Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 159. fundi sínum þann 8. september 2021 að vera með opinn dag fyrir íbúa sveitarfélagsins og aðra hagsmunaaðila til að kynna tillögu breytingar deiliskipulags Vatnsendahlíðar, 1.-4. áfanga, sbr. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og að auglýsa breytingu deiliskipulagsins sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga.
Breyting deiliskipulagstillögu felur í sér skipulags- og byggingarskilmála fyrir umrætt svæði, en engir skilmálar eru í gildi fyrir svæðið.
Breyting deiliskipulagstillögu liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 28. september til og með 9. nóvember 2021. Opinn dagur verður á skrifstofu sveitarfélagsins þann 28. september 2021 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér skilmálana.
Breytinguna má sjá hér á Vatnsendahlíð 1-4 áfangi-Skilmálar
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingu deiliskipulagsins. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 9. nóvember 2021. Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps