Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarnefnd - 170

Haldinn á Hvanneyri,
14.02.2023 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Formaður,
Ástríður Guðmundsdóttir Aðalmaður,
Ingólfur Steinar Margeirsson Varaformaður,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir Ritari, Sæmundur Víglundsson Embættismaður.
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi
SV sat fundinn undir lið 1-3 í fjarfundarbúnaði


Dagskrá: 
Fundargerðir til kynningar
Fundargerð lögð fram til kynningar
1. 2302001F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 69
1.1. 2209007 - Hagaland L134051, umsókn um stöðuleyfi
Sótt er um stöðuleyfi fyrir 70 m2 húsi
Samþykkt
1.2. 2211015 - Dagverðarnes 72a, Umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um að byggja, gestahús, 30,1 m2.
Vísað til Skipulags- og byggingarnefndar þar sem umbeðið byggingarmagn er utan heimilda skv. deiliskipulags.
1.3. 2301006 - Fitjahlíð 67B, Umsókn um byggingareimild
Sótt er um að byggja tvö hús á lóðinni, frístundarhús, 58,5 m2 og vinnustofu, 16,6 m2.
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar þar sem ekkert deiliskipulag er tiltækt fyrir svæðið
1.4. 2209020 - Refsholt 29, umsókn um byggingarh og stöðuleyfi
Sótt er um að byggja / flytja hús á staðinn, frístundarhús 55,5 m2.
Byggingaráformin eru samþykkt
1.5. 2301008 - Horn, umsókn um byggingarleyfi
Sótt er um að byggingarleyfi til að byggja íbúðarhús, 992, m2 og gestahús, 722,6 m2
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa.
1.6. 2301009 - Andakílsárvirkjun endurbætur
Óskað álits byggingingarfulltrúa um hvort þurfi byggingaleyfi vegna framkvæmda við endurbætur og lagfæringu á stilfumannvirkjum Andárkílsvirkjunar.
Það þarf leyfi fyrir viðhaldi og endunýjun allra mannvirkja. Með umsókn þarf að fylgja teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum, fyrir og eftir breytingu.
1.7. 2209006 - Refsholt 36, umsókn um byggl.
Frestað mál frá fundi 68.
Sótt er um heimild til að byggja 149,5 m2 frístundarhús á lóðinni.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa.
1.8. 2301007 - Refsholt 59, umsókn um byggingarh
Sótt er um heimild til að byggja 162,3 m2 frístundarhús á lóðinni.
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa.
1.9. 2209005 - Dagverðarnes 125 ums. um byggl
Frestað mál frá fundi 68.
Umsókn um heimild til að byggja, 120 m2 frístundarhús, fyrir er á lóðinni 75,9 m2 hús sem verður nýtt sem gestahús
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa.
Byggingarleyfismál
2. 2211015 - Dagverðarnes 72a, Umsókn um byggingarleyfi
Málinu var vísað til skipulags- og byggingarnefndar af 69. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa sem haldinn var þann 1. febrúar 2023. Í gildi er deiliskipulag lóða 70-84, á svæði 5. Á Dagverðarnesi 72a stendur 64 fm frístundahús, en einungis er heimilt að reisa eitt hús sbr. gildandi skilmálum deiliskipulags.
Skipulags- og byggingarnefnd hafnar byggingarleyfisumsókn þar sem hún samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.
3. 2301006 - Fitjahlíð 67B, Umsókn um byggingareimild
Málinu var vísað til skipulags- og byggingarnefndar af 69. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa sem haldinn var 1. febrúar 2023. Ekkert deiliskipulag er í gildi í Fitjahlíð. Á lóð Fitjahlíðar 67B er engin bygging. Óskað er efir byggingarleyfi fyrir 58,5 m2 frístundahúsi og 16,6 m2 vinnustofu. Samanlagt byggingarmagn á lóð er 75,1 m2. Lóðin er 2.642 m2 að stærð. Byggingarleyfisumsókn samræmist stefnu aðalskipulags um nýtingarhlutfall sem er 0.05.
Skipulag- og byggingarnefnd samþykkir að byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir Fitjahlíð 67, 67A, 70, 72 og landeigendum Fitja sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um að uppfærð gögn berist. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Skipulagsmál
4. 2103006 - Dagverðarnes, svæði 9, nýtt deiliskipulag
Röksemdafærsla hönnuðar liggur fyrir:
1.Vegagerðin gerði engar athugasemdir við útfærsluna í sinni umsögn um útfærsluna.
2.Það eru fjöldamörg fordæmi fyrir sambærilegri útfærslu, nálægð við veg, annarsstaðar í dalnum.
3.Í gildu aðalskipulagi er gert ráð fyrir að svæði fyrir frístundabyggð nái alveg niður að vegi og eru stærðarafmarkanir og fjöldi lóða í aðalskipulagsbreytingu sem gerð var 2021 þannig að ekki er hægt að uppfylla allar kvaðir þar nema að nýta reitina í samræmi við afmörkun.
4.Hámarkshraði á veginum er 60 km en ekki 90 km
5.Svæðið er staðsett í frekar brattri brekku þar sem er mikill birkigróður og því mun húsið á neðstu lóðinni standa amk. 5 metrum hærra en vegurinn og lóðir nr. 301 og 302 minnst 10 metrum hærra en vegurinn sem minnkar öll áhrif sem umferð um veginn getur haft.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að gera rökin að sínum og skipulagsfulltrúa verði falið að koma þeim og uppfærðri skipulagsáætlun til ráðuneytisins og Skipulagsstofnunar.
Framkvæmdarleyfi
5. 1911001 - Mófellsstaðir, framkvæmdaleyfi efnistöku í Kaldá
Borist hefur erindi frá Mófellsstaðabúinu ehf. þar sem upplýst er að efnistaka hafi ekki farið fram síðan sumarið 2021. Teknir hafa verið samtals 900 m3 frá því að framkvæmdaleyfi var gefið út þann 29.9.2020. Óskað er eftir að sveitarfélagið felli framkvæmdaleyfi úr gildi á grundvelli 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 þar sem segir að leyfisveitandi geti fellt framkvæmdaleyfi úr gildi ef framkvæmdaleyfisskyld framkvæmd stöðvast í eitt ár.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að framkvæmdaleyfi verði fellt úr gildi sbr. 2.mgr. 14. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30 

Til bakaPrenta