Kjörskrá fyrir Alþingiskosningar

Kjörskrá skal liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofum sveitarfélaga eða öðrum hentugum stað  eigi  síður  en  21 degi fyrir kjördag  eða  laugardaginn  9.nóvember  2024, sbr. 2. mgr. 30. gr. kosningalaga.V.

Í samræmi við ofanritað verður kjörskrá Skorradalshrepps fyrir alþingiskosningar þann 30.nóvember almenningi til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins á opnunartíma skrifstofu og einnig er hún til sýnis hjá oddvita sveitarfélagsins i Mófellsstaðakoti.

Kosið verður í Laugarbúð við Hreppslaug og mun opnun kjörstaðar auglýst síðar.