| |
| 1. 2301004 - Ljóspunktur ehf. | |
ÓRÁ fór yfir stöðu mála. JEE og PD falið að boða til aðalfundar Ljóspunkts í apríl n.k. JEE, ÓRÁ og PD falið að vinna málum Ljóspunkts ehf.
Samþykkt.
| | |
|
| 2. 2510011 - Fjárhagsáætlun 2026 | |
| Hreppsnefnd samþykkir framlagðann viðauka nr. 1 með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar Borgarbyggðar. | | Sbizhubc25326031817590.pdf | | |
|
| 3. 2512006 - Gjaldskrár vegna Sorphirðu og fleira 2026 | |
Rætt um gjaldskránna.
Samþykkt að vísa henni til seinni umræðu.
| | |
|
| 4. 2509003 - Kaldavatnsmál í Birkimóa | |
Farið yfir málið.
Frestað til næsta fundar. | | |
|
| 5. 2603004 - Samningur við T.S.V sf. | |
| Lagður fram. | | |
|
| 6. 2404022 - Raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 | |
| Umræða urðu málið. Ákveðið að fresta afgreiðslu og oddvita falið að ræða við önnur sveitarfélög. | | |
|
| 7. 2602014 - Skipun fulltrúa í Raflínunefnd | |
| Samþykkt að tilnefna Pétur Davíðsson, sem fulltrúa í Raflínunefndinni. Sveitarstjórn gerir samt fyrirvara um lögmæti á skipun Raflínunefndar. | | |
|
| |
| 8. 2602003F - Skipulags- og byggingarnefnd - 199 | |
| Fundargerðin samþykkt í öllum 7 liðum. | 8.1. 2602009 - Leiðbeiningar um gerð samgöngumats Leiðbeiningar lagðar fram og kynntar | 8.2. 2601003 - Vatnshlot, uppfærsla á 9. kafla vatnaáætlunar 2022-2027 Umsögn lögð fram og kynnt. | 8.3. 2601002 - Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033, til kynningar Nefndin telur eftir frekari skoðun á framlögðum gögnum að ekki sé þörf á að gera athugasemdir við málið. | 8.4. 2206024 - Vatnshorn, friðlýsing Farið yfir málið og staða þess kynnt. | 8.5. 2404022 - Raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 Minnisblað lögmanns sveitarfélagsins lagt fram og kynnt. Í ljósi álits lögmanns leggur skipulags- og byggingarnefnd til við hreppsnefnd að veita lögmanni sveitarfélagsins heimild til að nota öll tiltæk ráð og heimildir til að stjórnskipuleg staða sveitarfélagsins og þar með annarra sveitarfélaga gagnvart ríkinu verði skýrð. | 8.6. 1402009 - Fitjahlíð, deiliskipulag Kiðhúsbala Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði falið að senda hlutaðeigandi aðilum afstöðu sveitarfélagsins til athugasemda sem bárust á auglýsingartíma tillögunnar.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja auglýst deiliskipulag með áorðnum breytingum sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Enn fremur leggur skipulags- og byggingarnefnd til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði falið að óska eftir undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra á d. lið gr. 5.3.2.5. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 fyrir lóðir ofan vegar, þ.e. Fitjahlíð 47, 49, 51 og 53 þannig að heimilað verði að byggja allt að 25 m frá Skorradalsvegi (508) þar sem hár kantur er niður við hann og minni líkur á að umferðarhljóð berist upp að fyrirhuguðum byggingum. Lóðir eru einnig litlar og þröngar og áhugi er fyrir frekari uppbyggingu innan lóðanna. Sveitarfélagið bendir einnig á að skilgreind er gönguleið meðfram vegi í samræmi við verndarsvæði í byggð, sem kallar á hægari umferð. Minni hraði bætir hljóðvist innan byggðarinnar og gerir það að verkum að hægt er að byggja nær vegi en ella. | 8.7. 2601004 - Syðstu-Fossar, umsögn vegna framkvæmdaleyfis í Borgarbyggð Athugasemdum nefndarinnar var komið á framfæri á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar sjá á eftirfarandi slóð: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/46 . Athugasemdir lagðar fram. | | |
|
| |
| 9. 2602003 - Fundargerðir samband íslenskra sveitarfélaga árið 2026 | |
| |
|
| |
| 10. 1402009 - Fitjahlíð, deiliskipulag Kiðhúsbala | |
Hreppsefnd felur skipulagsfulltrúa að senda hlutaðeigandi aðilum afstöðu sveitarfélagsins til athugasemda sem bárust á auglýsingartíma tillögunnar. Hreppsnefnd samþykkir auglýst deiliskipulag með áorðnum breytingum sbr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hreppsnefnd felur skipulagsfulltrúa að óska eftir undanþágu hjá félags- og húsnæðismálaráðherra á d. lið gr. 5.3.2.5. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 fyrir lóðir ofan vegar, þ.e. Fitjahlíð 47, 49, 51 og 53 þannig að heimilað verði að byggja allt að 25 m frá Skorradalsvegi (508) þar sem hár kantur er niður við hann og minni líkur á að umferðarhljóð berist upp að fyrirhuguðum byggingum. Lóðir eru einnig litlar og þröngar og áhugi er fyrir frekari uppbyggingu innan lóðanna. Sveitarfélagið bendir einnig á að skilgreind er gönguleið meðfram vegi í samræmi við verndarsvæði í byggð, sem kallar á hægari umferð. Minni hraði bætir hljóðvist innan byggðarinnar og gerir það að verkum að hægt er að byggja nær vegi en ella. Skipulagsfulltrúa falið að vinna að framgangi málsins áfram. | | |
|
Samgöngumat er mikilvægt fyrir Vegagerðina svo mögulegt sé að kortleggja áform sveitarfélaga með tilliti til áhrifa þeirra á umferð og samgönguinnviði. Með samgöngumati fá sveitarfélög jafnframt betri mynd af áhrifum uppbyggingar á samgöngur innan viðkomandi sveitarfélags.
Æskilegt er að vinna samgöngumat eins snemma, í undirbúningi framkvæmda eða uppbyggingar, og kostur er á enda nýtist sú vinna á síðari stigum.