Auglýsing um sveitastjórnarkosningar 2018

Á grundvelli 1.mgr. 1.gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, með síðari breytingum, fara almennar sveitarstjórnarkosningar fram 26.maí 2018. Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 5.maí 2018. Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til yfirkjörstjórnar fyrir lok framboðsfrest. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur hafist 31.mars 2018.
Þetta auglýsist hér með samkvæmt 2.mgr. 1.gr framangreindra laga.