| |
| 1. 2602009 - Leiðbeiningar um gerð samgöngumats | |
| Leiðbeiningar lagðar fram og kynntar | | Leiðbeiningar um gerð samgöngumats.pdf | | |
|
|
| 3. 2601002 - Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033, til kynningar | |
| Nefndin telur eftir frekari skoðun á framlögðum gögnum að ekki sé þörf á að gera athugasemdir við málið. | | Bradabirgdayfirlit_vatnaaaetlunar_2028-2033_DROG_TIL_KYNNINGAR.pdf | | |
|
| 4. 2206024 - Vatnshorn, friðlýsing | |
| Farið yfir málið og staða þess kynnt. | | |
|
| |
| 5. 2404022 - Raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 | |
| Minnisblað lögmanns sveitarfélagsins lagt fram og kynnt. Í ljósi álits lögmanns leggur skipulags- og byggingarnefnd til við hreppsnefnd að veita lögmanni sveitarfélagsins heimild til að nota öll tiltæk ráð og heimildir til að stjórnskipuleg staða sveitarfélagsins og þar með annarra sveitarfélaga gagnvart ríkinu verði skýrð. | | |
|
| 6. 1402009 - Fitjahlíð, deiliskipulag Kiðhúsbala | |
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði falið að senda hlutaðeigandi aðilum afstöðu sveitarfélagsins til athugasemda sem bárust á auglýsingartíma tillögunnar.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja auglýst deiliskipulag með áorðnum breytingum sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Enn fremur leggur skipulags- og byggingarnefnd til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði falið að óska eftir undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra á d. lið gr. 5.3.2.5. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 fyrir lóðir ofan vegar, þ.e. Fitjahlíð 47, 49, 51 og 53 þannig að heimilað verði að byggja allt að 25 m frá Skorradalsvegi (508) þar sem hár kantur er niður við hann og minni líkur á að umferðarhljóð berist upp að fyrirhuguðum byggingum. Lóðir eru einnig litlar og þröngar og áhugi er fyrir frekari uppbyggingu innan lóðanna. Sveitarfélagið bendir einnig á að skilgreind er gönguleið meðfram vegi í samræmi við verndarsvæði í byggð, sem kallar á hægari umferð. Minni hraði bætir hljóðvist innan byggðarinnar og gerir það að verkum að hægt er að byggja nær vegi en ella. | | d970-Fitjahlíð_20260220.pdf | | Viðbrögð við umsögnum_20260224.pdf | | |
|
| |
| 7. 2601004 - Syðstu-Fossar, umsögn vegna framkvæmdaleyfis í Borgarbyggð | |
| Athugasemdum nefndarinnar var komið á framfæri á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar sjá á eftirfarandi slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/46 . Athugasemdir lagðar fram. | | Athugasemdir Skorradalshrepps.pdf | | |
|