Búið er að bæta við nýjum upplýsingum á vefinn eins og setja link á vefsíðu sumarhúsafélagsins í Vatnsendahlíð og ritgerð um Skorradalinn, en hana er að finna undir um Skorradal. Staðardagskrá 21 er líka komin inn á vefinn og kortsjá af hreppnum. Fljótlega verður merki Skorradalshrepps sett á heimasíðuna.
Kynning á Aðalskipulagstillögu
Nú liggja fyrir drög að aðalskipulagi Skorradalshrepps. Af því tilfeni boðar hreppsnefnd til opins fundar til að kynna íbúum og öðrum hagsmunaaðilum tillöguna. Fundurinn verður 8. júní í Skátafelli í Skorradal. Nánari tímasetning verður auglýst síðar.
Fundargerð skipulgs- og byggingarnefndar nr. 32
Fundargerð skipulags- og byggingarnefndar nr. 32 er kominn inn undir fundargerðir.
Skipulagsfulltrúi
Búið er að ráða skipulagsfulltrúa hana Ólöfu Guðný Valdimarsdóttur. Hún verður með skrifstofuaðstöðu á sama stað og byggingarfulltrúinn þ.e.a.s. að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri.
Jörvagleði
Einn dagskráliður Jörvagleði er útsvarskeppni litlu sveitarfélaganna og tekur Skorradalshreppur þátt en einn fulltrúi úr hreppnum skipar lið með Hvalfjarðarsveit. Keppnin fer fram í kvöld miðvikudag 22. apríl kl.20 í Árbliki.
Tilkyning frá kjörstjórn Skorradalshrepps vegna Alþingskostninga 2009
Kjörstaður í Skorradalshreppi er Skátaskálinn Skátafell. Kjörstaður verður opnaður kl. 12, laugardaginn 25. apríl n.k. Kjörskrá liggur frammi hjá Oddvita Skorradalshrepps fram að kjördegi. Kjörstjórn Skorradalshrepps Davíð Pétursson Fjóla Benediktsdóttir Finnbogi Gunnlaugsson
Hreppsnefndarfundur
Fyrirhugað er að hafa auka hreppsnefndarfund miðvikudaginn 15. apríl n.k.
Viðburðarvika á Vesturlandi 23. apríl til 30.apríl og helgina 1. og 2. maí. 2009
Menningarráð Vesturlands mun senda út bækling þar sem auglýstir verða viðburðir sem standa yfir á þessum tíma. Með þessu viljum við hvetja til menningarviðburða af öllu tagi á þessum tíma. Beiðnir um þátttöku þurfa að berast fyrir 6. apríl á www.menning@vesturland.is. Upplýsingar gefur Elísabet Haraldsdóttir í síma 4332313/ og 8925290 og á heimasíðu www.menningarviti.is
Breyttur fundartími
Hreppsnefndarfundur sem vera átti miðvikudaginn 8. apríl n.k. verður þriðjudaginn 7. apríl kl:21.00.
Skipulags- og byygingarfulltrúi
Í dag lauk Árni Þór Helgason störfum hjá Skorradalshrepps. En honum var sagt upp störfum vegna skipulagsbreytinga hjá sveitarfélaginu.