Miðvikudaginn 27. ágúst nk. kl. 20:00 verður haldinn íbúafundur um tillögu um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í Hjálmakletti í Borgarnesi.
Á fundinum verður farið yfir álit samstarfsnefndar, helstu forsendur þess og fyrirkomulag íbúakosninga um tillögu um sameiningu. Fundargestir á netinu geta sent inn fyrirspurnir í spjalli.