Sveitarstjórnarkosningar 2026

Framboð og meðmæli – mikilvægar dagsetningar og upplýsingar 

Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 16. maí 2026.
Öll framboð eru hvött til að nýta rafrænt meðmælendakerfi til söfnunar meðmæla, sem opnar 3. mars.
Nánari upplýsingar um kerfið má finna hér á vef Landskjörstjórnar: Meðmælasöfnun 
 

Umsóknarfrestur framboða er til og með 10. apríl 2026 kl. 12:00.
Gætið þess að skila inn öllum nauðsynlegum gögnum innan tilskilins frests.  

Stjórnmálasamtök sem ætla að skila inn framboðum til sveitarstjórnakosninga geta stofnað rafræna meðmælasöfnun með framboði í komandi sameinuðu sveitarfélagi.  

Þar sem ekki búið er að sameina sveitarfélögin og meðmæli eru tengd lögheimils skráningu þarf að stofna meðmælasöfnun í báðum sveitarfélögum. 

Sami framboðslistinn þarf því að skrá sig inn á island.is í Skorradal og Borgarbyggð til að safna meðmælum. 

Þeir sem hafa lögheimili í Skorradal geta mælt með lista rafrænt inn á island.is og á sama hátt og þeir sem hafa lögheimili í Borgarbyggð geta mælt með lista rafrænt inn á island.is í Borgarbyggð.   

Ef spurningar vakna eða þörf er á frekari leiðbeiningum, vinsamlegast hafið samband við yfirkjörstjórn á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eða skorradalur@skorradalur.is.   

Nánari upplýsingar um skil á framboðum verða auglýstar síðar.