Réttir og smalamennskur

Smalamennskur og réttir
2024

 

Ágætu sveitungar og aðrir eigendur jarða í Skorradalshrepp. Senn líður að göngum og réttum. Réttað er á eftirtöldum dögum.

Hornsrétt Leitarsvæði nær yfir lönd jarða í Andakíl sunnan Andakílsár og jarða í sunnan og neðanverðum Skorradal að Stóru-Drageyri.
Fyrri rétt er sunnudaginn 8.september kl:10:00 og leitardagur er  laugardaginn 7.september.
seinni rétt
er laugardaginn 21.september þegar að smölun lýkur.

Svarthamarsrétt: Leitarsvæðið eru allar jarðir í Skorradalshrepp sunnan Fitjaár allt að landi Litlu – Drageyrar.
Fyrri rétt er sunnudaginn  15.september  kl: 10:00 og leitardagar eru
13.-14. september.
Seinni rétt er  sunnudaginn 29. september þegar að smölun lýkur. Leitardagar eru 28. og 29. september

Oddsstaðarétt:  Leitarsvæði nær yfir öll lönd jarða í norðanverðum Skorradal.
Fyrri rétt er miðvikdaginn 11.september kl:09:00  og  leitardagar heimalanda eru 7. og 8. september.
Seinni rétt er sunnudaginn 6.október kl. 10:00

Athygli er vakin á því að landeigendum jarða ber að smala sín heimalönd og nauðsynlegt er að gera það á settum smaladögum.

 

Oddviti Skorradalshrepps.