Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarnefnd - 201

Haldinn á Hvanneyri,
15.05.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Formaður,
Ingólfur Steinar Margeirsson Varaformaður,
Sigrún Guttormsdóttir Þormar Varamaður,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir Ritari, Sæmundur Víglundsson Embættismaður.
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Fundargerð
1. 2605003F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 85
Fundargerð lögð fram til kynningar
1.1. 2210002 - Stóra-Drageyri, stofnun lóðar skátaskáli
Sótt er um að stofna lóð 4,4 ha, innan lnr.134096. Auk þessa er þess óskað að Stóra-Drageyri skátasvæði verði minnkað úr 18 ha í 13,6 ha. Málinu frestað í skipulags- og bygginganefnd vegna ónógra gagna.
Samþykkt að óska eftir merkjalýsingu frá landeiganda.
1.2. 2603006 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Vatnsendahlíð 103 - Flokkur 1
Lagðir inn uppfærðir uppdrættir.
Gögnin eru ófullnægjandi.
1.3. 2402004 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Fitjahlíð 100 - Flokkur 1
Sótt er um að byggja 185,0 m2 frístundarhús á lóðinni.
Byggingaráformin eru samþykkt í samræmi við grendarkynningu og samþykki sveitastjórnar.
1.4. 2510002 - Indriðastaðir 33, Umsókn um byggingarh. eða -leyfi, flokkur 1
Sótt er um að stækka frístundarhúsið um 22,2 m2, alls verður húsið eftir stækkun, 68,3 m2.
Byggingaráformin eru samþykkt í samræmi við grendarkynningu og samþykki sveitastjórnar.
1.5. 2603003 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Þrætueyri 134106 - Flokkur 1
Sótt er um að byggja vélageymslu, 296 m2. Fyrir er á lóðinni íbúðarhús, 90 m2 og bátaskýli, 72 m2.
Byggingaráformin eru samþykkt
1.6. 2502015 - Indriðastaðir 25 - Flokkur 1 Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi -
Sótt er um að byggja sumarhús og geymslu, alls 96,9 m2 hús, á lóðinni.
Byggingaráformin eru samþykkt í samræmi við grendarkynningu og samþykki sveitastjórnar.
1.7. 2604006 - Dagverðarnes 5, umsókn um byggingal.
Sótt er um að byggja við núverandi hús 45,6 m2. Núverandi hús er skráð 59,9m2, alls verður húsið því 105,5 m2 eftir stækkun.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa.
1.8. 2603007 - Vatnsendahlíð 202, umsókn um byggingarh
Sótt er um að byggja 73,6 m2 frístundarhús.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingafulltrúa.
1.9. 2404024 - Fitjar L133958, afmörkun 3ja lóða á bæjartorfunni
Lagðar inn þrjár merkjalýsingar í stað einnar áður.
1, Fitjakirkja lóð undir Fitjakirkjku
2, Fitjar I, lóð undir íbúðarhús
3, Fijtar II, lóð undir safnaðarheimili og gistiheimili.
Samþykkt
1.10. 2602021 - Vatnsendahlíð 157, umsókn um byggingarh.
Sótt er um að byggja 22.4 m2 hús á lóðinni. Fyrir er frístundarhús, 55,9 m2 og baðhús 6,6 m2. Alls verður því byggingarmagn á lóðinni 84,9 m2.
Byggingaráformin eru samþykkt.
1.11. 2602018 - Hreppslaug 133955 - umsókn um byggingarh
Sótt er um að byggja saunahús, 26.4 m2, við sundlaugina.
Byggingaráformin eru samþykkt.
1.12. 2602019 - Indriðastaðahlíð 134 - umsókn um byggingarh
Sótt er um að byggja 297 m2 hús á lóðinni.
Byggingaráformin eru samþykkt með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar á grendarkynningu.
1.13. 2605004 - Fitjahlíð 15-21, merkjalýsing
Lögð inn til samþykktar merkjalýsing fyrir lóðirnar, Fitjahlíð 15-21.
Samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingafltr.
1.14. 2201007 - Indriðastaðahlíð 166
Framkvæmdaraðili hefur óskað leiðbeininga með framhaldið. Búið var að upplýsa framkvæmdaraðila að hann yrði að óska eftir deiliskipulagsbreytingu, ef halda ætti áfram með framkvæmdina.
Samþykkt að bjóða framkvæmdaraðila til fundar.
Skipulagsmál
2. 2604004 - Indriðastaðahlíð 134, breyting deiliskipulags
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þann 16. apríl 2026 til 14. maí 2026. Engin athugasemd eða umsögn barst á auglýsingartíma grenndarkynningar.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til HMS og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
25-022-Deiliskipulagsbreyting INDRIÐASTAÐAHLÍÐ_06.01.2026.pdf
25-022_AU_20260218.pdf
Skráningartafla - Indriðastaðahlíð 134.pdf
3. 2604002 - Dagverðarnes 62-65, svæði 8, nýtt deiliskipulag
Málinu var frestað á síðasta fundi nefndarinnar þar sem farið var fram á lagfæringar á deiliskipulagstillögu skv. ábendingum nefndarinnar. Tillaga er aftur lögð fram til afgreiðslu, að beiðni landeiganda Dagverðarness. Um er að ræða 6,4 ha svæði fyrir neðan Skorradalsveg (508). Ekki er þörf á lýsingu skipulagsverkefnis þar sem allar megin forsendur deiliskipulags liggja fyrir í Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 og er í samræmist stefnu aðalskipulagsins.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja deiliskipulag frístundalóða Dagverðarness 62, 63, 64 og 65 á svæði 8 til auglýsingar sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Framkvæmdarleyfi
4. 2605003 - Skógrækt í landi Stóru Drageyrar, framkvæmdaleyfisumsókn
Land og skógur hefur lagt fram umsókn um framkvæmdaleyfi um skógrækt í landi Stóru Drageyrar í samræmi við Aðalskipulag Skorradalshrepps 2010-2022. Um er að ræða gróðursetningu 30.000 skógarplantna vor/sumar 2026. Stærð svæðis eru tæpir 19 ha. Tekið hefur verið tillit til svæða til þyrlulendinga Þ2 og Þ3.
Skipulags- og byggingarnefnd boðar Skógarvörð á Vesturlandi á fund nefndarinnar þar sem stefna aðalskipulags sveitarfélagsins varðandi skógrækt verður kynnt og Landi og skógi gefið tækifæri á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, málinu frestað.
Fylgigögn framkvæmdaleyfisumsóknar til undirbúning lands til gróðursetningar Á Stóru Drageyri.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00 

Til bakaPrenta