Til bakaPrenta
Hreppsnefnd - 219

Haldinn á Hvanneyri,
03.02.2026 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Hreppsnefndarmaður,
Jón E. Einarsson Hreppsnefndarmaður,
Guðný Elíasdóttir Hreppsnefndarmaður,
Óli Rúnar Ástþórsson Hreppsnefndarmaður,
Kristín Jónsdóttir Hreppsnefndarmaður,
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2206005 - Kosning í nefndir og fleira samkvæmt samþykkt um stjórn og fundarsköp Skorradalshrepps.
Kjörstjórn við kosningar til sveitarstjórna, alþingis-, forseta- og aðrar kosningar.

Í tengslum við sameiningu sveitarfélaganna Skorradalshrepps og Borgarbyggðar er gerð breyting á kjörstjórn Skorradalshrepps.


Oddviti gerir tillögu um kjörstjórn.

Ný kjörstjórn er þannig skipuð til loka kjörtímabilsins.
Aðalmenn:

Davíð Pétursson
Ástríður Guðmundsdóttir
Sigrún Guttormsdóttir Þormar

Varamenn:

Gunnar Albert Rögnvaldsson
Óli Rúnar Ástþórsson
Kristín Jónsdóttir

Samþykkt.
2. 2602001 - Sameiginleg yfirkjörstjórn Borgarbyggðar og Skorradalshrepps fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026
Lagt fram erindi stjórnar til undirbúnings að sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar dagsett 29. janúar 2026, þar sem lagt er til að sveitarstjórnir sveitarfélaganna skipi sameiginlega kjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara 16. maí nk. Stjórnin leggur til að sameiginleg yfirkjörstjórn verði skipuð tveimur fulltrúum frá Borgarbyggð og tveimur til vara og einum fulltrúa frá Skorradalshreppi og einum til vara. Þá er lagt til að skipun undirkjörstjórna og skipting í kjördeildir í Borgarbyggð verði óbreytt en að Skorradalshreppur verði sérstök kjördeild og að yfirkjörstjórn Skorradalshrepps verði skipuð sem undirkjörstjórn fyrir Skorradalskjördeild.
Sveitarstjórn samþykkir tillögu undirbúningsstjórnar og skipar Steinunni Fjólu Benediktsdóttur í yfirkjörstjórn fyrir sína hönd og Jökul Helgason til vara.

Samþykkt.
PD sat hjá.
3. 2512001 - Samningur vegna afhendingar 40% eignarhlutar í Laugarbúð
Lagt fram afsal vegna fasteignarinnar Hreppslaug 1A.

Afsalið samþykkt og að Skorradalshreppur greiðir einnig þinglýsingu afsalsins
4. 2602004 - Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 322. mál - Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030
Lögð fram samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 9. febrúar nk.

Umræða um samgönguáætlunina. Oddvita falið að senda inn athugasemdir í samræmi við umræður á fundinum.
Fundargerðir til kynningar
5. 2602003 - Fundargerðir samband íslenskra sveitarfélaga árið 2026
Lögð fram fundargerð nr. 992
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:15 

Til bakaPrenta