Hvanneyrarhátið 11. júlí 2015

Við hér hjá Skorradalshreppi viljum benda fólki á skemmtilega fjölskylduhátíð sem haldin verður verður á Hvanneyri laugardaginn n.k. Húsdýr, kerruferðir fyrir börn, ratleikur, andlitsmálun fyrir börn, ný þrautabraut, sveitamarkaður, frír aðgangur í Landbúnaðarsafn Íslands, veitingar í boði. Kvenfélagið 19. júní og Skemman Kaffihús og margt fleira. Sigmundur Davíð, forsætisráðherra, er væntanlegur á hátíðina til þess að lýsa formlega yfir friðun gömlu Hvanneyrartorfunnar. Rúsínan í pylsuendanum eru svo tónleikar sem verða um kvöldið með hljómsveitinni Veturhús í hlöðu Halldórsfjóssins. Allir hjartanlega velkomnir!

Drög að dagskrá:

10:00-12:00 Örnámskeið í orfslætti (þátttöku þarf að tilkynna – skráning berist til Bjarna Guðmundssonar hjá Landbúnaðarsafni Íslands)

12:30 Skemman Kaffihús opnar

13:30 Setning hátíðarinnar á kirkjutröppum Hvanneyrarkirkju:

Björn Þorsteinsson rektor LbhÍ: Stutt ávarp

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra: Friðlýsing gömlu Hvanneyrartorfunnar.

13:30-17:00 Fornbílasýning, markaður í íþróttahúsinu, húsdýr með ungviði og Kvenfélagið 19. júní með kaffisölu í Gamla Búthúsinu

14:00 Sýning – slegið með gömlum dráttarvélum og nýr Farmall sýndur

14:30 Leiðsögn um Yndisgarða

14:00-16:00 Skemmtidagskrá: kerruferðir fyrir börn, gróðurgreiningarkeppni, keppni í pönnukökubakstri, ratleikur fyrir börn, Ullarselskonur sýna listir sínar og ýmislegt fleira

15:00 Klaufskurður sýndur af Guðmundi Hallgrímssyni

15:00 Leiðsögn um Hvanneyrartorfuna

16:30 Verðlaunaafhending fyrir gróðurgreiningarkeppni og pönnukökubakstur

16:30 Leiðsögn um Hvanneyrartorfuna

17:00 Formlegri dagskrá lýkur

20:00 Tónleikar með hljómsveitinni Veturhús í hlöðu Halldórsfjóss, hljómsveitin stígur á svið kl 20:30. Á dagskrá er blanda af þeirra eigin efni og coverlögum (ábreiðum). Miðaverð er 1500 kr, greitt við inngang í seðlum eða klinki (enginn posi).

Veturhús skipa:

Heiðmar Eyjólfsson: Söngur og gítar

Heimir Klemenzson: Hljómborð

Jakob Grétar Sigurðsson: Trommur

Kristján Gauti Karlsson: Gítar

Þórður Helgi Guðjónsson: Bassi