| |
| 1. 2604001 - Dagverðarnes, svæði D, nýtt deiliskipulag | |
| Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að tillaga deiliskipulags verði lagfærð í samræmi við ábendingar nefndarinnar. Málinu frestað | | DSK Dagverdarnes reitur D.pdf | | |
|
| 2. 2604002 - Dagverðarnes 62-65, svæði 8, nýtt deiliskipulag | |
| Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að tillaga deiliskipulags verði lagfærð í samræmi við ábendingar nefndarinnar. Málinu frestað. | | d1332-Dagverðarnes_A2_2000_20260108_opt.pdf | | |
|
| 3. 2604004 - Indriðastaðahlíð 134, breyting deiliskipulags | |
| Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að heimila óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt sbr. 44. gr. sömu laga fyrir lóðarhöfum Indriðastaðahlíðar 132, 133, 162 og landeigendum. | | 25-022-Deiliskipulagsbreyting INDRIÐASTAÐAHLÍÐ_06.01.2026.pdf | | |
|
| |
| 4. 2604003 - Efnistaka úr Dragá, framkvæmdaleyfi | |
| Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði falið að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar fyrir liggur að efnistaka sé innan efnistökusvæðis nr. 13 og fallið verði frá grenndarkynningu þar sem gerð er grein fyrir framkvæmdinni í aðalskipulagi og samþykki landeiganda liggur fyrir. Nefndin leggur til við hreppsnefnd að farið verði fram á að Vegagerðin leggi fram yfirborðsmælingu lands fyrir og eftir efnistöku og útreikninga sem byggja á umræddum gögnum um að efnistaka hafi verið í samræmi við veitt framkvæmdaleyfi. | | Dragá.pdf | | Leyfi frá FSRE.pdf | | Leyfi vegna efnistöku við Dragá í Skorradal-1.pdf | | Litla-Drageyri-landeigandi.pdf | | Umsókn um framkv.leyfi.pdf | | |
|