Húsakönnun í framdal Skorradalshrepps

Þessi misseri er unnið að rannsóknum í framdal Skorradals vegna fyrirætlana um verndarsvæði í byggð á svæðinu. Í tengslum við þær var gerð húsakönnun á svæðinu á vormánuðum og liggja nú fyrir drög að skýrslu um könnunina.
Skýrslan er unnin fyrir Skorradalshrepp af þeim Elínu Ósk Hreiðarsdóttur fornleifafræðingi og Hjörleifi Stefánssyni arkitekt. Hún verður hluti af því efni sem lagt verður til grundvallar á greiningu á einkennum byggðar og verndargildi á svæðinu í lokaskýrslu um verndarsvæði í byggð á svæðinu sem sveitarfélagið áætlar að komi út fyrir árslok.
Áhugasömum gefst nú kostur á að kynna sér húsakönnunina og er hægt að hlaða henni niður af vef hreppsins. Frestur til að gera athugasemdir eða leggja til viðbætur við skýrsluna er til 15. ágúst næstkomandi. Athugasemdir skal senda til Elínar á netfangið elin@instarch.is

Drög að húsakönnun í framdal Skorradalshrepps