir þinglýst jarðamerki að hluta á milli annars vegar Syðstu-Fossa og hins vegar Efri-Hrepps og Mófellsstaðakots. Umrædd jarðamerki eru einnig sveitarfélagamörk á milli Skorradalshrepps og Borgarbyggðar.
Gögn lögð fram og kynnt.
2. 2309013 - Andakílsárvirkjun, fyrirspurn frá landeigendum Efri-Hrepps
Borist hefur fyrirspurn frá landeigendum í Efri-Hrepp þar sem óskað er upplýsinga um stöðu mannvirkja og framkvæmda sem eru á eignarlandi landeigenda Efri-Hrepps og leyfi vegna þeirra frá Skorradalshreppi. Það er að segja stöðu suðurhluta inntaksstíflunnar, yfrfallsstíflunnar, gerð farvegs í framhaldi af yfirfallsstíflugerð og hækkun lónsins sem var allt framkvæmt eftir 1970, en Skorradalshreppur varð skipulagsskyldur fyrir árið 1970.
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að svara fyrirspurninni og taka saman þau gögn sem til eru um málið.
Fundargerðir til kynningar
3. 2307001F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 72
Fundargerð lög fram til kynningar
3.1. 2307003 - Skógarás 8, Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Sótt er um heimild til að byggja 112,3 m2 frístundarhús á lóðinni. Áður árið 2006 hafði verið veitt leyfi fyrir byggingu á 65,7 m2 húsi.
Byggingaráformin eru samþykkt.
3.2. 2307006 - Fitjahlíð 100, Umsókn um byggingarleyfi OneLandRobot
Sótt er um að byggja 185,0 m2 frístundarhús á lóðinni.
Erindinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar þar sem engir byggingarskilmálar eða deiliskipulag eru í gildi fyrir þetta svæði.
3.3. 2307007 - Dagverðarnes 72a - Umsókn um byggingarheimild
Sótt er um að byggja við núverandi sumarhús, 39,9 m2. Alls verður því frístundarhúsið 103,9 m2
Byggingaráformin eru samþykkt
Byggingarleyfismál
4. 2307006 - Fitjahlíð 100, Umsókn um byggingarleyfi
Málinu var vísað til skipulags- og byggingarnefndar af 72. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa sem haldinn var 24. júlí 2023. Ekkert deiliskipulag er í gildi í Fitjahlíð. Á lóð Fitjahlíðar 100 er engin bygging. Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir 185,0 m2 frístundahúsi. Samanlagt byggingarmagn á lóð er 185 m2. Lóðin er 6599 m2 að stærð. Byggingarleyfisumsókn samræmist stefnu aðalskipulags um nýtingarhlutfall sem er 0.05.
Skipulag- og byggingarnefnd samþykkir að byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir Fitjahlíð 99, 101 og landeigendum Fitja sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um að uppfærð gögn berist. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
5. 2301006 - Fitjahlíð 67B, Umsókn um byggingarheimild
Byggingarleyfisumsókn var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 21. apríl til 21. maí 2023 þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi af umræddri lóð. Grenndarkynning var framlengd gagnvart einum granna fram til 21. júní 2023 þar sem grenndarkynningargögn voru endursend í pósti. Engin athugasemd barst á grenndarkynningartíma.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að byggingarfulltrúa verði falið að veita byggingarleyfi í samræmi við grenndarkynnt gögn byggingarleyfisumsóknar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Skipulagsmál
6. 2309005 - Hnitsetning lóðar, Dagverðarnes 44
Óskað er eftir að hnitsetning á afmörkun frístundalóðar Dagverðarness 44 í landi Dagverðarness verði samþykkt af sveitarfélaginu svo hægt verði að þinglýsa eignarmörkum. Í gildi er deiliskipulag sem samþykkt var af skipulagsstjóra ríkisins þann 19. júní 1991. Uppdráttur er ekki hnitfestur. Lóð er innan svæðis 2.
Skipulags- og byggingarnefnd frestar málinu þar sem beðið er eftir leiðbeiningum Skipulagsstofnunar.
7. 2309001 - Skipulagsdagurinn 2023
Árlegt málþing Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skipulagsmál verður haldið þann 19. október nk.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa og formanni nefndarinnar að sækja málþingið fyrir hönd sveitarfélagsins.
8. 2309002 - Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037
Óskað er eftir umsögn um lýsingu endurskoðaðs Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037. Umsagnarfrestur er til 18.9. 2023.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að skipulagsfulltrúi vinni umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
Framkvæmdarleyfi
9. 2309004 - Brunndæla í Hvammi, framkvæmdaleyfisumsókn
Sótt er um framkvæmdaleyfi til að setja upp vatnsdælu fyrir brunavarnakerfi í landi Hvamms. Framkvæmdaleyfisumsókn er í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir Hvammskóg neðri.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði falið að veita framkvæmdaleyfi á grundvelli gildandi deiliskipulags Hvammsskóga neðri og sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar umsögn Veiðifélags Skorradalsvatns, Hafrannsóknarstofnunar liggur fyrir og leyfi Fiskistofu til að setja upp vatnsdælu fyrir brunavarnakerfi.
10. 2309003 - Jarðvegsstífla við inntakslón Andakílsárvirkjunar, framkvæmdaleyfisumsókn
Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir tímabundina styrkingu á jarðvegsstíflu við inntakslón Andakílsárvirkjunar. Um er að ræða 2500 m3 af stórgrýti sem verður hlaðið loftmegin við núverandi stíflu. Framkvæmdin fór í gegnum fyrirspurn um matsskyldu og var ákvörðun Skipulagsstofnunar að endurbóta- og viðhaldsframkvæmdin væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Efninu verði hlaðið í sömu hæð og núverandi stífla, um 59 m y.s. Framkvæmdartími er áætlaður á fjórða ársfjórðungi þessa árs og reiknað er með að framkvæmdin taki um 2 mánuði. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir framkvæmdasvæðið. Leyfi landeiganda liggur ekki fyrir. Virkjanaleyfi liggur ekki fyrir. Gögn eru ekki í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Skipulags- og byggingarnefnd vísar málinu frá á grundvelli þess að fyrirliggjandi gögn eru ekki fullnægjandi og að virkjanaleyfi liggur ekki fyrir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:15 

Til bakaPrenta