Skilafrestur framboðslista er 10.apríl kl. 12

Yfirkjörstjórn mun þá taka á móti framboðslistum á skrifstofu Borgarbyggðar að Digranesgötu 2, 1. hæð milli kl. 10.00 og 12.00. Meðmælendalistum skal skilað í gegnum rafrænt meðmælakerfi á www.island.is og/eða á pappír.

Yfirkjörstjórn boðar einnig til fundar mánudaginn 13. apríl n.k. kl. 13.00 á skrifstofu Borgarbyggðar, Digranesgötu 4, 3. hæð þar sem hún úrskurðar um framkomna framboðslista að viðstöddum umboðsmönnum listanna.

Þegar yfirkjörstjórn hefur úrskurðað um framboðin mun hún auglýsa framboðslista, bókstaf listanna og nöfn frambjóðenda á hverjum lista í réttri röð, á heimasíðu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og í bæjarblöðunum.

Yfirkjörstjórn Borgarbyggðar og Skorradalshrepps,

Sveinbjörn Eyjólfsson

Sóley Sigurþórsdóttir

Jökull Helgason