Tilkynning frá kjörstjórn Skorradalshrepps vegna Forsetakosninga 2012 Forsetakosningar fara fram laugardaginn 30.júní n.k. í Skátaskálanum Skátafelli í Skorradal. Kjörstaður opnar kl. 12. Að venju verður kaffi á boðstólum. Kjörskrá liggur frammi hjá Oddvita Skorradalshrepps fram að kjördegi Kjörstjórn Skorradalshrepps.