Sveitarstjórnarkosningar

Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 16. maí 2026.

Kjörstjórn
Yfirkjörstjórn sameiginlegs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps skipa: Sveinbjörn Eyjólfsson, Sóley B. Sigurþórsdóttir og Jökull Helgasson, aðsetur kjörstjórnar á kjördag verður í Menntaskóla Borgarfjarðar.

Ef spurningar vakna eða þörf er á frekari leiðbeiningum, vinsamlegast hafið samband við yfirkjörstjórn á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eða skorradalur@skorradalur.is  

Skipan í kjördeildir
Við Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 16. maí 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð og Skorradalshrepps sem hér segir:

Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri, Bæjarsveit og í Andakíl
Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.

Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.

Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst, Þverárhlíð.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.

Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum á Kleppjárnsreykjum
Þar kjósa íbúar Lundarreykjadals, Flókadals, Reykholtsdals, Hvítársíðu og Hálsasveitar.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00

Skorradalskjördeild  í Laugarbúð Skorradal
Þar kjósa íbúar Skorradals.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.

Kjörskrá
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 liggur frammi í þjónustuveri í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, frá og með 24. apríl næstkomandi.

Talning
Talning atkvæða í sveitarstjórnarkosningum þann 16. maí 2026 í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps fer fram í Menntaskóla Borgarfjarðar Borgarbraut 54 og hefst að kjörfundi loknum kl. 22.

Kosning utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá sýslumönnum hefst þann 17. apríl 2026. Aðsetur sýslumanns á Vesturlandi í Borgarnesi er að Bjarnarbraut 2. Opnunartíminn er mánudaga – fimmtudaga, kl. 9:00 – 15:00 og föstudaga 9:00 – 14:00. Vakin er athygli á því að lokað verður á skrifstofum embættisins föstudaginn 24. apríl nk. vegna fræðsluferðar starfsfólks.

Hægt verður að skila inn utankjörfundaratkvæðum á opnunartíma ráðhúss Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi, mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10.00 til 15.00 og föstudögum frá kl. 10.00 til 14.00.

Síðan verður uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.
Uppfært 16. apríl. 2026