| |
1. 2305001 - Ársreikningur Skorradalshrepps 2022 | |
Haraldur Örn Reynisson frá KPMG kom á fundinn og fór yfir ársreikninginn. Hreppsnefnd sammála um að færa hluta skammtímakrafna sem langtímakröfur. Samþykkt að vísa ársreikningnum til seinni umræðu.
| | | Gestir | Haraldur Örn Reynisson, KPMG - | |
|
2. 2305002 - Erindi frá byggingarfulltrúa | |
Lagt fram. Uppsögnin gildir frá 1. apríl s.l. Oddvita falið að vinna að málinu. | | |
|
3. 2303003 - Kaup Björgunarsveitarinnar Oks á nýjum jeppa | |
Samþykkt að styrkja bílakaupin um 70.000 kr. | | |
|
4. 2305003 - Erindi frá knattspyrnudeild Skallagríms | |
Hreppsnefnd þakkar beiðnina, en sér ekki fært að kaupa auglýsingu í blaðinu. | | |
|
5. 2305004 - Erindi vegna afþreyingarþjónustu í Skorradal | |
Hreppsnefnd getur hvorki hafnað eða samþykkt erindið, þar sem sveitarfélagið hefur ekki umráð yfir því landssvæði sem málið tekur til um. Fyrirspyrjanda bent á að hafa samband við landeigendur þess svæðis sem er rætt um í erindinu. Hreppsnefnd vill þó taka fram að ef einhverjar framkvæmdir eru fyrirhugaðar s.s landmótun eða annað þ.h. er skylt að slíkt fari til Skipulags- og byggingaryfirvalda sveitarfélagsins til afgreiðslu. | | |
|
6. 2305005 - Erindi vegna efnistöku í Skorradal | |
Sveitarfélagið hefur ekki lögbundið hlutverk að útvega efnistökusvæði fyrir verktaka og íbúa en mun bregðast við um leið og óskir um efnistöku koma. Erindi vegna efnistöku skulu berast Skipulagsfulltrúa, sem leiðbeinir um næstu skref. Oddvita falið að svara erindinu.
KJ vék af fundi undir þessum lið. | | |
|
| |
7. 2304003F - Skipulags- og byggingarnefnd - 172 | Lögð fram fundargerð frá 25. apríl s.l. Fundargerðin samþykkt í öllum 12 liðum. JEE vék af fundi afgreiðslu 12. liðar fundargerðinnar. | 7.1. 2304014 - Forsendur starfsemi Andakílsárvirkjunar Minnisblað lagt fram og kynnt. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að Sókn lögmannsstofu verði falið að fara yfir minnisblað Orkustofnunar og gera athugasemdir við það. | 7.2. 2304005 - Gagnagrunnur um mengaðan jarðveg Erindi lagt fram og kynnt. | 7.3. 2206021 - Skógrækt í Skorradal Skógræktarstjóri fór yfir áherslupunkta skógræktarinnar varðandi áframhaldandi skógrækt í Skorradal eftir að Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úrskurði sína, fyrr í vetur. Ræddar voru um ýmsar hliðar á stöðu mála. Forsendur Skógræktarinnar og sýn sveitarfélagsins. | 7.4. 2304006 - Umsögn um frumvarp til laga um land og skóg Skipulag- og byggingarnefnd leggur til að send verði inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. | 7.5. 2302031 - Indriðastaðir 25 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að byggingarfulltrúa verði falið að veita byggingarleyfi í samræmi við lagfærða byggingarleyfisumsókn. Innsend athugasemd varðar stærð og afmörkun lóðar og hefur ekki áhrif á byggingaráform þar sem ljóst er að bygging mun standa að lágmarki 10 m frá lóðamörkum nágranna lóða. Farið er þess á leit við lóðarhafa Indriðastaða 25 og 32 að lóðarafmörkun verði lagfærð sbr. innsenda athugasemd. | 7.6. 2304013 - Kynningarfundur um Skipulagsgátt fyrir sveitarfélög Skipulagsfulltrúi, formaður skipulags- og byggingarnefndar og oddviti sátu fundinn. Málið kynnt fyrir nefndarmönnum. | 7.7. 2103006 - Dagverðarnes, svæði 9, nýtt deiliskipulag Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að deiliskipulag verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar sbr. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | 7.8. 2304012 - Mófellsstaðakot, Aðalskipulag - óveruleg breyting Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu aðalskipulags sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að teknu tilliti til athugasemda nefndarinnar og skipulagsfulltrúa verði falið að senda rökstudda tillögu um breytinguna til Skipulagsstofnunar og auglýsa niðurstöðu hreppsnefndar. | | |
|
| |
8. 2305006 - Fundargerðir nr. 920, 921, 922, 923 og 924 stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga | |
| |
|
9. 2305007 - Fundargerð nr.180 hjá stjórn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. | |
| |
|
10. 2305008 - Fundargerð 15. fundar stjórnar Fjallsskilumdæmis Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps. | |
| |
|
| |
11. 2103006 - Dagverðarnes, svæði 9, nýtt deiliskipulag | |
Hreppsnefnd samþykkir að deiliskipulag verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar sbr. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. | | |
|
12. 2304012 - Mófellsstaðakot, Aðalskipulag - óveruleg breyting | |
Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu aðalskipulags sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að teknu tilliti til athugasemda skipulags- og byggingarnefndar. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda rökstudda tillögu um breytinguna til Skipulagsstofnunar og auglýsa niðurstöðu hreppsnefndar.
JEE vék af fundi undir þessum lið. | | |
|
| |
13. 2302031 - Indriðastaðir 25 | |
Hreppsnefnd samþykkir að byggingarfulltrúa verði falið að veita byggingarleyfi í samræmi við lagfærða byggingarleyfisumsókn. Farið er þess á leit við lóðarhafa Indriðastaða 25 og 32 að lóðarafmörkun verði lagfærð sbr. innsenda athugasemd. | | |
|