Líf í lundi

Laugardaginn 23.júní verður haldinn skógardagur í Selskógi í Skorradal. Þetta verkefni er samstarfsverkefni þriggja máttarstólpa í skógrækt á Vesturlandi það eru: Skógræktin, Skógræktarfélag Borgarfjarðar og Félag Skógareigenda á Vesturlandi. Skógardagurinn er liður í stóru átaksverkefni sem nefnist Líf í lundi og halda Skógræktarfélag Íslands, Landssamband skógareigenda og Skógræktin utan um það verkefni. Tilgangur skógardagsins er að kynna fólki skóg og hafa gaman saman í fallegu og friðsælu umhverfi.
Skógardagurinn í Selskógi stendur frá klukkan 13:00 – 16:00.
Boðið verður upp á:
Brauð og drykki: Bakað brauð á grein yfir eldi, ketilkaffi, kakó og kaldir drykkir.
Tálgunarnámskeið: Lærið að búa til hluti úr skógarviði.
Skógargöngu: Á göngunni má finna margar tegundir trjáa.
Tónlist: Reynir Hauksson leikur á gítar.
Leikir: Ása Erlingsdóttir leiðir leiki fyrir alla.
Happdrætti: Miði er möguleiki 🙂
Viljum við hvetja sem flesta til að koma og njóta dagsins með okkur
Fyrir hönd undirbúningsnefndar
Valdimar Reynisson
Skógarvörður á Vesturlandi