Kjörskrá vegan sveitarstjórnarkosninga 2026

Kjörskrá vegna sameiginlegra sveitarstjórnarkosninga Borgarbyggðar og Skorradalshrepps sem fer fram þann 16. maí 2026, liggur nú frammi í þjónustuveri  Ráðhúss Borgarbyggðar, Digranesgötu 2. Athugasemdir við kjörskrá skal senda beint til Þjóðskrár.

Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á eftirfarandi vefslóð:

https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/

 

Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. Á kjördag verður yfirkjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi.