Kjörskrá vegna sameiginlegra sveitarstjórnarkosninga Borgarbyggðar og Skorradalshrepps sem fer fram þann 16. maí 2026, liggur nú frammi í þjónustuveri Ráðhúss Borgarbyggðar, Digranesgötu 2. Athugasemdir við kjörskrá skal senda beint til Þjóðskrár.
Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á eftirfarandi vefslóð:
https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. Á kjördag verður yfirkjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi.

