Íbúakosning hafin um nafn á sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.

Ráðgefandi íbúakosning um nafn á sameinuðu sveitarfélagi hófst í dag, 15. apríl, og stendur til og með 27. apríl.

Allir íbúar með lögheimili í sveitarfélögunum Borgarbyggð og Skorradalshreppi, 16 ára og eldri geta tekið þátt í kosningunni í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar. Til að komast þar inn þarftu rafræn skilríki.

Smelltu hér til að fara í þjónustugáttina

Þrír möguleikar

Valið er á milli þriggja kosta sem fela í sér mismunandi tillögur. Hver og einn íbúi hefur eitt atkvæði.

Valmöguleikarnir eru þessir:

  • Borgarbyggð.
  • Skorradalshreppur.
  • Annað: ____________________________

 

Tekið er fram að kosningin er ráðgefandi en ekki bindandi.  Fyrst og fremst er verið að kanna hug og vilja fólks gagnvart nafni fyrir sameinað sveitarfélag. Það verður svo hlutverk nýrrar sveitarstjórnar að taka endanlega ákvörðun um hvaða nafn hið sameinaða sveitarfélag kemur til með að bera.

Mikilvægt er að sem flestir taki þátt svo að könnunin endurspegli sem best viðhorf íbúa.