Til bakaPrenta
Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 78

Haldinn á Hvanneyri,
13.06.2025 og hófst hann kl. 10:15
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Aðalmaður,
Sæmundur Víglundsson Embættismaður,
Fundargerð ritaði: Sæmundur Víglundssson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Byggingarleyfismál
1. 2506007 - Vatnsendahlíð 200 , umsókn um byggingarheimild eða -leyfi
Sótt er um að hús, 20 m2, sem flutt var á lóðina og hefur stöðuleyfi verði skráð sem sumarhús.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingafulltrúa.
2. 2506006 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hrísás 16 - Flokkur 1
Sótt er um að byggja 104 m2 frístundarhús á lóðinni.
Byggingaráformin eru samþykkt
3. 2506003 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Fitjahlíð 67B - Flokkur 1
Sótt er um að byggja frístundarhús 58,5 m2 ásamt vinnustofu 16,6 m2.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa.
4. 2506002 - Refsholt 23 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Tilkynnt um framkvæmd sem er ekki tilkynningarskyld. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að reisa 15,0 m2 geymslu ásamt frístundarhúsi.
Samkv. byggingareglugerð nr. 112/2012, gr. 2.3.5. kemur m.a. fram "Eftirfarandi minniháttar mannvirki og framkvæmdir eru undanþegnar byggingarleyfi. Þær eru einnig undanþegnar byggingarheimild og tilkynningarskyldu skv. 2.3.6. gr. enda séu þær í samræmi við deiliskipulag og önnur ákvæði reglugerðar þessarar sem við eiga hverju sinni."

Samkv. f-lið sömu greinar kemur m.a. fram "f. Smáhýsi sem er að hámarki 15 m2 og mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs. Sé smáhýsið minna en 3,0 m frá aðliggjandi lóð þarf samþykki eigenda aðliggjandi lóðar. Slík smáhýsi eru ekki ætluð til gistingar eða búsetu."

Hinsvegar að í gildandi deiliskipulagi III. áfanga Refsholt kemur fram m.a. fram eftirfarandi í byggingarskilmálum um húsgerðir: "Leyfilegt verður að byggja eitt hús á hverri lóð allt að 150 m2 að grunnfleti. Því til viðbótar er leyfilegt að byggja allt að 15 m2 geymslu sem tengist húsi eða verönd."

Afgreiðslunefnd telur óljóst, hvort við á í þessu tilfelli byggingareglugerð eða gildandi deiliskipulag.

Vísað til Skipulags- og byggingarnefndar.
5. 2505008 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Horn 134053 - Flokkur 1
Sótt er um að byggja 432,5 m2 vélaskemmur.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa.
6. 2505001 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Fitjahlíð 3 - Flokkur 1
Sótt eru um leyfi til að byggja við, kjallara, 35,7 m2 undir núverandi byggingu sem er 64,5 m2. Framkvæmdin er nánast að öllu leyti undir núverandi byggingu.
Byggingaráformin eru samþykkt með athugasemdum byggingarfulltrúa.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til bakaPrenta