Til bakaPrenta
Hreppsnefnd - 218

Haldinn á Hvanneyri,
21.01.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Pétur Davíðsson Hreppsnefndarmaður,
Jón E. Einarsson Hreppsnefndarmaður,
Guðný Elíasdóttir Hreppsnefndarmaður,
Óli Rúnar Ástþórsson Hreppsnefndarmaður,
Kristín Jónsdóttir Hreppsnefndarmaður,
Fundargerð ritaði: Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2511002 - Stjórnsýslukæra vegna málsnúmer IRN25090119
Úrskurður ráðuneytisins í máli IRN25090119 sem kveðinn var upp þann 12. desember 2025.
Þar sem kemur fram að Innviðaráðuneytið hafnar kröfu kærenda, Péturs Davíðssonar og Óla Rúnars Ástþórssonar, um að íbúakosningar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar, sem fram fóru dagana 5.-20. september sl., verði felldar úr gildi.

Úrskurður lagður fram.

GE óskar eftir að bóka eftirfarandi:

"Ég vil byrja á að óska hreppsnefnd Skorradalshrepps til hamingju með niðurstöður kosninga vegna sameiningar sveitarfélaganna Skorradalshrepps og Borgarbyggðar. Þegar ég var kjörin í hreppsnefnd Skorradalshrepps í maí 2022 þá grunaði mig ekki hversu ósjálfbært sveitarfélagið var og að næstum öll vinna sem unnin var hjá sveitarfélaginu væri aðkeypt þjónusta. Árstekjur sveitarfélagsins eru lágar sem sagði mér að sveitarfélagið gæti ekki sinnt lögbundinni þjónustu upp á eigin spýtur og að engin sjálfbær uppbygging gæti orðið í sveitarfélaginu.
Sameiningarferlið er búið að vera langt og strangt og reynt hefur verið að bregða fæti fyrir þá aðila sem unnið hafa að þessari sameiningu í hverju því skrefi sem tekið var. Það sem mig hins vegar óraði ekki fyrir þegar byrjað var á þessu verkefni, var að persóna mín yrði skotmark hjá ákveðnum kjörnum fulltrúum í hreppsnefnd Skorradalshrepps. Ég var m.a. ásökuð um vanhæfi þar sem ég starfa hjá Borgarbyggð og kærð til IRN / Innviðaráðuneytis, meira að segja tvisvar. Nafnið mitt kom nokkrum sinnum fram í fjölmiðlum og dæmi voru um að verið væri að dreifa rógburði um mína persónu, bæði á opnum fundum og á almannafæri. Þetta gerðist allt þrátt fyrir að fyrir lægi staðfesting frá Sambandi Íslenskra Sveitarfélaga um að ég teldist hæf. Enda hef ég eða fjölskylda mín engan fjárhagslegan ávinning af því að sveitarfélögin sameinist. Hins vegar höfum við líkt og aðrir íbúar sveitarfélagsins þann hag af sameiningunni að við verðum örugg með lögbundna- og aðra þjónustu sem sveitarfélög veita íbúum sínum almennt.
Eins og flestum er kunnugt þá var þessu sameiningarverkefni ekki alveg lokið eftir að niðurstöður sameiningakosninganna lágu fyrir. Það bárust fleiri kærur til IRN frá tveimur kjörnum fulltrúum í hreppsnefnd Skorradalshrepps og þar var persóna mín að sjálfsögðu aftur ein af kæruliðunum. Þetta var mjög dýrt ferli fyrir bæði sveitarfélögin og að mínu mati sóun á dýrmætum tíma, því þegar skýrar niðurstöður um úrslit kærumálanna lágu fyrir hjá IRN í desember sl., gat samráðshópur sameiningarinnar fyrst byrjað vinnuna sem þarf að eiga sér stað áður en sveitarfélögin geta runnið saman í eitt.
Eftir á að hyggja velti ég því fyrir mér hver ávinningur þessara tveggja kjörinna fulltrúa í hreppsnefnd Skorradalshrepps var, varðandi að leggja fram kærur eftir sameiningarkosningarnar, þegar kunnugt var að mun fleiri íbúar Skorradalshrepps vildu sameiningu heldur en þeir sem á móti voru. Vildu þessir kjörnu fulltrúar í hreppsnefnd Skorradalshrepps taka lýðræðið af íbúum Skorradalshrepps? Eru þeir sem kjörnir fulltrúar í hreppsnefnd, raunverulega að vinna fyrir íbúa sveitarfélagsins eða sjálfs síns?
Í dag er ég sátt við þá ákvörðun að hafa farið í þessa vegferð sem ákveðnir íbúar Skorradalshrepps kölluðu eftir. Það sýndi sig í niðurstöðum sameiningarkosninganna að þetta var rétt ákvörðun, það voru fleiri íbúar Skorradalshrepps en færri sem vildu sameiningu.
Guðný Elísdóttir"

ÓRÁ og PD óska eftir að bóka eftirfarandi:
"Í ljósi úrskurðar Innviðaráðuneytisins (IRN), sem telur ekki kosninguna sjálfa ólögmæta, en í raun margt óljóst í undirbúningi og vinnslu sameiningarferilins og kosninga að sé rétt framkvæmt. IRN boðar í úrskurðunum að það ætli að taka það skoðunar samkvæmt 112. gr. sveitarstjórnarlaga sem frumkvæðis og eftirlitsmál.
Við teljum sveitarfélagið sé sjálfbært og það hefur hingað til geta uppfyllt skyldur sínar til íbúa sveitarfélagsins og veitt lögbundna þjónustu. Skatttekjur Skorradalshrepps er vel yfir 150 milljónir og hefur verið afgangur af rekstri sveitarfélagsins, þannig að það eru mikil tækifæri í sveitarfélaginu.
Ljóst er að þessi sameining þessara tveggja sveitarfélaga Skorradalshrepps og Borgarbyggðar mun ekki búa til fjársterkara sveitarfélag og þannig sem gæti varið meiru til framkvæmda og fjárfestinga. Ljóst að heildartekjur munu lækka um 50-80 milljónir á svæði sameinaðs sveitarfélags, en það kemur fram í gögnum Jöfnunarsjóðs um framlög Jöfnunarsjóðs eftir aðlögunartíma sameiningar. Þetta mun þýða að það verður að spara í nýju sveitarfélagi og við óttumst að eitt það fyrsta sem lendir í hagræðingarhnífnum verði starfsstöð Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri, með lokun hennar og að 1 og 2 bekkur flytjist yfir í Leikskólann Andabæ. Þetta geti orðið síðan upphafið að hnignum Hvanneyrar og nágrennis, en í dag er Landbúnaðarháskólanum ógnað og ef þetta raungerist mun fasteignaverð og verðmæti eigna lækka í nágrenni Hvanneyrar.
Óli Rúnar Ástþórsson
Pétur Davíðsson"

JEE óska eftir að bóka eftirfarandi:
Ég tel ótvírætt að sameiningin efli samfélagið ekki síst Hvanneyrarstað og harma þá sýn sem ÓRÁ og PD hafa á samfélagið.
Jón Eiríkur Einarsson"




551a53f8-f7b7-41c5-911e-aa95439e0927-Leiðrétt - Undirritað - Úrskurður_-_12._desember_2025_-_Mál_IRN25090119 (1).pdf
2. 2512005 - Stjórnsýslukæra vegna IRN25090129
Þann 12. desember 2025 er í innviðaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli nr. IRN25090129:
Innviðaráðuneytið hafnar kröfu kæranda, Péturs Davíðssonar, um að íbúakosningar um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar, sem fram fóru dagana 5.-20. september 2025, verði felldar úr gildi.

Úrskurður lagður fram.

GE vísar í bókun sína í 1. dagskrálið fundarins, eins JEE með sína bókun og PD gerir það einnig með sína bókun frá 1. dagskrálið.
c5fdb518-8bff-4eb2-b4ad-de3f6329a4d4-Undirritað - 12._desember_2025_-_Úrskurður_-_Mál_IRN25090129 (1).pdf
3. 2512001 - Samningur vegna afhendingar á 40% eignarhlut í Laugarbúð, Hreppslaug
Lagður fram samningur við Ungmennafélagið Íslending um afhendingu á 40% eignarhlut Skorradalshrepps í Laugarbúð til Ungmennafélagsins Íslendings.
Oddviti leggur fram samkomulag um afhendingu 40% eignahluts Skorradalshrepps í Laugarbúð við Hreppslaug, einnig lagt fram yfirlýsing frá Ungmennafélaginu Íslending.
Hreppsnefnd vekur athygli Ungmennafélagsins Íslendings á því að svo virðist sem ekki hafi verið skilað inn launamiðum og eða verktakamiðum. Hreppsnefnd vill vekja athygli Ungmennafélagsins á því að slíkt er hægt að gera aftur í tímann og hvetur hreppsnefnd félagið til þess.
Oddvita er falið að undirrita samkomulagið og ganga frá afsali.

JEE, GE, KJ og ÓRA samþykkja tillögu oddvita.

PD bókar eftirfarandi:
"PD fagnar að það komu fram í yfirlýsingu Ungmannafélagsins frá því í dag, að stjórn félagsins hafi samþykkt að niðurgreiða aðgangseyrir til fasteignaeiganda í Skorradal, en það í samræmi við samning frá 2020 um framlag um byggingu laugarbúðar í Hreppslaug.
PD samþykkir einnig að afhenda Ungmannafélaginu 40% eignarhlut sveitarfélagsins í Laugarbúð en það í samræmi við viðauka í fjárhagsáætlun Skorradalshrepps fyrir árið 2025 og afhending miðist við árið 2025. PD heimilar þannig oddvita að undirritað samkomulagið. PD óskar samt eftir að skoðað uppgjör verði lagt um fjárfestingu og framkvæmd þessari og uppgjör á millifærslum og kostnaði. Ekkert hefur verið lagt fram hingað til.
Pétur Davíðsson"



samningur_um _afhendingu_eignarhluta_skorradalshr.pdf
yfirlýsing umf.Íslendings.pdf
4. 2601005 - Húsnæðisáætlun sveitarfélgasins 2026
Húsnæðisáætlun sveitarfélagsins fyrir 2026 lögð fram til samþykktar.
Áætlunin samþykkt.
Húsnæðisáætlun 2026 - Skorradalshreppur.pdf
5. 2511001 - Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2026
Lögð fram fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2026 eftir seinni umræðu í Borgarbyggð.
Samþykkt
6. 2511010 - Viðauki við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar 2025 málnr. 2502016
Lagður fram viðauki VI við fjárhagsáætlun Borgarbyggðar.
Samþykkt.
7. 2601006 - Göngubrú yfir Fitjaá
Erindi frá Sumarhúsafélaginu á Fitjum.
Undanfarin misseri hefur farið fram undirbúnings- og hugmyndavinna vegna mögulegrar uppbyggingar gönguleiða í botni Skorradals, innan lands Fitja og Vatnshorns. Verkefnið felur í sér að reist verði göngubrú yfir Fitjaá, á þeim stað þar sem hin forna leið Síldarmannagötur lá áður yfir ánna.
Jafnframt er óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til þess hvort mögulegt sé að veita verkefninu fjárhagslegan stuðning

Erindið lagt fram. Samþykkt að vísa erindinu til Skipulagsnefndar til umfjöllunar. Einnig óskar hreppsnefnd eftir frekari gögnum og ítarlegri kostnaðaráætlun fyrir næsta fund.

8. 2601007 - Birkimói 1, hugmyndir um stækkun lóðar
Fyrirspurn frá ÓRÁ um stækkun lóðar við Birkimóa 1.
Oddvita falið að ræða við landeiganda Birkimóa Grundarland og Birkimóa 1. Jafnframt einnig óska eftir umfjöllum Skipulagsfulltrúa á erindinu.
IMG_20260116_0001.pdf
9. 2301003 - Verktakasamningar
Lagður fram undirritaður samningur við ÓRÁ.
Samþykkt.

ÓRÁ tók ekki þátt í afgreiðslunni.
10. 2507010 - Skólaakstur veturinn 2025-26
Lagður fram undirritaður samningur við TVS.
Samþykkt.
KJ tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.
Fundargerðir til staðfestingar
11. 2512002F - Skipulags- og byggingarnefnd - 196
Lögð fram fundargerð frá 10. desember s.l.
Fundargerðin samþykkt í öllum 2 liðum.
11.1. 2511003F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 83
Fundargerð lögð fram til kynningar
12. 2601001F - Skipulags- og byggingarnefnd - 197
Lögð fram fundargerð frá 12. janúar s.l.
Fundargerðin samþykkt í öllum 6 liðum.
12.1. 2512003F - Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 84
Fundargerð lögð fram til kynningar
12.2. 2302031 - Indriðastaðir 25
Byggingarleyfisumsókn gestahúss var grenndarkynnt sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi. Gerðar voru breytingar á byggingarleyfisumsókn í samræmi við ábendingar byggingarfulltrúa áður en grenndarkynning fór fram. Byggingarleyfisumsókn var grenndarkynnt frá 9.12.2025 til 6.1.2026 í skipulagsgátt, sjá á eftirfarandi slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/248. Ein umsögn barst frá Vegagerðinni á grenndarkynningartíma. Umsögn hefur ekki áhrif á grenndarkynnt gögn.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að byggingarfulltrúa verði falið að veita byggingarleyfi í samræmi við grenndarkynnt gögn byggingarleyfisumsóknar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
12.3. 2510002 - Indriðastaðir 33, Umsókn um byggingarh. eða -leyfi, flokkur 1
Byggingarleyfisumsókn um stækkun frístundahúss var grenndarkynnt sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi. Byggingarleyfisumsókn var grenndarkynnt frá 17.11.2025 til 15.12.2025 í skipulagsgátt, sjá á eftirfarandi slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1538 . Tvær umsagnir bárust á grenndarkynningartíma, þ.e. frá Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands. Umsagnir hafa ekki áhrif á grenndarkynnt gögn.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að byggingarfulltrúa verði falið að veita byggingarleyfi í samræmi við grenndarkynnt gögn byggingarleyfisumsóknar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
12.4. 2304014 - Forsendur starfsemi Andakílsárvirkjunar
Í desember 2024 var lögmanni falið að svara þáverandi Orkustofnun sem er í dag Uumhverfis og Orkustofnun í kjölfar minnisblaðs sem kom frá stofnuninni. Formaður nefndarinnar sendi fyrirspurn á lögmann sveitarfélagsins um hvort að einhver svör hafa borist.
Svar lögmanns til formannsins lagt fram. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að embættið vinni að umræddum gögnum í ljósi ábendingar lögmanns.
12.5. 2501001 - Vindorkugarður í landi Hæls og Steindórsstaða í Borgarbyggð, umhverfismat
Skipulagsstofnun hefur farið yfir matsáætlun framkvæmdaraðila ásamt umsögnum og viðbrögðum framkvæmdaraðila við þeim í samræmi við 21. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga nr. 111/2021 skal álit Skipulagsstofnunar fela í sér leiðbeiningar til framkvæmdaraðila um vinnslu, efni og framsetningu umhverfismatsskýrslu. Álit Skipulagsstofnunar er bindandi fyrir framkvæmdaraðila og skal hann leggja það til grundvallar umhverfismatsskýrslu ásamt matsáætlun. Að öðru leyti er kveðið á um kröfur til umhverfismatsskýrslna í 22. gr. laga nr. 111/2021 og 15. gr. reglugerðar um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 1381/2021.
Álit Skipulagsstofnunar lagt fram og kynnt
12.6. 2503014 - Vindorkugarður á Þovaldsstöðum
Skipulagsstofnun hefur farið yfir matsáætlun framkvæmdaraðila ásamt umsögnum og viðbrögðum framkvæmdaraðila við þeim í samræmi við 21. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga nr. 111/2021 skal álit Skipulagsstofnunar fela í sér leiðbeiningar til framkvæmdaraðila um vinnslu, efni og framsetningu umhverfismatsskýrslu. Álit Skipulagsstofnunar er bindandi fyrir framkvæmdaraðila og skal hann leggja það til grundvallar umhverfismatsskýrslu ásamt matsáætlun. Að öðru leyti er kveðið á um kröfur til umhverfismatsskýrslna í 22. gr. laga nr. 111/2021 og 15. gr. reglugerðar um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 1381/2021.
Álit Skipulagsstofnunar lagt fram og kynnt
Fundargerðir til kynningar
13. 2601008 - Fundargerðir að stofnun sameinaðs sveitarfélags Skorradalshreppps og Borgarbyggðar
Lagðar fram fundargerð nr 1 og 2.
14. 2502011 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Lagðar fram fundargerðir nr. 990 og 991
15. 2502014 - Fundargerðir stjórnar Faxaflóahafnar sf. 2025
Lögð fram fundargerð nr. 263
Byggingarleyfismál
16. 2302031 - Indriðastaðir 25
Byggingarleyfisumsókn gestahúss var grenndarkynnt sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi. Gerðar voru breytingar á byggingarleyfisumsókn í samræmi við ábendingar byggingarfulltrúa áður en grenndarkynning fór fram. Byggingarleyfisumsókn var grenndarkynnt frá 9.12.2025 til 6.1.2026 í skipulagsgátt, sjá á eftirfarandi slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/248. Ein umsögn barst frá Vegagerðinni á grenndarkynningartíma. Umsögn hefur ekki áhrif á grenndarkynnt gögn. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að byggingarfulltrúa verði falið að veita byggingarleyfi í samræmi við grenndarkynnt gögn byggingarleyfisumsóknar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Hreppsnefnd samþykkir að byggingarfulltrúa verði falið að veita byggingarleyfi í samræmi við grenndarkynnt gögn byggingarleyfisumsóknar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
17. 2510002 - Indriðastaðir 33, Umsókn um byggingarh. eða -leyfi, flokkur 1
Byggingarleyfisumsókn um stækkun frístundahúss var grenndarkynnt sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi. Byggingarleyfisumsókn var grenndarkynnt frá 17.11.2025 til 15.12.2025 í skipulagsgátt, sjá á eftirfarandi slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1538 . Tvær umsagnir bárust á grenndarkynningartíma, þ.e. frá Vegagerðinni og Minjastofnun Íslands. Umsagnir hafa ekki áhrif á grenndarkynnt gögn. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að byggingarfulltrúa verði falið að veita byggingarleyfi í samræmi við grenndarkynnt gögn byggingarleyfisumsóknar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Hreppsnefnd samþykkir að byggingarfulltrúa verði falið að veita byggingarleyfi í samræmi við grenndarkynnt gögn byggingarleyfisumsóknar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:15 

Til bakaPrenta